Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Sjúkraliðar lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði

30.9.2009

Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu landsmanna, í ályktun sem félagið sendi frá sér í gær. Í ályktuninni segir að niðurskurður á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu  skerði þjónustu við  alla sem þurfa á henni að halda. Niðurskurðurinn valdi stórauknu álagi á starfsfólk, með tilheyrandi eftirmálum; óbætanlegu heilsutjóni, kvíða og óöryggi.

Sjúkraliðafélagið vinnur mál gegn Alhjúkrun

28.9.2009

sukralidar---svuntaHæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu héraðsdóms í máli félagsmanns Sjúkraliðafélags Íslands gegn Alhjúkrun ehf. um að fyrirtækinu beri að greiða starfsmanninum laun samkvæmt kjarasamningum Sjúkraliðafélagsins. Sjúkraliðafélagið aðstoðaði félagsmann við málshöfðun fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

Lánveitendur axli einnig ábyrgð

25.9.2009

Á fyrsta fundi fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var í gær var samþykkt ályktun þar sem þess var krafist að lánveitendur verði látnir taka ábyrgð til jafns við lántakendur á efnahagshruninu.

Samið við Hitaveitu Suðurnesja

17.9.2009

Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa undirritað og samþykkt nýjan kjarasamning við HS Orku hf. Síðasti gildandi kjarasamningur framlengist til 31. desember 2010 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í hinum nýja samningi eru. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem samþykktir hafa verið á undanförnum mánuðum. Við gildistöku sem er frá 1. maí 2009 hækka laun um 7.750 krónur, 1. nóvember um 1.75% og 1. júní 2010 um 2.5%.

SLRB lýsir áhyggjum yfir fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarkerfinu

15.9.2009

Samband lífeyrisþega ríkis og bæja, SLRB, lýsir áhyggjum sínum yfir fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Ekki sé einungis um að ræða hvort skera skuli niður, heldur hvar innan velferðarkerfisins skorið ver'i niður og hvernig staðið er að slíkum niðurskurði, hvort nægilega góðar upplýsingar séu til staðar í kerfinu, hvort einhverskonar skipulagt áhættumat og/eða spár liggi fyrir um langtíma áhrif niðurskurðar og samdráttar af því tagi sem stefnt er að. Skorar SLRB á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að slíkt áhættumat fari fram áður en tekin verður ákvörðun um stórfelldan niðurskurð innan velferðarkerfisins, með ófyrirsjáanlegum  afleiðingum.

Fjölbreytt námsframboð Framvegis

2.9.2009

framvegis-ritararFramvegis, miðstöð um símenntun, hefur sent frá sér námsvísi fyrir haustönn 2009 þar sem boðið er upp á mjög fjölbreytt námsframboð. Meðal þess sem boðið er uppá er ritara- og skrifstofustjóra-nám en umsóknarfrestur fyrir það rennur út 10. september. Þá er í boði margvíslegt nám fyrir sjúkraliða, félagsliða, starfsfólk í þjónustu- og skrifstofustörfum o.fl. Framvegis er í eigu Verzlunarskóla Íslands, BSRB, SLFÍ, SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta