Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

Gengislánalögin tóku gildi í gćr

29.12.2010

Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra umg gengisbundin lán, sem samþykkt var á Alþingi 18. desember, varð að lögum í gær. Lánastofnanir hafa nú 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum gengisbundnum bíla- og fasteignaveðlánum. Lögin miða að því að koma á fót skilvirkari úrræðinum í útreikningum og endurgreiðslu ólögmætra gengisbundinna lána, t.d. vegna eigendaskitpa, greiðslna ábyrgðarmanna og ólíkrar samningsgerðar lána.

Gleđilega hátíđ

23.12.2010

JólamyndBSRB óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skrifstofa BSRB verður lokuð á morgun, aðfangadag, en opin á milli jóla og nýárs. Gleðilega hátíð. BSRB sendir ekki út jólakort í ár, en hefur sama hátt á og í fyrra og gefur þess í stað Mæðrastyrksnefnd 400 þúsund krónur.

Ţingmálaumsagnir BSRB gerđar ađgengilegri

22.12.2010

Umsagnir BSRB um lagafrumvörp og þingsályktunartillögur hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vefnum. Vinstra megin á forsíðunni, undir Á döfinni, er að finna hnappinn Umsagnir um þingmál. Sé þrýst á hann koma upp allar umsagnir sem BSRB hefur sent Alþingi á yfirstandi löggjafarþingi, sem er hið 139. í röðinni.

Gengiđ til friđar í ţrjá áratugi

20.12.2010

Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur að venju fyrir blysför niður Laugaveginn í Reykjavík fimmtudaginn 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00.  Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi áður en gangan leggur af stað. Í lok göngunnar verður stuttur fundur á Ingólfstorgi þar sem Steingerður Hreinsdóttir, alþjóða þróunarfræðingur   ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands flytur ávarp en fundarstjóri er Árni Pétur Guðjónsson leikari. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.

Leitađ ađ skyndihjálparmanni ársins

20.12.2010

Rauði kross Íslands auglýsir nú eftir ábendingum um hver á skilið að verða útnefndur skyndihjálparmaður ársins 2010. Jafnframt því að vera viðurkenning til einstaklings er tilgangur valsins að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja fólk til að læra skyndihjálp og verða hæfara til að veita hjálp á vettvangi slysa. Tilnefningar þurfa að hafa borist Rauða krossi Íslands, eigi síðar en 15. janúar 2011.

Formađur BSRB brýnir sveitarstjórnir

17.12.2010

elinbjofElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, hefur sent öllum sveitarstjórnarfulltrúum landsins bréf, í tengslum við gerðir fjárhagsáætlana. Í því áminnir hún þá um að nærþjónusta sveitarfélaga er hluti af velferðarkerfinu og það sé því á ábyrgð kjörinna fulltrúa að tryggja að ekki sé höggvið að rótum velferðarkerfisins við fjárhagsáætlanagerð. Þá hvetur hún þá til að dreifa kostnaði við velferðina með því að nýta sér útsvar, frekar en að hækka gjöld. Gjaldskrárhækkun bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna.

Grein Helgu í Fréttablađinu

16.12.2010

Helga JónsdóttirHelga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, ritar grein í Fréttablaðið í dag. Þar áminnir hún kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum um að stíga varlega til jarðar við fjárhagsáætlanagerð og gæta þess að höggva ekki að rótum velferðarkerfisins. Nærþjónusta sveitarfélaga sé hluti þess kerfis og ábyrgð sveitarstjórnarfulltrúa, á að verja velferðina, sé jafn rík og þingmanna við fjárlagagerð.

 

Lokaráđstefna Evrópuárs gegn fátćkt

15.12.2010

Evrópuárið 2010 er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Ísland hefur tekið fullan þátt í verkefninu. Árinu fer senn að ljúka en vinnan heldur áfram. Á lokaráðstefnunni, sem haldin verður 17. desember í Ráðhúsi Reykjavíkur, verða kynnt mörg þeirra verkefna og rannsókna sem hefur verið ýtt úr vör á árinu. en fjöldi styrkja var veittur til baráttunnar.

Dregiđ úr niđurskurđi

15.12.2010

Þriðja útgáfa fjárlaga gerir ráð fyrir milljarði króna hærra framlagi til velferðarmála en upphaflega stóð til. Meirihluti fjárlaganefndar skilaði tillögum af sér í gær og gert er ráð fyrir að frumvarpið verði afgreitt í dag. BSRB hefur undanfarið staðið fyrir umfangsmikilli herferð og brýnt þingmenn til að verja velferðina.

Verksviđ, leiđarljós og hlutverk BSRB

14.12.2010

Verksvið, leiðarljós og hlutverk BSRB eru skilgreind í bæklingi sem nú er kominn út. Hann er afrakstur hugmyndavinnu sem stjórn BSRB ákvað að leggja  í vorið 2010. Þar kemur fram að verksvið BSRB er að veita aðildarfélögunum þjónustu á ýmsum sviðum og sinna fræðslu og upplýsingagjöf. Undir leiðarljós bandalagsins fellur hins vegar að vera heildarsamtök og talsmaður aðildarfélaganna, forysta í stéttarfélagsumræðu og að sjá um samskipti við hið opinbera. Ítarlegri skilgreiningu er að finna í bæklingnum.

4 milljarđar í Jöfnunarsjóđ

13.12.2010

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun greiða allt að 4.200 milljónir króna. Til úthlutunar nú koma 4.025 milljónir.

Ólögmćt uppsögn hjá Stykkishólmsbć

10.12.2010

Hæstiréttur felldi í gær dóm í máli Sjúkraliðafélags Íslands gegn Stykkishólmsbæ vegna ólögmætrar uppsagnar forstöðumanns hjúkrunarheimilisins í Stykkishólmi. Hæstiréttur féllst á rök félagsins að um ólögmæta uppsögn væri að ræða. Var bæjarfélaginu gert að greiða starfsmanninum 3,8 milljónir króna með dráttarvöxtum, samkvæmt lagaákvæðum um vexti og verðtryggingu. Þá var bæjarfélagið dæmt til að greiða starfsmanninum fyrrverandi málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, samtals 1.200.000 krónur.

Áskorun stjórnar BSRB til ţingmanna

10.12.2010

Stjórn BSRB samþykkti rétt í þessu áskorun til Alþingismanna vegna fjárlagafrumvarpsins. Þingmenn eru hvattir til þess að sjá til þess að niðurskurðartillögur frumvarpsins höggvi ekki að rótum velferðarkerfisins og til að verja velferðina.Bókin Í yfirferð hagfræðings BSRB, Hilmars Ögmundssonar, á frumvarpinu, kom fram að forsendur frumvarpsins eru mjög hæpnar, svo ekki sé meira sagt.

Forseti afhendir borgarstjóra verđlaun

9.12.2010

Starfsmenntaverðlaun 2Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í BSRB húsinu í gær. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun. Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu. Verðlaunin eiga að vera verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði. Starfsmenntaráð veitti verðlaunin í síðasta sinn, en þau flytjast nú á hendur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. BSRB er aðili að Fræðslumiðstöðinni.

Hugmyndir BSRB kynntar sáttasemjara

8.12.2010

Hjá SáttaBSRB er til viðræðna um sameiginlegar viðræður um endurreisn íslensks efnahagslífs. Slíkar viðræður gætu þó aldrei orðið kjaraviðræður, þar sem sem hvert félag innan bandalagsins er með samningsréttinn og hefur ekki falið BSRB að gera kjarasamninga. Ef af sameiginlegum viðræðum aðila vinnumarkaðarins verður eiga þær ekki að hafa áhrif á kjaraviðræður á nokkurn hátt. Einstaka kjaraviðræður halda því  áfram hvað sem mögulegum sameiginlegum viðræðum líður. Formaður, varaformenn og framkvæmdarstjóri BSRB afhentu ríkissáttasemjara hugmyndir BSRB í morgun.

Opinberum starfsmönnum fćkkar um 6,3%

7.12.2010

Opiniberum starfsmönnum hefur fækkað um sem nemur 1.156 stöðugildum á tveimur árum. Í október 2008 voru stöðugildi í dagvinnu 18.394 hjá stofnunum ríkisins. Miðað við sama mánuð árið 2010 var fjöldi stöðugilda í dagvinnu 17.239. Þetta jafngildir 6,3% fækkun. Þetta er þveröfugt við það sem ýmsir, svo sem Samtök iðnaðarins, hafa haldið fram og sumir fréttamenn haft gagnrýnislaust eftir.

Frćđslunefnd óttast um framhaldsskólana

7.12.2010

Fræðslunefnd BSRB óttast að með fyrirhuguðum niðurskurði til framhaldsskóla geti fólk ekki tekið við öllum þeim sem í skólana sækja. Það leiði til aðstöðumunar á milli kynslóða, einhæfara náms og vinni gegn markmiðum menntamálaráðuneytisins um að auka menntunarstig þjóðarinnar. Þetta kemur fram í ályktun sem fræðslunefndin samþykkti í morgun.

Grein Elínar Bjargar í Fréttablađinu

7.12.2010

elinbjofElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar lýsir hún því hvernig forfeður okkar byggðu velferðarkerfið upp í gegnum bágindi og kröpp kjör. Framsýni þeirra varð til þess að í dag eigum við öflugt velferðarkerfi. Í niðurskurði þeim sem erfiðir tímar nú kalla á má ekki höggva að rótum þess velferðarkerfis.

Starfslokanámskeiđ á höfuđborgarsvćđinu

30.11.2010

Næsta starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu verður haldið dagana 31. janúar til 2. febrúar. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra.

Samstarf um framhaldsfrćđslu

25.11.2010

Samið um framhaldsfræðsluSamstarfsyfirlýsing um framhaldsfræðslu var undirrituð í gær í Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Árni Stefán Jónsson, fyrsti varaformaður, undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd BSRB, en að auki standa að henni mennta- og menningarmálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þessir aðilar munu efla samstarf sitt um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar vikrni í atvinnulífi og samfélaginu í heild.

Samiđ um tilfćrslu málefna fatlađra

24.11.2010

Samkomulag um faglegt og fjárhagslegt fyrirkomulag á tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna var undirritað í gær. Frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Við flutninginn eiga félagsmenn SFR þess kost að halda óbreyttri stéttarfélagsaðild, en nýir starfsmenn munu ganga inn í bæjarstarfsmannafélög.

Samdráttur 2010 en vöxtur 2011

23.11.2010

Í endurskoðaðri þjóðhagsspá 2010 til 2015, sem Hagstofa Íslands gaf út í dag, kemur fram að útlit sé fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 3% árið 2010, en vaxi um tæp 2% árið 2011. Þá segir að samdráttur í einkaneyslu virðist lítill 2010, en einkaneysla muni vaxa næstu árin. Hagstofan spáir því að fjárfesting taki að vaxa árið 2011 en sé enn lág í sögulegu samhengi. Þá muni samdráttur í samneyslu halda áfram næstu ár. Verðbólga hefur hjaðnað árið 2010 og verður við verðbólgumarkmið Seðlabankans í upphafi árs 2011, segir á vef Hagstofunnar.

BSRB leggur til nýtt leigukerfi

22.11.2010

Skrifstofa BSRB hefur unnið tillögur um að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi í anda almenna leigukerfisins í Danmörku. Tillögurnar hafa verið sendar efnahags- og skattanefnd og félags- og tryggingamálanefnda, sem hluti af umsögn um tvö lagafrumvörp. Þá hafa tillögurnar ferið kynntar stjórn BSRB auk þess sem Elín Björg Jónsdóttir formaður og Hilmar Ögmundsson hagfræðingur skrifuðu grein um þær í Fréttablaðið.

Fullorđinssfrćđslu stefnt í hćttu

17.11.2010

Ríkisstjórnin hefur vegið verulega að fullorðinsfræðslu og ef fyrirhugaður niðurskurður í þeim málaflokki verður að veruleika er hætta á því að námsbrautir verði lagðar af. Fræðslunefnd BSRB hefur samþykkt ályktun þar sem varað er við afleiðingum niðurskurðarins. Kannanir sýna að Íslendingar standa þeim þjóðum sem þeir bera sig reglulega við að baki menntunarlega séð og niðurskurðurinn vinnur gegn markmiðum um betur menntaða þjóð.

Styrkir Styrktarsjóđs BSRB hćkka

15.11.2010

Stjórn Styrktarsjóðs BSRB hefur ákveðið að hækka styrki verulega frá og með 1. janúar 2011. Er það gert til að koma til móts við félagsmenn vegna niðurskurðar og vaxandi atvinnuleysis. Svo dæmi sé tekið mun fæðingarstyrkur hækka úr 170.000 krónum í 220.000 krónur miðað við 100% starf. Miðast hækkunin við börn fædd eftir 1. janúar 2011, en samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir 2011 hyggst ríkisstjórnin skerða greiðslur til fæðingarorlofssjóðs.

Forstöđumenn ríkisstofnana skortir skilvirka mannauđsstjórnun

12.11.2010

Stjórnarfundur_nóv_2010Stjórn BSRB samþykkti rétt í þessu ályktun vegna niðurstaðna könnunar á meðal forstöðumanna ríkisstofnana. Í könnuninni kemur fram að aðeins um helmingur forstöðumanna lætur fara fram reglulegt mat á frammistöðu starfsmanna. Þá telur aðeins lítill hluti þeirra styrk sinn liggja í mannauðsstjórnun. Ljóst er að slíkt þarf að breytast eigi að ná fram skilvirkari ríkisrekstri.

Ráđherra dragi niđurskurđarhugmyndir til baka

12.11.2010

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja (STFS) skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þetta var samþykkt á fundi félagsins í gær. Í ályktuninni segir að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé einn af hornsteinum að góðum búsetuskilyrðum á svæðinu. Hugmyndir heilbrigðisráðherra þýði uppsagnir á hátt á 80 starfsmönnum, flest konum. Það sé ekki viðeigandi á svæði þar sem mesta atvinnuleysi sé fyrir á landinu.

Međmćlafundur á Austurvelli klukkan 16

11.11.2010

Í dag kl. 16.00 munu hollvinir heilbrigðisþjónustunnar á landinu öllu sameinast um friðsamlegan meðmælafund á Austurvelli. Hollvinir Heilbrigðisstofnanna á Suðurlandi fóru af stað með undirskriftasöfnun til stuðnings heilbrigðisþjónustunni á Suðurlandi og munu stýra fundinu. Hollvinir annarra heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustunnar í heild sinni ákváðu að slást í för með sunnlendingum. Á fundinum munu fulltrúar hollvina heilbrigðisstofnana um allt land afhenda heilbrigðisráðherra undirskriftarlista til stuðnings heilbrigðisþjónustunni.

Fjármálaráđherra tekur viđ yfirlýsingu

10.11.2010

G20Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tók við yfirlýsingu Alþjóða verkalýðshreyfingarinnar (Global Unions) á skrifstofu BSRB í morgun. Ályktunin verður send fundi G20 ríkjanna, sem hefst í Seoul á morgun. Þar er kallað eftir því að komið sé á fót sanngjarnara skattkerfi, fjárfest sé í menntun og starfsnámi og öflugri almannaþjónustu sé haldið úti.

Haraldur endurkjörinn hjá STH

8.11.2010

Haraldur Eggertsson var endurkjörinn formaður stjórnar Starfsmannafélags Hafnarfjarðar (STH) á aðalfundi 11. október, þegar ný stjórn var kjörin. Á stjórnarfundi 3. nóvember skipti stjórnin með sér verkum á eftirfarandi hátt:

Kíkt í Kópavog og Mosfellsbć

8.11.2010

Elín Björg Jónsdottir, formaður BSRB, og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri halda áfram heimsóknum sínum til aðildarfélaga BSRB. Þriðjudaginn 2. nóvember lá leið þeirra til Kópavogs, þar sem Starfsmannafélag Kópavogs var heimsótt, og að því loknu í heimsókn til Starfsmannafélags Mosfellsbæjar.

Réttur til atvinnuleysisbóta og vinnumarkađsađgerđir

5.11.2010

Síðasti skráningardagur á námskeiðið Réttur til atvinnuleysisbóta go vinnumarkaðsaðgerðir er á mánudaginn, 8. nóvember. Á námskeiðinu verður leitast við að gefa yfirsýn yfir þann hugmyndagrunn sem lög um upplýsingaskyldu og samráð í fyrirtækjum, hópuppsagnir, atvinnuleysistryggingar, aðilaskipti að fyrirtækjum og gjaldþrot  byggja á og framkvæmd laganna.

Starfsmenntaverđlaun

2.11.2010

Starfsmenntaverðlaun 2010Starfsmenntaráð hefur undanfarin ár staðið fyrir veitingu Starfsmenntaverðlauna. Nú hefur Starfsmenntaráð verið lagt niður og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falin umsjón með Starfsmenntaverðlaununum árið 2010.   Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.  Tilgangur þeirra er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu.  Verðlaunin eiga að vera verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði.

BSRB međ jafnt kynjahlutfall í lífeyrissjóđum

28.10.2010

Vegna fréttar Morgunblaðsins um ójafnt kynjahlutfall fulltrúa stéttarfélaganna í stjórnum lífeyrissjóða, er rétt að taka það fram að BSRB hefur gætt þess að hafa þetta hlutfall jafnt. Af fimm aðalfulltrúum eru þrír karlar og tvær konur og til vara eru tvær konur og tveir karlar.

Myndir frá baráttudegi kvenna

26.10.2010

Kvennafrídagur_3Um 50 þúsund konur - og nokkrir karlar - gengu fylktu liði frá Hallgrímskirkju í gær og söfnuðust saman við Arnarhól. Tilefnið var baráttudagur kvenna og var leikurinn endurtekinn frá því árin 1975 og 2005. Konur um allt land lögðu niður störf klukkan 14.25, en þá lýkur þeirra vinnudegi, launalega séð, miðað við karla. BSRB hefur lagt ríka áherslu á að leiðrétta kynbundinn launamun.

Áfram stelpur! - Grein Elínar Bjargar

26.10.2010

elinbjofKynbundinn launamunur er meinsemd sem ekki á að sjást í siðuðu samfélagi. Það er engin afsökun til fyrir því að nú, 35 árum eftir að konur lögðu niður störf á kvennafrídaginn 1975 og sýndu þar með fram á mikilvægi sitt í þjóðlífinu, skuli sú meinsemd enn vera við lýði. Það að greiða mismunandi laun fyrir sömu störf eftir kynferði er einfaldlega mannréttindabrot og skammarblettur á íslensku þjóðfélagi. Ábyrgðin er okkar allra að bæta úr þessu, en sérstaklega verður að horfa til opinbera geirans. Það er ólíðandi að kjörnir fulltrúar láti undir hælinn leggjast að útrýma kynbundnum launamun og viðhalda með því mannréttindabrotum. Þá tíðkast það allt of víða að störf kvenna séu ekki metin til jafns á við störf karla

Kynjabókhald BSRB

25.10.2010

Jafnréttisnefnd BSRB hefur tekið saman kynjabókhald fyrir bandalagið og er það við hæfi að það sé gert opinbert á baráttudegi kvenna. Samkvæmt ályktun um jafnréttismál 42. þings BSRB er haldið var í október 2009 er eitt af hlutverkum BSRB að gæta þess og fylgja því eftir að gætt sé að mannréttindum. Hugtakið felur í sér að allir eiga rétt á að njóta mannréttinda án mismununar, eins og til að mynda vegna kynferðis, kynhneigðar, kynþáttar, litarháttar, aldurs, trúar, tungumáls, búsetu, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu, fötlunar eða efnahags.

Áhyggjur af vinnuálagi vegna samdráttar

25.10.2010

Trúnaðarmenn hjá KILI stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu hafa þungar áhyggjur af stórauknu vinnuálagi þar sem gengið sé á heilbrigða starfsánægju. Trúnaðarmennirnir funduðu á Akureyri á föstudag og lýstu yfir áhyggjum af þjónustustigi á stofnunum, vegna vaxandi álags.

Baráttudagur kvenna

25.10.2010

Kvennafrídagurinn_lítiðBaráttudagur kvenna er í dag og BSRB og önnur launamannasamtök kvetja félagsmenn aðildarfélaga sinna til virkrar þátttöku í viðburðum dagsins. Í sameiginlegri yfirlýsingu BSRB, ASÍ, BHM, KÍ og SSF segir að gæta verði að þeim jafnréttisáföngum sem unnist hafa svo þeir tapist ekki  á þeim erfiðleikatímum sem hófust í kjölfar efnahagshrunsins og ekki sér enn fyrir endann á.

Baráttudagur kvenna - Kvennafrí

22.10.2010

Sameiginleg yfirlýsing BSRB, ASÍ, BHM, KÍ og SSF:

 

Samtök launafólks óska konum á Íslandi til hamingju með afmæli Kvennafrídagsins 24. október. Þrjátíu og fimm ár eru nú liðin síðan þúsundir íslenskra kvenna lögðu niður störf og söfnuðust saman á fundum um land allt, hrópuðu: Áfram stelpur og sýndu þannig á táknrænan hátt hversu mikilvægt vinnuframlag þeirra er fyrir atvinnulífið og samfélagið. Samstaðan var algjör. Kvennafrídagurinn 24. október 1975 er og verður baráttudagur íslenskra kvenna, hann er einn mikilvægasti atburður íslenskrar kvennasögu og Íslandssögunnar.

Sjúkraliđar vinna sigur í Félagsdómi

22.10.2010

Félagsdómur hefur úrskurðað Sjúkraliðafélagi Íslands í vil í deilu félagsins við stjórnendur hjúkrunarheimilisins Garðvangs. Deilan snérist um akstur til og frá vinnu. Stjórnendur Garðvangs tilkynntu um að greiðslur vegna aksturs til og frá vinnu yrðu felldar niður, frá febrúar á þessu ári, í sparnaðarskyni. Sjúkraliðafélagið taldi það skýr brot á kjarasamningi og það hefur Félagsdómur nú staðfest.

Heimsóknum haldiđ áfram

22.10.2010

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri halda áfram heimsóknum sínum til aðildarfélaga BSRB. Með þeim gefst félögunum færi á að kynna starfsemi sína fyrir forystu BSRB, um leið og betra sambandi er komið á milli aðila.

Vonbrigđi vegna uppsagna hjá OR

21.10.2010

Starfsmannafélag Reykjavíkur hefur lýst yfir miklum vonbrigðum vegna hinna umfangsmiklu uppsagna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Í ályktun frá félaginu segir að aðrar leiðir hafi ekki verið kannaðar til hlítar, svo sem sala eigna, gjaldtaka og hagræðing í rekstri. Félagið hefur áhyggjur af því að starfsmenn sem hafa unnið dyggilega fyrir fyrirtækið í fjölda ára eigi margir hverjir erfitt með að komast inn á vinnumarkað í því ástandi sem nú ríkir.

Brautskráning trúnađarmanna

20.10.2010

Trúnaðarmenn_minniNíu trúnaðarmenn luku í gær sjötta og síðasta þrepi á trúnaðarmannanámskeiði BSRB og Fræðsluskóla alþýðu. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri færðu útskriftarnemunum blóm í tilefni dagins. Trúnaðarmannanámið er í fimm þriggja daga námskeiðum og einu tveggja daga og er metið til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Ekki eru fyrirhuguð frekari trúnaðarmannanámskeið á þessu ári.

Vinnuverndarvikan 2010

19.10.2010

Vinnuverndarvikan 2010 verður haldin dagana 25. - 29. október, en hún er árlegur viðburður í öllum löndum Evrópu. Að þessu sinni verður sjónum atvinnurekenda og starfsmanna beint að mikilvægi þess að huga vel að öllu skipulagi og framkvæmd verka við viðhaldsvinnu. Til að vekja athygli og umræðu um öryggi við slíka vinnu hefur Vinnueftirlitið gefið út sérstakan bækling þar sem fjallað er um öryggi við viðhaldsvinnu.

Ađalfundur BSRB vill lagabreytingu

18.10.2010

Aðalfundur BSRB ítrekaði afstöðu bandalagsins gegn því að starfsmenn yrðu þvingaðir til að skipta um stéttarfélög þegar verkefni flytjast á milli ríkis og sveitarfélaga. Bandalagið telur að starfsmennirnir eigi að fá að velja um hvort þeir tilheyra stéttarfélögum bæjar- eða ríkisstarfsmanna.

Ríkisstjórnin vegur ađ velferđinni

15.10.2010

Aðalfundur BSRB telur að tillögur ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í velferðarkerfinu vegi að því samfélagi sem gengnar kynslóðir hafa byggt upp. Velferðarkerfið er hornsteinn samfélagsins og Ísland getur ekki kennt sig við norræna velferð, nái tillögurnar fram að ganga. Í ályktun fundarins eru kjörnir fulltrúra minntir á ábyrgð sína, hvort heldur sem er í sveitarstjórnum eða á Alþingi.

Velferđarkerfiđ mildar áhrif kreppunnar

15.10.2010

Stefán_minniStefán Ólafsson prófessor segir að öflugt velferðarkerfi hafi valdið því að kreppan hitti Íslendinga ekki eins illa fyrir og margar aðrar þjóðir. Velferðarkerfið muni þannig nýtast til að milda höggið sem efnahagshrunið hafði í för með sér. Stefán hélt erindi á aðalfundi BSRB sem stendur nú yfir. Þar sýndi hann tölulegar staðreyndir um að lífskjör fólks eru best þar sem velferðarkerfið er sterkast, til að mynda á Norðurlöndunum.

Ađalfundur BSRB á morgun

14.10.2010

Aðalfundur BSRB hefst klukkan 10 á morgun. Stefán Ólafsson prófessor heldur erindi um mikilvægi velferðarríkisins, en hann hefur safnað saman gögnum um lífskjör í hinum ýmsu þjóðfélögum víða um heim og bent á mikilvægi velferðarkerfisins þegar kemur að lífshamingju fólks. Í ljósi hugmynda ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í velferðarkerfinu og komandi kjarasamninga, er ekki úr vegi að beina sjónum að því hvað það er sem gerir Ísland að velferðarríki.

Sjúkraliđar semja viđ ríkiđ

14.10.2010

Fulltrúar Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins undirrituðu kjarasamninga á fimmta tímanum í dag. Samningurinn gildir til 1. desember næstkomandi. Sjúkraliðar hafa verið með lausa samninga frá í apríl 2009 og þrátt fyrir marga fundi og mikla vinnu náðust samningar við samninganefnd ríkisins ekki fyrr en í dag. Samningurinn verður kynntur á fundi í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, næstkomandi mánudag, 18. október, klukkan 16. Fundurinn verður sendur út í alla landsfjórðunga.

Samflot gerir viđrćđuáćtlun

14.10.2010

Samkomulag hefur náðst um viðræðuáætlun fyrir kjarasamninga á milli Samflots bæjarstarfsmannafélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Markmið áætlunarinnar er að endurnýja kjarasamninga þannig að þeir taki við af þeim sem renna út 30. nóvember. Náist það ekki verður staða viðræðnanna metin með tilliti til þess hvort þeim verði fram haldið á grundvellri endurskoðaðrar viðræðuáætlunar, eða vísað til ríkissáttasemjara. Hér má sjá áætlunina.

Mikilvćgi velferđarríkisins á ađalfundi BSRB

12.10.2010

Stefán Ólafsson prófessor mun halda erindi á aðalfundi BSRB á föstudag. Stefán mun þar fjalla um mikilvægi velferðarríkisins, en hann hefur safnað saman gögnum um lífskjör í hinum ýmsu þjóðfélögum víða um heim og bent á mikilvægi velferðarkerfisins þegar kemur að lífshamingju fólks. Í ljósi hugmynda ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í velferðarkerfinu og komandi kjarasamninga, er ekki úr vegi að beina sjónum að því hvað það er sem gerir Ísland að velferðarríki.

Enn vegiđ ađ kvennastörfum

8.10.2010

Stjórn BSRB varar við þeim gríðarlega niðurskurði sem áætlaður er í heilbrigðiskerfinu. Með honum er öryggi íbúa á viðkomandi landsvæðum stofnað í hættu og ljóst er að fjöldi manns mun missa vinnuna. Þá er ámælisvert að ríkisstjórnin skeri niður í hefðbundnum kvennastéttum og er það trauðla í takt við áherslur hennar sjálfrar um kynjaða hagstjórn.

Hlífum láglaunafjölskyldum en hćkkum fjármagnstekjuskatt

5.10.2010

Stjórn BSRB leggur til að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður í 23%, í stað 20% líkt og lagt er til í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011. Með því skapast auknar tekjur og svigrúm til þess að láta af fyrirhugaðri skerðingu til fæðingarorlofssjóðs, á barnabótum og vaxtabótum.

Samflot fagnar flutningi málefna fatlađra

1.10.2010

Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga við gerð kjarasamninga við ríki og sveitarfélög, lýsa yfir ánægju sinni með flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Þau samþykktu ályktun þess efnis á aðalfundi sínum á Núpi í Dýrafirði í dag. Þá fagnar Samflot þeirri fjölgun bæjarstarfsmanna sem flutningurinn mun hafa í för með sér.

Verkalýđshreyfingin mótmćlir í Evrópu

1.10.2010

Verkalýðshreyfingin í Evrópu stóð fyrir umfangsmiklum mótmælum um alla álfuna á miðvikudag. Fjölmennust voru mótmælin í Brussel, en um 100 þúsund manns gengu um götur borgarinnar. Tilefnið var áhyggjur af harkalegum niðurskurði hins opinbera.

Kjölur styđur SFR

29.9.2010

Stjórn Kjalar stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu hefur lýst yfir fullum stuðningi við SFR stéttarfélag í almannaþjónustu, í deilum þess við Samband íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild. Sambandið krefst þess að starfsmenn sem vinna að málefnum fatlaðra færist úr SFR í bæjarstarfsmannafélögin, þegar málaflokkurinn flyst frá ríki til sveitarfélaga, en SFR hefur haldið á lofti kröfum um félagafrelsi.

Heimsókn frá Noregi

28.9.2010

Norðmenn_1_lítilFélagar úr Fagforbundet Nordland kíktu í heimsókn á Grettisgötuna í gær og fengu kynningu á BSRB, ASÍ og fræðslu um efnahagsástandið á Íslandi. Um er að ræða félaga úr Nordlands-deild Fagforbundet,en það er stærsta verkalýðsfélag Noregs með rúmlega 310 þúsund meðlimi. Segja má að um sé að ræða samtök sem jafngildi bæði BSRB og ASÍ hér á landi.

Hver samningseining sér

24.9.2010

Á fundi samningseininga BSRB í dag var ákveðið að hvert félag, eða samningseining, gerði sjálft viðræðuáætlun við sína viðsemjendur vegna komandi kjarasamninga. Gert er ráð fyrir að texti þeirra verði samræmdur. Réttindamál, svo sem lífeyrismál, verða hins vegar á höndum BSRB. Kjarasamningar eru lausir frá og með 30. nóvember.

Samiđ um upplýsingagjöf

24.9.2010

Samkomulag um upplýsingar_lítilSamkomulag um umgjörð upplýsingagjafar frá ríki til heildarsamtaka ríkisstarfsmanna var undirritað í dag. Samkomulagið er liður í Framkvæmdaáætlun kjarasamninga, en samkvæmt því verður upplýsingagjöfin milli heildarsamtaka ríkisstarfsmanna og aðildarfélaga þeirra samræmd. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, undirritaði samkomulagið, ásamt þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur formanns BHM og Elnu Katrínu Jónsdóttur, varaformanni Kennarasambands Íslands. Gunnar Björnsson og Sverrir Jónsson skrifuðu undir fyrir hönd fjármálaráðherra.

Heimsókn í Grundarfjörđ

23.9.2010

Snæ og Dal_lítilElín Björg Jónsdóttir formaður og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri lögðu land undir fót í síðustu viku og sóttu Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu heim. Skrifstofur félagsins eru í Grundarfirði og þar tók Helga Hafsteinsdóttir formaður á móti þeim, ásamt fleirum úr stjórninni.

Stéttarfélagsađild verđi óţvinguđ

21.9.2010

Vegna deilna SFR og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild þeirra starfsmanna sem vinna að málefnum fatlaðra, sem færast nú yfir til sveitarfélaga, er ítrekað að afstaða BSRB er að starfsmenn geti valið um hvort þeir verði í áfram í SFR eða viðkomandi bæjarstarfsmannafélagi. Í bréfi sem Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, sendi stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga segir:

Trúnađarmannaráđ SFR krefst ţess ađ starfsmenn haldi stéttarfélagaađild

17.9.2010

Trúnaðarmannaráð SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, mótmælir kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. Fyrsti trúnaðarmannafundur haustsins samþykkti ályktun þess efnis.

Stjórn BSRB kallar eftir rannsókn á einkavćđingu bankanna

15.9.2010

Stjórn BSRB kallar eftir því að einkavæðing bankanna verði rannsökuð. Rannsóknarnefnd Alþingis komst að því í skýrslu sinni að víða hefði pottur verið brotinn hvað hana varðar og hinu sama má finna stað í skýrslu þingmannanefndar. Hrunið, aðdragandi þess og afleiðingar, verður ekki að fullu gert upp fyrr en það ferli hefur verið kannað í þaula. Þar skipta lög um fyrningu ekki öllu; rannsóknin ein og sér mun stuðla að frekari sátt í samfélaginu. Það að horfast í augu við mistök fortíðarinnar gerir okkur betur kleift að skapa réttlátt samfélag til framtíðar. BSRB hvetur því Alþingi Íslendinga til að samþykkja óháða rannsókn á einkavæðingu bankanna.

Sjúkraliđar einhuga

13.9.2010

Sjúkraliðar samþykktu í dag að krefjast leiðréttingar launa sinna strax. Haldinn var fjölmennur fundur í BSRB húsinu við Grettisgötu sem samþykkti samhljóða ályktun þess efnis. Fundurinn var sendur út í fjarfundarbúnaði víða um land, en því miður urðu tæknilegir örðugleikar á útsendingu til Ísfafjarðar. Forysta félagsins hyggur á ferðalag vestur og til Vestmannaeyja.

Launabil eykst á milli opinberra og almenna starfsmanna

13.9.2010

Launabil milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði í sameiginlegum starfsmönnum hefur aukist og laun eru nú 18% hærri á hinum almenna vinnumarkaði. Þetta kemur fram í launakönnun SFR.

Krefjast ţess ađ mannréttindi séu virt

6.9.2010

Stjórn FSR, félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Óvissa ríkir um starfsöryggi og stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Frá þessu segir á heimasíðu SFR  Vésteinn Valgarðsson, formaður FSR, sagði í samtali við Fréttablaðið að félagsmenn vilji tilheyra SFR, stéttarfélagi í almannaþjónustu, vegna lífeyrissjóðsmála sem og til að missa ekki aðgang að styrktar- og símenntunarsjóðum BSRB.

Maíkórinn hefur upp raust sína ađ loknu sumarfríi

6.9.2010

 

Maíkórinn er blandaður kór BSRB félaga sem tók formlega til starfa haustið 2009. Í vetur mun kórinn æfa á mánudögum kl. 19:30-21:30 á Grettisgötu 89. Lagaval er fjölbreytt og andinn góður. Kórinn getur bætt í allar raddir og þá sérstaklega karlaröddum, en í kórnum er bæði vant söngfólk og óvant. Allir velkomnir. Stjórnandi er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari Hörður Bragason. Nánari upplýsingar hjá svavaki@simnet.is, s. 867 7882.

Borgarafundur um fátćkt á Íslandi

3.9.2010

Miðvikudaginn 8. september verður haldinn borgarafundur í Ráðhúsi Reykjavíkur um fátækt á Íslandi. Formaður BSRB verður í pallborði, ásamt ráðherrum, forseta ASÍ og fleirum. Frummælendur verða talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda, félagsbótaþega og láglaunaþega, ásamt fulltrúum hjálparsamtaka. Fundurinn hefst klukkan 20.

Nánar um fundinn hér.

Úttekt á lífeyrissjóđum hafin

2.9.2010

Úttektarnefnd Landssamtaka lífeyrissjóðanna er tekin til starfa, en henni er ætlað að "gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008," líkt og segir í samþykkt um nefndina. Um þriggja manna nefnd er að ræða og tilnefndi ríkissáttasemjari alla í nefndina, að ósk stjórnar landssamtakanna.

Samţykktu samning naumlega

1.9.2010

Félagar í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga í almennri atkvæðagreiðslu. Naumt var á munum, en alls sögðu 109 já en 100 nei. Alls voru 237 á kjörskrá en atkvæði greiddu 213, eða 90%. Auðir seðlar og ógildir voru 4. Samningurinn hefur því verið samþykktur og frekari aðgerðum aflýst, en allsherjarverkfall hefði verið boðað í upphafi þessa mánaðar hefðu samningar ekki náðst. Samningurinn gildir til 30. nóvember.

Ályktun stjórnar BSRB vegna gjaldskrárhćkkunar OR

30.8.2010

Stjórn BSRB mótmælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur. Þær hafa áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa. Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélaginu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjaldskrárhækkanir.

Norskir félagar í heimsókn

26.8.2010

Norge_minniHópur Norðmanna leit í heimsókn á skrifstofur BSRB í morgun og fékk þar leiðsögn um starfsemina. Um er að ræða félaga í Norsk Tjenestemannslag, fagsamband um 48 þúsund opinberra starfsmanna. Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri kynnti hlutverk og starfsemi BSRB fyrir gestunum og fór síðan yfir aðdraganda og eftirmála efnahagshrunsins, en það er nokkuð sem erlendir gestir hafa mikinn áhuga á. Icesave-deilan var Norðmönnunum nokkuð hugleikin, enda er lán þarlendra stjórnvalda til Íslendinga tengt lausnum á því máli.

Enn frekari einkavćđing í Bretlandi

25.8.2010

Stjórn Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins í Bretlandi hefur uppi áform um mikinn niðurskurð í opinbera kerfinu. Allt í allt er ætlunin að segja upp hálfri milljón opinberra starfsmanna á næstu fimm árum, eða um 2.000 á viku, að meðaltali. Frá þessu segir í View, málgagni Public and Commercial Services Union (PCS) í Bretlandi.

Ekkert nýtt hjá sjúkraliđum

24.8.2010

Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á fundi Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) og fulltrúa ríkisins hjá ríkissáttasemjara í morgun. Fundi hefur verið slitið og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ, sagði í samtali við mbl.is að engar breytingar væru á viðhorfi fulltrúa ríkisins. "Okkar kröfur eru svo óverulegar að það er ekki hægt að slá af þeim. Þetta eru bara leiðréttingarkröfur. Við erum ekki að krefjast prósentuhækkunar eða neins slíks, heldur viljum við bara að það verði sest niður og skoðað hvað þurfi leiðrétta og það þá gert. En það segjast þeir ekki geta."

Fjölbreytt frambođ hjá Starfsmennt

24.8.2010

Starfsmennt býður upp á fjölbreytt framboð námsleiða í haust, sem endranær, líkt og sjá má í veffréttabréfi fræðslusetursins fyrir ágúst. Opinberum starfsmönnum standa nú til boða starfstengdar námsleiðir eða þverfagleg námskeið sem efla almenna starfshæfni. Þá geta atvinnuleitendur og þeir sem horfa fram á breyttar aðstæður á vinnustað sótt frábær súpunámskeið þar sem færustu sérfræðingar kenna eða fengið viðtal við náms- og starfsráðgjafa. Forsvarsmenn stofnana geta einnig pantað farandfyrirlestra inn á vinnustaði eða sótt um Ráðgjafa að láni til að vinna að afmörkuðum mannauðsverkefnum. Öll þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum að kostnaðarlausu og þeirra mannauðssjóða sem gert hafa sérstaka samninga fyrir sitt fólk en einnig opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld.

Feđrum í orlofi fćkkar

23.8.2010

Skerðingar á hámarksgreiðslum úr fæðingarorlofssjóði hafa valdið því að körlum sem taka fæðingarorlof hefur fækkað. Stjórn BSRB ályktaði gegn skerðingunni á sínum tíma, sem og framkvæmdarstjórn Sjúkraliðafélags Íslands og stjórn Kjalar. Morgunblaðið segir frá því að í ár stefni í að einungis 9.795 feður taki fæðingarorlof, en þeir voru 10.640 í fyrra og 10.362 árið áður. Konum sem taka sér fæðingarorlof hefur hins vegar fjölgað. Frá árinu 2008 hafa hámarksgreiðslur verið skertar í þrígang og lækkað úr 535.700 krónum á mánuði, í lok árs 2008, í 300 þúsund krónur nú.

Trúnađarmannanámskeiđ í Grundarfirđi

23.8.2010

Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiðinu Lestur launaseðla og launaútreikningar hjá Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellssýslu. Það er fyrst og fremst ætlað trúnaðarmönnum og fá þeir þjálfun í að lesa úr launaseðlum, þekkja helstu reiknitölur, reglur um launaseðla og fleira. Það fer fram 23. september frá 10 til 17. Áhugasömum er bent á að skrá sig hjá Helgu Hafsteinsdóttur formanni SDS, en það er einnig opið öðrum félögum innan BSRB.

Slökkviliđs- og sjúkraflutningarmenn semja

20.8.2010

Samningar hafa náðst á milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningarmanna og launanefndar sveitarfélaga. Þeir voru undirritaðir í húsnæði Ríkissáttarsemjara rétt fyrir klukkan 17. Samningurinn verður borinn undir félagsmenn 31. ágúst, en þeir hafa verið samningslausir í um eitt ár.

Launafólk ber byrđarnar

20.8.2010

elinbjofsvElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifaði grein í Fréttablaðið í dag, í tilefni stýrivaxtalækkunar. Þar bendir hún á að sá árangur sem þó hefur náðst í efnahagsmálum sé fyrst og fremst launafólkið að þakka sem borið hafi þungar byrðar. Ekki sé hægt að ganga að því sem vísu að það bæti á sig endalausum byrðum.

Kynbundinn launaumunur minnkar hjá Reykjavíkurborg

18.8.2010

Enn er kynbundinn launamunur til staðar hjá Reykjavíkurborg, þó úr honum hafi dregið á síðustu tíu árum. Konur eru að meðaltali með 98% af dagvinnulaunum karla meðal starfsfólks í fullu starfi. Munurinn er hins vegar mun meiri þegar heildarlaunin eru skoðuð, en konur eru aðeins með 87% af heildarlaunum karla í fullu starfi. Karlar fá hærri akstursgreiðslur og meiri yfirvinnu greidda. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg.

Fundur hjá ríkissáttasemjara

17.8.2010

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefnd Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefnd svetarfélaga á sinn fund á morgun, miðvikudaginn 18. ágúst, klukkan 14. Yfirvinnubann er nú í gangi hjá LSS og þrjár verkfallslotur hafa staðið yfir í sumar. Stjórn BSRB sendi frá sér ályktun í síðustu viku í kjölfar deilunnar.

Efla ţarf leigumarkađ

17.8.2010

BSRB telur að efla þurfi almennan leigumarkað hér á landi og hefur komið þeim athugasemdum sínum á framfæri við félags- og tryggingamálanefnd Alþingis í umsögn við frumvap til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Bandalagið styður eindregið framgang frumvarpsins og gerir engar efnislegar athugasemdir við það.

Hćgir á fjölgun örorkuţega

17.8.2010

Örorkuþegum hefur fjölgað mun minna á þessu ári en undanfarin ár. Örorkuþegar voru 15.842 1. júlí síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 165 frá í ársbyrjun þegar þeir voru 15.677. Á árunum 2004 til 2009 fjölgaði þeim hins vegar um 500 til 1.300 árlega og er því um að ræða verulega breytingu. SFR greinir frá þessu á heimasíðu sinni. Þar kemur einnig fram að mun færri fá úrskurð um 75% örorku á fyrri hluta þessa árs en á sama tíma í fyrra.

BSRB gefur umsögn um búvörufrumarp

16.8.2010

BSRB tekur ekki afstöðu til þess hvort rétt sé að viðhalda greiðslumarkskerfi í mjólkurframleiðslu hér á landi, en telur að á meðan það er við lýði sé rétt að fara eftir þeim reglum sem um það gilda. Þetta kemur fram í umsögn sem BSRB hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðsu, verðlagningu og sölu á búvörum.

Stuđningur viđ LSS

16.8.2010

Bæði og ASÍ hafa sent frá sér yfirlýsingar til stuðnings aðgerðum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna (LSS). Stjórn BSRB ályktaði um málið í síðustu viku. Öll hvetja félögin til þess að löglega boðaðar aðgerðir LSS séu virtar.

Komiđ í veg fyrir verkfallsbrot

13.8.2010

Verkfallsverðir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) komu í veg fyrir að flugvél Flugfélags Íslands tæki í loftið á Reykjavíkurflugvelli í dag. Leiðin lá til Húsavíkur, en nú og hefur öllu flugi þangað verið aflýst.

Sjúkraliđar til ríkissáttasemjara

13.8.2010

Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara þriðjudaginn 24. ágúst í viðræðum Sjúkraliðafélags Íslands og viðsemjenda þess. Fundurinn verður haldinn kl. 10:30.

Nýr starfsmađur

12.8.2010

Kolbeinn Óttarsson ProppéKolbeinn Óttarsson Proppé hefur verið ráðinn á skrifstofu BSRB. Kolbeinn gegnir starfi kynningarfulltrúa og sér um kynningarmál bandalagsins. Hann sér því um öll samskipti við fjölmiðla og hefur umsjón með síðu BSRB, auk annarra verkefna.

Ályktun stjórnar BSRB í tilefni kjaradeilu LSS

11.8.2010

Stjórn BSRB vill árétta að verkfallsréttur stéttarfélaga er neyðarréttur þeirra og því mikilvægt að hann sé virtur af öllum sem hlut eiga að máli. Þennan rétt ber verkalýðshreyfingunni að verja og fara með af skynsemi og samkvæmt lögum. 

Skráning á trúnađarmannanámskeiđ í haust hafin

29.6.2010

Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 1. þrep er dagana 14. til 16. september. 2. þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til 6. þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB hér . Trúnaðarmenn skrái sig í samráði við sitt stéttarfélag.

LSS samţykkti verkfallsbođun

29.6.2010

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti að boða til verkfalls þeirra félagsmanna sem starfa hjá þeim sveitarfélögum sem Launanefnd sveitarfélaga fer með samningsumboð fyrir. Mjög góð þátttaka var í atkvæðagreiðslunni og var boðun verkfalls samþykkt með 95% greiddra atkvæða.

Félag ráđgjafa og stuđningsfulltrúa mótmćla launafrystingu

21.6.2010

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir harðlega hugmyndum félagsmálaráðherra um launafrystingu opinberra starfsmanna. Ráðgjafar og stuðningsfulltrúar eru fjölmenn stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og launin óásættanlega lág fyrir, þótt þau séu ekki fryst.

Kjarasamningur SFR og Isavia samţykktur

15.6.2010

Kjarasamningur SFR og Isavia ohf sem undirritaður var 3. júní síðastliðinn hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 44. Atkvæði greiddu 31 eða 70.4%. Af þeim sem kusu sögðu 30 eða 97% já, nei sagði 1 eða 3% og enginn skilaði auðu.

Sjúkraliđar krefjast ţess ađ launafrystingu verđi ţegar aflétt

10.6.2010

"Með yfirlýsingu sinni lýsir félagsmálaráðherra opinberum kvennastéttum stríð á hendur og gengur gegn þeim mikla samstarfsvilja sem sýndur hefur verið. Sjúkraliðafélag Íslands hefur verið með lausa samninga í 14 mánuði án þess að nokkuð hafi þokast í samningsátt. Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélagsins krefst þess að sú launafrysting sem verið hefur verði aflétt og nú þegar verði samið við félagið," segir m.a. í ályktun frá fundi kjaramálanefndar Sjúkraliðafélags Íslands í gær.

Hugmyndir um frystingu launa fráleitar

9.6.2010

Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB sagði í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa opinberra starfsmanna til ársins 2013 væru fráleitar. Þá sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB að tillaga félagsmálaráðherra væri stríðsyfirlýsing.

FOSVest til viđrćđna viđ FOSS, STH og SDS um sameiningu

8.6.2010

Aðalfundur FOSVest samþykkti að ganga til viðræðna við FOSS, STH og SDS um sameiningu félaganna. Náist ásættanleg samstaða verður samningurinn borinn undir aðalfund félagsins.

SFR semur viđ Isavia ohf

4.6.2010

SFR og Isavia ohf skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöldi. Samningaviðræður hafa staðið yfir alllengi. Á tímabilinu urðu miklar breytingar á rekstrarumhverfi viðsemjenda þar sem meðal annars Keflavíkurflugvöllur ohf og Flugstoðir ohf runnu inn í nýtt félag, Isavia ohf.

Síđasta úthlutun úr Starfsmenntasjóđi

3.6.2010

starfsmingisvuntaStarfsmenntaráð styrkti 48 verkefni á árinu 2009 um rúmar 60 milljónir króna samtals. Þetta kom fram á opnum fundi Starfsmenntaráðs í BSRB húsinu í morgun. Á fundinum var starf Starfsmenntaráðs sl. ár kynnt og úthlutanir úr Starfsmenntasjóði fyrir árið 2009. Einnig voru kynntar áherslur Starfsmenntaráðs við úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2010, en það er síðasta úthlutun úr sjónum. Til úthlutunar í ár eru 55 milljónir króna.

Helgarleiga í Stóruskógum

2.6.2010

Nokkur hús eru laus í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi og er hægt að leigja þau yfir helgi þótt komin sé sumartími. Um að gera að nýta sér þetta. Fyrstur kemur fyrstur fær. Orlofshúsin er hægt að leigja í gegnum bókunarvefinn hér á síðunni.

Fróđlegur og upplýsandi fundur um FA

2.6.2010

faadal1svuntaMjög fróðlegur og upplýsandi kynningarfundur um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var í gær, en 6. maí sl. varð BSRB aðili að Fræðslumiðstöðinni. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var stofnuð árið 2002 af ASÍ og SA og hefur starfað síðan 2003 á grunvelli þjónustusamnings við menntamálaráðuneytið. Aðild BSRB að Fræðslumiðstöðinni er í framhaldi af samþykkt laga um framhaldsfræðslu en í greinargerð með lögunum er lögð áhersla á að starfsemi Fræðslumiðstöðvarinnar nái einnig yfir opinbera vinnumarkaðinn.

Úthlutanir úr Starfsmenntasjóđi kynntar

1.6.2010

Starfsmenntarad2010-junisvuStarfsmenntaráð stendur fyrir opnum fundi í húsakynnum BSRB fimmtudaginn 3. júní kl. 9:15 - 10:30. Á fundinum verður tilkynnt um úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2009 og áherslur Starfsmenntaráðs við úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2010. Sent verður með fjarfundabúnaði út til símenntunarmiðstöðva á landinu. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í fundinum.

FFR samţykkti kjarasamning viđ Isavia

27.5.2010

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkti kjarasamning við Isavia / SA sem undirritaður var 7. maí sl. Já sögðu 106 eða 63,10%, nei sögðu 53 eða 31,55% og 9 skiluðu auðu eða 5,36%.

Laus hús í Stóruskógum og Munađarnesi

26.5.2010

Hægt er að leigja hús yfir næstu helgi í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi þótt komin sé sumartími. Um að gera að nýta sér þetta enda spáin fyrir helgina mjög góð og allur gróður að springa út. Orlofshúsin er hægt að leigja í gegnum bókunarvefinn hér á síðunni. Fyrstur kemur fyrstur fær.

Viđrćđur um sameiningu STH, FOSS og SDS

26.5.2010

Stjórnir Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, Félags Opinberra Starfsmanna á Suðurlandi og Starfmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu ákváðu á sameiginlegum fundi fimmtudaginn 20. maí að fara í formlegar viðræður með það að markmiði að sameina félögin.

Kvennamál Snorra og stuđmússík á menningarhátíđ BSRB

25.5.2010

menningarh-2010svuntaÁ annað hundrað manns nutu tónlistar stuðboltanna í South River Band og upplesturs og frásagnar Óskars Guðmundsson af Snorra Sturlusyni á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi í veðurblíðunni laugardaginn 22. maí. Þá var opnuð sýning á málverkum Elfars Guðna Þórðarsonar í þjónustumiðstöðinni sem standa mun fram á haust

Fróđlegt erindi um bankahruniđ

21.5.2010

salvorhjabsrbGóður rómur var gerður að erindi Salvarar Nordal, Bankahrun og lærdómar, sem hún hélt í BSRB húsinu í morgun. Salvör Nordal er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta sannsóknarskýrslu Alþingis. Salvör kom víða við í erindi sínu og fjallaði m.a. um starfshætti innan bankanna, lagahyggju ábyrgð og traust.

Undrun og vonbrigđi međ sölu HS Orku

21.5.2010

"Stjórn BSRB lýsir furðu sinni og vonbrigðum  á  þeim þáttaskilum í íslensku samfélagi sem orðið hafa með sölu á þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins að fullu til erlends aðila," segir í ályktun stjórnarfundar BSRB sem samþykkt var í dag.

Bođuđum niđurskurđi í velferđarkerfinu mótmćlt

21.5.2010

BSRB telur að yfirlýsingar félagsmálaráðherra í síðustu viku um frekari niðurskurð á velferðarkerfinu gangi gegn anda stöðugleikasáttmálans brjóti þvert gegn fyrri yfirlýsingum ríkis­stjórnarinnar um að hún starfi í anda hins norræna velferðarkerfis. Þetta kemur fram í ályktun stjórnarfundar BSRB sem samþykkt var í morgun. 

FOSVest heimsótt

19.5.2010

fosvestsvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri bandalagsins heimsóttu stjórn Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum í gær og sátu stjórnarfund hjá þeim. Á fundinum var m.a. rætt um hlutverk BSRB og framtíðarstefnu bandalagsins og aðildarfélaga þess.

Menningarhátíđ BSRB 22. maí

19.5.2010

menningarhatid2010svuntaÁrleg menningarhátíð BSRB verður haldin í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi laugardaginn 22. maí kl.14. Á hátíðinni verður opnuð sýning á málverkum Elfars Guðna Þórðarsonar. Óskar Guðmundsson rithöfundur segir frá Snorra Sturlusyni og les úr bók sinni um Snorra og South River Band flytur tónlist. Aðgangur er ókeypis og að lokinni dagskrá eru veitingar í boði BSRB.

Bankahrun og lćrdómar

18.5.2010

salvörnordalBankahrun og lærdómar nefnist erindi sem Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands verður með á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 21. maí kl. 10.30. Salvör var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta sannsóknarskýrslu Alþingis.

Lífeyrisrétturinn órjúfanlegur hluti af heildarkjörum

17.5.2010

lsrlogo"Þegar rætt er um skuldbindingar ríkisins vegna B-deildar LSR má  ekki gleyma því að þá er einnig verið að tala um réttindi þess fólks sem starfað hefur í opinberri þjónustu á undanförnum áratugum. Lífeyrisrétturinn hefur verið órjúfanlegur hluti af heildarkjörum þeirra og launin hafa oft á tíðum verið lægri en ella vegna góðra lífeyrisréttinda. Skuldbindingar eða skuld ríkisins eru því áunnin réttindi tugþúsunda einstaklinga og þær eiga að koma til greiðslu á næstu áratugum. Að bera þetta saman við Icesave skuldina er vart sæmandi," segir m.a. í grein eftir Hauk Hafsteinsson framkvæmdastjóra LSR.

Niđurskurđi harđlega mótmćlt

17.5.2010

"Fundurinn krefst þess jafnframt að ríki og sveitarfélög standi  vörð um almannaþjónustuna og mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem átt hefur sér stað, hjá þessum aðilum undanfarna mánuði.  Víða eru stofnanir  orðnar svo undirmannaðar að komið er að þolmörkum bæði hvað varðar starfsfólk og þjónustuna sem veita á.  Þá er því mótmælt að niðurskurður undanfarinna mánaða,  skuli hafa komið harðast niður á þeim lægst launuðu," segir m.a. í ályktun frá aðalfundi Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi sem haldinn var 5. maí sl.

Alvöru samningsviđrćđur hefjist strax viđ SLFÍ

14.5.2010

Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands gerir þá kröfu til viðsemjenda sjúkraliða að  þeir sýni dug, þor og kjark og setjist  að samningaborðinu til alvöru samningaviðræðna um að kjör sjúkraliða verði leiðrétt. Bent er á að félagið hefur  verið með lausa kjarasamninga vel á annað ár, án þess að nokkuð hafi þokast í samningsátt. Þetta kemur m.a. fram í ályktunum sem 19. fulltrúaþíng SLFÍ sendi frá sér þriðjudaginn 11. maí. 

Kjaradeila TFÍ til Ríkissáttasemjara

11.5.2010

Samninganefnd Tollvarðafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við ríkið til Ríkissáttasemjara. Í frétt á heimasíðu TFÍ kemur fram að á undanförnum mánuðum hafi ekki verið að finna mikinn samningsvilja að hálfu SNR og því hafi deilan staðið í stað.

Umferđarstofa og Sýslumađurinn á Hvolsvelli voru stofnanir ársins

11.5.2010

Sigurvegarar í könnun SFR á Stofnun ársins voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar 7. maí sl. en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins.

FFR semur viđ ISAVIA ohf

7.5.2010

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins skrifaði í dag undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd ISAVIA ohf.  Samningaviðræður hafa tekið langan tíma, vegna flókinna aðstæðna. Taka þurfti til með allverulega samræmingu innan fyrirtækisins áður en hægt var að ganga frá launaliðum samningsins.

BSRB ađili ađ Frćđslumiđstöđ atvinnulífsins

6.5.2010

faundirskrsvuntaBSRB varð í dag aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samningur um það var undirritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í dag. Samninginn undirrituðu Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Inga Rún Ólafsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðrún Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.

Slökkviliđs- og sjúkraflutningamenn mótmćla

5.5.2010

slokkvararsvuntaUm 70 slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn söfnuðust saman fyrir utan skrifstofur Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30 í morgun til að mótmæla þeim seinagangi sem er í viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga, en samninganefnd LSS átti fund með LN kl. 10 í morgun.

Kynningarfundir fyrir sjóđfélaga LSR

4.5.2010

LSR_27svuntaLSR heldur kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 27. maí. Hægt er að velja um tvær tímasetningar kl. 8:30 -10:00 eða kl. 16:30 -18:00. Á fundunum verður fjallað um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Sinubruni í Munađarnesi

3.5.2010

sinamunsvuntaSinubruni varð í Munarnesi að kveldi 1. maí og mátti litlu muna að eldurinn bærist ekki í orlofshús á svæðinu. Eldurinn kviknaði vegna þess að börn höfðu farið óvarlega með eld og er brýnt að jafnt börn sem fullorðnir fari varlega með eld sérstaklega á þessum árstíma.

Niđurskurđurinn bitni ekki á grunnţjónustu samfélagsins

1.5.2010

ebjforsvunta
"Öflug opinber almannaþjónusta er aldrei eins mikilvæg eins og í því ástandi sem nú ríkir. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum áhrifum umfram það sem kreppan  gefur tilefni til.  BSRB krefst þess að tryggt verði  að aðgerðir til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunnþjónustu samfélagsins. Frá þeirri kröfu verður ekki hvikað," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB m.a. í ræðu sinni á mjög fjölmennum baráttufundi á Austurvelli í dag 1. maí.

Nýja hugsun - nýtt ţjóđfélag

1.5.2010

1maihafnkristinsvunta„Ójafnrétti kynjana er mein í íslensku samfélagi sem við viljum ekki hafa með okkur inn í framtíðina. Því verður að linna að litið sé á að þau störf er konur inna af hendi séu óæðri hefðbundnum karlastörfum. Við viljum ekki taka þetta mein með okkur inn í framtíðina. Við viljum nýja hugsun, við viljum nýtt þjóðfélag," sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands í ræðu sem hún hélt á baráttufundi í Hafnarfirði 1. maí.

1. maí alţjóđlegur baráttudagur verkalýđsins

1.5.2010

BSRBHeilsida1.mai300
Munið 1. maí kaffi í BSRB húsinu Grettisgötu 89 eftir útifundinn kl. 15.

Stöndum vörđ um samningsbundin réttindi

30.4.2010

BSRB, BHM og KÍ sendu í dag frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem mótmælt er aðför að lífeyrissjóðakerfi opinberra starfsmanna. Í yfirlýsingunni er undirstrikað að lögbundin og samningsbundin réttindi launafólks verða ekki af því tekin, enda er um réttindin samið á milli samningsaðila og sá samningur síðan festur í lög.

FÍF samţykkti kjarasamninginn

30.4.2010

Félag íslenskra flugumferðarstjóra samþykkti kjarasamning félagsins við Flugstoðir ohf og Keflavíkurflugvöll ohf. 57% þeirra sem tóku þátt sögðu há  og 43% nei. 75% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni.

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

30.4.2010

1.maí2010SkjáauglýsingsvuntÁ morgun 1. maí verða haldnar baráttusamkomur víða um land. Fjórir fulltrúar BSRB munu halda ræður á baráttufundum á alþjóðalegum baráttudegi verkalýðsins á morgun. Það eru Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB sem heldur ræðu á Austurvelli í Reykjavík, Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ sem heldur ræðu í Hafnarfirði, Þuríður Einarsdóttir formaður PFÍ sem heldur ræðu í Búðardal og Ólöf Hildur Gísladóttir starfsmaður FOS-Vest flytur ávarp í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Byggjum nýtt Ísland!

30.4.2010

1maiauglsvunta"Eldar loga á Íslandi, jafnt í náttúrunni sem hjá almenningi. Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna kynda nýja elda hjá þjóðinni. Þar er skjalfest hvernig þröngur hópur siðblindra einstaklinga fór ránshendi um þjóðarbúið án þess að stjórnvöld og eftirlitsaðilar gerðu neitt til að koma í veg fyrir það, þrátt fyrir viðvaranir. Þjóðin stendur frammi fyrir afleiðingum þeirrar hömlulausu trúar á einkaframtakið sem byrjað var að predika á tíunda áratug síðustu aldar og náði hámarki með einkavinavæðingu bankanna í byrjun þessarar aldar." Þannig hefst 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.

BSRB styrkir Lúđrasveit verkalýđsins

29.4.2010

ludraverkasvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB undirritaði í dag samning við Lúðrasveit verkalýðsins þar sem bandalagið styrkir lúðrasveitina um 400 þúsund krónur árlega næstu þrjú árin. Samningurinn gildir til ársloka 2012. Á móti mun Lúðrasveit verkalýðsins leika í 1. maí kaffi BSRB þessi þrjú ár auk þess sem bandalagið getur fengið sveitina til að leika við tvö önnur tilefni árlega án sérstakrar greiðslu.

BSRB tíđindi komin út

28.4.2010

1maibladbsrbsvunta1. maí blað BSRB er komið út. Því er dreift til allra félagsmanna BSRB. Blaðið er fjölbreytt að efni. Má þar nefna viðtal við Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB, umfjöllun um störfin sem mestu skila, viðtöl við félagsmenn, yfirheyrslur, umfjöllun um launamun kynjanna, viðtal við Ögmund Jónasson, vinnuverndarmál, umfjöllun um Virk og ýmislegt fleira.

Sendinefnd frá AGS á fundi hjá BSRB

27.4.2010

agssvuntaSendinefnd frá AGS átti fund með fulltrúum BSRB og BHM í BSRB húsinu i dag. Auk fulltrúa þessara samtaka sátu fundinn fulltrúar úr fjármálaráðuneytinu. Á fundinum var fjallað um stefnumótun í skattamálum auk þess sem sendinefndinni voru kynntar ályktanir 42. þings BSRB um AGS, efnahagsmál og opinbera almannaþjónustu.

FÍF undirritađi kjarasamning viđ SA

25.4.2010

Samninganefnd Félags íslenskra flugumferðarstjóra undirritaði á föstudag  kjarasamning við SA, fyrir hönd Flugstoða ohf og Keflavíkurflugvallar ohf. Einnig undirritaði FÍF kjarasamning við samninganefnd ríkisins fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands.

NOFS lýsir yfir samstöđu međ íslensku ţjóđinni vegna gossins

21.4.2010

NOFS, sem er samráðsvettvangur samtaka opinberra starfsmanna á Norðurlöndum og BSRB er aðili að, hefur lýst yfir samstöðu með BSRB og íslensku þjóðinni vegna afleiðinga gossins í Eyjafjallajökli. Fram kemur í yfirlýsingu NOFS að þeir hafa mun meiri áhyggjur af afleiðingum þess á nánasta umhverfi eldfjallsins en flugsamgöngur í Evrópu.

LSS afli sér verkfallsheimildar

20.4.2010

Ársþing Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem haldið var 16. og 17. apríl lýsti yfir fullum stuðningi við að kjararáð félagsins afli sér verkfallsheimildar. 

Almannaţjónustan sé tryggđ viđ sameiningu ríkisstofnana

16.4.2010

"BSRB krefst þess að í allri umræðu og ákvarðanatöku um sameiningu og fækkun opinberra stofnana sé þess vandlega gætt að sú góða almannaþjónusta sem veitt er verði tryggð," segir í ályktun um fyrirhugaða sameiningu ríkisstofnana sem stjórn BSRB sendi frá sér í gær.

Kynning á sameiningaráformum stjórnvalda

15.4.2010

ragnhildursvRagnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Arnar Þór Másson sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu kynntu á opnum fundi í BSRB húsinu í dag áform stjórnvalda um sameiningu stofnana ríkisins. Stefnt er að því að sameining ríkisstofnana komi fram í hagræðingu í rekstri.

Kjaradeilu lögreglumanna vísađ til gerđardóms

15.4.2010

Ákveðið hefur verið að vísa kjaradeilu Landssambands lögreglumanna við ríkið til sérstaks gerðardóms. Niðurstaða dómsins á að liggja fyrir eigi síðar en í maílok. Það var samninganefnd LL sem óskaði eftir því að þessi leið yrði farin.

Opinn fundur um sameiningu stofnana

13.4.2010

ragnhildur-arnljotsdottirveOpinn fundur um fyrirhugaðar sameiningar stofnanna ríkisins verður haldinn í BSRB húsinu fimmtudaginn 15. apríl kl. 14. Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Arnar Þór Másson sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu munu þar kynna áform stjórnvalda um sameiningu stofnana en eins og fram hefur komið, m.a. hjá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra eru uppi áform um að sameina 80 stofnanir ríkisins.

Skýrsla Landssamtaka lífeyrissjóđa um lćrdóm af efnahagshruninu

8.4.2010

Nefnd, sem Landssamtök lífeyrissjóða skipuðu í maí 2009 til að fjalla um hvað „lífeyrissjóðir gætu lært af þeim fjárhagslegu áföllum sem dunið hafa yfir íslenskt þjóðfélag, allt frá hruni viðskiptabankanna þriggja í byrjun október 2008", leggur til breytingar á viðskiptaháttum á verðbréfamarkaði, regluverki og starfsumhverfi lífeyrissjóða. Nefndin kynnti skýrslu sína, Lærdóm lífeyrissjóða af hruninu 2008-2009, fyrir 80-90 fulltrúum lífeyrissjóða á fundi á Grand hóteli í Reykjavík í dag.

Vaxandi óánćgja vegna ástands kjaramála

8.4.2010

SFR  skynjar stigvaxandi óánægju og óþolinmæði vegna ástands kjara félagsmanna og kom sú óánægja fram á morgunverðarfundi í dag þar sem félagsmenn ræddu um þjónstu SFR og kjaramálin. Háværar raddir voru um að launakjör færu versnandi. Þetta var tíundi morgunverðarfundurinn á þessu ári sem félagið stendur fyrir.

Opiđ bréf til íslensku ţjóđarinnar

7.4.2010

opidbrefsvuntaÍ heilsíðuauglýsingu sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra og Flugvirkjafélag Íslands birti á skírdag segir að nýleg framganga ríkisstjórnarinnar í kjaradeilum flugvirkja og flugumferðarstjóra sé alvarleg áminning um að íslenskt launafólk búi ekki við grundvallar mannréttindi sem talin hafa verið varin af stjórnarskrá lýðveldisins. "Með nýsettum lögum, sem banna verkfall Flugvirkjafélags Íslands og með ótun um lög á verkfall Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hafa ríkisstjórn og Alþingi í raun afnumið verkfallsréttinn í landinu og brotið um leið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu," segir m.a. í auglýsingunni.

SFR vill tryggja almannaţjónustuna

31.3.2010

"Stjórn SFR telur mikilvægt að í allri umræðu um hagræðingu og sameiningu ríkisstofnana sé þess gætt að sú góða  almannaþjónusta sem veitt er á Íslandi verði varin og tryggð," segir í ályktun sem stjórn SFR samþykkti í gær.

SA hvatt til áframhaldandi ađildar ađ stöđugleikasáttmálanum

30.3.2010

Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðuðu í dag til fundar með aðilum stöðugleikasáttmálans. Fundinn sóttu fulltúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands. Á fundinum var samþykkt að hvetja Samtök atvinnulífisins til þátttöku í áframhaldandi vinnu á grundvelli stöðugleikasáttmálans.

Fjármagn vegna sameiningar fari í velferđarţjónustuna

29.3.2010

ebj150210aElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB segist gera ráð fyrir að menn séu að reyna að sameina stofnanir til þess að hafa fjármagn til þess að setja í velferðarþjónustuna. „Að það sé hægt að ná hagræðingu og aukinni skilvirkni til að halda uppi grunnþjónustu."  Þetta kom fram í viðtali við hana á visir.is í dag.

Samhćfđar ađgerđir lánastofnanna gagnvart skuldum heimilanna

26.3.2010

Aðalfundur SFR krefst þess að ríkisstjórnin móti skýran lagaramma, og reglur um samhæfðar aðgerðir lánastofnanna gagnvart skuldum heimilanna, svo segir í ályktun frá fundinum sem haldinn var í gær.  Þá gerði fundurinn kröfu til þess að stjórnvöld einfaldi úrræði, geri þau almenn, efli eftirlit og bæti lagaumhverfi. "Aðalfundur SFR telur þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði nýlega fram ekki duga að fullu."

Skylda stjórnvalda ađ tryggja góđa og örugga ţjónustu

26.3.2010

Það er skylda stjórnvalda, þar á meðal sveitarfélaga, að búa svo í haginn að öllum sé tryggð góð og örugg þjónusta, segir m.a. í ályktun aðalfundar Kjalar sem haldinn var í gær. Þá er bent á að þjóðin vinnur sig ekki út úr því erfiða efnahagsástandi sem nú ríkir með því að rústa almannaþjónustunni. Góð almannaþjónusta sé öflugasta tækið til að reisa við efnahagslífið.

Sjúkraliđar á Suđurlandi mótmćla

26.3.2010

Sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands samþykktu á fjölmennum fundi í gærkvöldi að koma hörðum mótmælum á  framfæri við heilbrigðisyfirvöld og stjórnendur sjúkrahússins og krefjast þess að stofnunin virði lögbundið starfssvið og starfsréttindi sjúkraliða.

Stuđningsfulltrúar og félagsliđar vilja áframhaldandi ađild ađ SFR

24.3.2010

Á fjölmennum fundi stuðningsfulltrúa og félagsliða auk annarra starfsmanna sem starfa að málefnum fatlaðra sem haldinn var í BSRB húsinu í gær kom fram mjög skýr og einróma krafa um að starfsfólk sem eru félagsmenn í SFR haldi félagsaðild sinni og tryggi þannig réttindi sín og starfskjör. Fundinum barst m.a. undirskriftalisti frá starfsfólki svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Austurlandi þar sem skorað var á stjórn SFR að standa vörð um hagsmuni, réttindi og áframhaldandi veru starfsfólk í SFR.

Sjúkraliđar mótmćla vinnuálagi og undirmönnun á LSH

23.3.2010

Fjölmennur fundur sjúkraliða á Landspítala sem haldinn var í BSRB húsinu í gær mótmælti harðlega óþolandi vinnuálagi og undirmönnun á öllum deildum Landspítala háskólasjúkrahúss. Í ályktun frá fundinum segir að álagið valdi starfsmönnum óbætanlegu heilsuleysi, kvíða og vaxandi óöryggi í starfi. Forstjóri LSH og landlæknir sátu fundinn.

Lögreglan í Reykjavík vill breytingar á vinnufyrirkomulagi

23.3.2010

Lögreglufélag Reykjavíkur leggur til að horfið verði frá núverandi fyrirkomulagi löggæslu á höfuðborgarsvæðinu tafarlaust og að tekið verði upp fyrra fyrirkomulag. Þetta var samþykkt með lófaklappi á fjölmennum félagsfundi í BSRB húsinu í gær.

FÍF mótmćlir lögum á verkfall flugvirkja

22.3.2010

Félag íslenskra flugumferðarstjóra sendi áðan frá sér yfirlýsingu þar sem inngripi ríkisstjórnar og Alþingis í kjaradeilu flugvirkja er mótmælt harðlega.

Villandi umrćđa um ţróun launa opinberra starfsmanna

22.3.2010

"Þrátt fyrir þrotlausa baráttu stéttarfélaga hafa laun opinberra starfsmanna ávallt verið lakari en kjör sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði. Það er fráleitt að tala um að einhver grundvallarbreyting hafi orðið á þessum launamun nú þegar einkageirinn gengur í gegnum tímabundna leiðréttingu á rekstrarumhverfi sínu," segir m.a. í yfirlýsingu frá BSRB um villandi fjölmiðlaumfjöllun um kjör opinberra starfsmanna.

Málefni fatlađra á krossgötum - breytingar á starfsumhverfi

22.3.2010

SFR hefur boða til málfundur um stöðuna innan málefna fatlaðra, faglegar áherslur í nútíð og framtíð, réttindastöðu starfsmanna og áætlaðan flutning á málaflokknum til sveitarfélaganna. Í kjölfar fundarins verður haldinn aðalfundur Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa. Fundurinn er á morgun, þriðjudag 23. mars kl. 17 í BSRB húsinu.

Sjúkraliđar funda međ landlćkni og forstjóra LSH

22.3.2010

Sjúkraliðafélag Íslands stendur fyrir fundi sjúkraliða Landspítala háskólasjúkrahúss með forstjóra Landspítalans og landlækni í BSRB húsinu í dag kl. 17.

Erindi um nýtt launakerfi ríkisstarfsmanna

19.3.2010

nyttlaunakerfikatasvuntaNýtt launakerfi - óbreytt laun? var yfirskrift á erindi sem Katrín Ólafsdóttir lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík flutti á opnum fundi í BSRB húsinu í dag. Fyrirlesturinn var vel sóttur og umræður líflegar. Erindið byggir Katrín á doktorsritgerð sinni sem m.a. fjallar um breytingu á launakerfi ríkisstarfsmanna árið 1998.

Stjórn BSRB mótmćlir inngripi stjórnvalda í vinnudeilu

19.3.2010

Stjórn BSRB lítur það því mjög alvarlegum augum að stjórnvöld skuli hafa haft uppi hótanir um að grípa inn í kjaradeilu með lagasetningu á löglega boðaðar verkfallsaðgerðir og brjóta þar með á grundvallarréttindum launafólks. Þetta kemur m.a. fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi BSRB í dag.

Kjölur kallar eftir gegnsćjum og lýđrćđislegum stjórnarháttum

18.3.2010

Félagsfundur Kjalar haldinn í Borgarnesi 18. mars 2010 kallar eftir betra siðferði, nýjum áherslum og gegnsæjum og lýðræðislegum stjórnarháttum.

Ađgerđir ríkisstjórnarinnar spor í rétta átt

17.3.2010

elinbjofsvFormaður BSRB segir að aðgerðir ríkisstjórarinnar vegna erfiðrar stöðu heimilanna séu spor í rétta átt. Það liggi á að aðstoða skuldsett heimili þannig að fólk geti komið undir sig fótunum á ný.

Nýjar ađgerđir vegna skuldavanda heimilanna

17.3.2010

Ríkisstjórnin kynnti í dag nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar skv. frétt á heimasíðu forsætisráðuneytisins er annars vegar stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp, sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots. Fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

Ţvert nei viđ tilbođi FÍF

16.3.2010

"Það tók samninganefnd Samtaka atvinnulífsins/ríkisins heilar tíu mínútur að meta nýtt tilboð sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra lagði fram á fundi ríkissáttasemjara eftir hádegið í dag og svara síðan með því að segja þvert nei," segir í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra flugumferðarstjóra sem send var út kl. 18 í kvöld.

Flugumferđarstjórar aflýsa bođuđu verkfalli

16.3.2010

Á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag lagði Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) fyrir viðsemjendur sína tillögu að lausn yfirstandandi kjaradeilu. Jafnframt aflýsti félagið boðuðum verkföllum flugumferðarstjóra á morgun miðvikudaginn 17. mars og á föstudag 19. mars.

Lagasetning brot á samţykktum Alţjóđavinnumálastofnunarinnar

16.3.2010

David Cockroft, framkvæmdastjóri Alþjóðaflutningaverkamannasambandsins, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra bréf þar sem hann hvetur íslensk stjórnvöld til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og leggja til hliðar fyrirætlanir um að afnema með lögum réttindi til verkfalls. Þess í stað eigi stjórnvöld að stuðla að því að skapa sanngjarnt og uppbyggilegt umhverfi samningaviðræðna sem gagnast megi báðum samningsaðilum.

Ţolinmćđi lögreglunnar á ţrotum

15.3.2010

"Lögreglumenn hafa gríðarlegt langlundargeð og mikla þolinmæði en sú þolinmæði er nú á þrotum.  Þegar þetta er skrifað (12. mars 2010) hafa kjarasamningar lögreglumanna verið lausir í litla 284 daga.  Þetta langlundargeð lögreglumanna og þolinmæði er orðin af afar skornum skammti.  Það sást enda allvel fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara s.l. þriðjudag (9. mars 2010) þegar stór hópur lögreglumanna mætti þar til að sýna samninganefnd sinni stuðning í verki þegar hún mætti þar til fundar, við samninganefnd ríkisins, undir forsæti Ríkissáttasemjara," segir Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna m.a. í grein á heimasíðu LL.

Trúnađarmannanámi BSRB og FA lokiđ í vor

12.3.2010

utskrift2svuntaVorönn trúnaðarmannanáms BSRB og Félagsmálaskóla BSRB lauk í dag með því að um tíu trúnaðarmenn útskrifuðust úr náminu. Þetta er fimmta önnin sem þessir nemendur sækja sér fræðslu sem trúnaðarmenn og gildir það sem 10 einingar í framhaldsskólanámi.

BSRB mótmćlir áformum um bráđabirgđalög á verkfallsađgerđir FÍF

11.3.2010

"BSRB mótmælir öllum áformum um að stjórnvöld grípi inn í vinnudeilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Flugstoðir ohf og Keflavíkurflugvöll ohf með setningu bráðabirgðalaga á verkfallsaðgerðir félagsins. Í fjölmiðlum hafa verið reifaðar hugmyndir um inngrip stjórnvalda í vinnudeiluna. Sú umræða hefur áhrif á viðræður aðila og hleypir aukinni hörku í deiluna.  Verkfallsréttur launafólks eru grundvallarréttindi og inngrip stjórnvalda með lagasetningu eins og nú er til umræðu er ólýðræðisleg valdbeiting," segir m.a. í ályktun frá stjórn BSRB.

Nýtt launakerfi - óbreytt laun?

11.3.2010

katrin_olafs_100x150Nýtt launakerfi - óbreytt laun? er yfirskrift á erindi sem Katrín Ólafsdóttir lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík flytur á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 19. mars kl. 14. Erindið er byggt á doktorsritgerð Katrínar sem m.a. fjallar um breytingu á launakerfi ríkisstarfsmanna árið 1998.

Fjögurra tíma verkfall FÍF í fyrramáliđ

9.3.2010

Fyrsta verkfall  Félags íslenskra flugumferðarstjóra hefst í fyrramálið. Samningafundi félagsins með viðsemjendum var slitið rétt fyrir klukkan sjö í kvöld án niðurstöðu. Verkfallið í fyrramálið stendur frá klukkarn sjö til 11.

Fjölmenn mótmćli lögreglumanna hjá Sátta

9.3.2010

Lögreglumenn fjölmenntu við húsakynni ríkissáttasemjara við Borgartún í Reykjavík kl. 14 í dag þegar fundur samninganefnda Landssambands lögreglumanna og ríkisins hófst. Kjarasamningar lögreglumanna hafa nú verið lausir frá því í ágúst í fyrra þegar lögreglumenn felldu kjarasamning með yfir 90% greiddra atkvæða.

Unniđ verđi í nánu samstarfi viđ starfsmenn og stéttarfélög

9.3.2010

„Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri. Margar stofnanir eru undirmannaðar vegna niðurskurðar um leið hafa verkefni aukist og víða gengið á kjör starfsmanna. Við þetta verður ekki unað," segir m.a. í ályktun aðalfundar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um kjaramál sem haldinn var í gær.

Versnandi kjörum og auknu vinnuálagi mótmćlt

9.3.2010

Félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti ályktanir um kjaramál og heilbrigðismál á fundi 4. mars sl. Í ályktuninni um kjaramál er vakin athygli á að kjarasamningar félagsins hafa verið lausir í 11 mánuði og því er mótmælt að samhliða versnandi kjörum hafi vinnuálag og undirmönnun á heilbrigðisstofnunum aukist verulega. Í ályktuninni um heilbrigðismál er lýst vaxandi áhyggjum og eindreginni andstöðu við síendurteknum ákvörðunum stjórnvalda um niðurskurð á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu.

Fullt hús á fundi vegna 8. mars

8.3.2010

fjolsksvuntaFullt hús var á fundi á Grand Hóteli í hádeginu í dag vegna 8. mars. Yfirskrift fundarins var Frelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs. Að fundinum stóðu auk BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Alţjóđlegur barátttudagur kvenna 8. mars

5.3.2010

8marsjafnrsvuntaBSRB stendur ásamt fleiri félagasamtökum að tveimur fundum sem haldnir verða mánudaginn 8. mars en þá er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti haldinn í hundraðasta skiptið. Þá stendur SFR að ráðstefnu á Akureyri 8. mars. Félagið mun halda ráðstefnur um jafnréttismál í öllum landsfjórðungum í mars og apríl.

Fundađ međ stjórn SLFÍ

4.3.2010

sjornslfisvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB funduðu í dag með stjórn Sjúkraliðafélags Íslands. Fundurinn fór fram á skrifstofa SLFÍ, Grensásvegi 16 í Reykjavík. Þetta er annar fundur formanns og framkvæmdastjóra BSRB með stjórnum aðildarfélaga bandalagsins á þessu ári en stefnt er að því að funda með stjórnum allra félaganna á næstu vikum og mánuðum.

Viđ getum betur

4.3.2010

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti standa fjölmörg félagasamtök fyrir dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 8. mars 2010 kl.17 undir yfirskriftinni Við getum betur. BSRB og nokkur aðildarfélög bandalagsins eru meðal þeirra sem standa að dagskránni.

Frelsi til fjölskyldulífs

3.3.2010

8marsforFrelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs, er yfirskrift fundar í tilefni 100 ára afmælis alþjóðlegs baráttudags kvenna mánudaginn 8. mars. Að fundinum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Fundurinn er á Grand hóteli í Reykjavík frá kl. 11.45 til 13.

FÍF bođar verkfallsađgerđir

3.3.2010

Niðurstaða atkvæðagreiðslu Félags íslenskra flugumferðarstjóra um boðun verkfalla til að þrýsta á um gerð kjarasamnings var afgerandi. 98% kusu með verfallsboðun.  Kjörsókn var góð en um 70% félagsmanna tóku þátt í henni.  Framkvæmd verkfallanna hefur verið kynnt yfirstjórn Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. en verkföllin ná ekki til félagsmanna FÍF sem starfa hjá Flugmálastjórn Íslands.

Fyrsta útskrift úr trúnađarmannanámi BSRB og FA

2.3.2010

trunosvuntaUm 20 trúnaðarmenn á vegum aðildarfélaga BSRB útskrifuðst í dag úr trúnaðarmannanámi BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast úr náminu en það hófst á vorönn 2008. Auk þess að styrkja trúnaðarmennina í starfi veitir það þeim 10 einingar á framhaldsskólastigi.

Jafnréttisráđstefnur SFR í öllum landsfjórđungum

2.3.2010

SFR stendur fyrir ráðstefnuröð um jafnrétti á komandi vikum og verður ráðstefna haldin í öllum landsfjórðungum. Fyrsta ráðstefnan verður á Akureyri 8. mars á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Næst er komið að Egilsstöðum 14. apríl, Ísafirði 20. apríl og endað í Reykjavík 28. apríl.

Norđmenn láni Íslandi óháđ endurskođun AGS

2.3.2010

Tveir forystumenn opinberra starfsmanna í Noregi, Jan Davidsen formaður Fagforbundet og Kjartan Lund framkvæmdastjóri NOFS, birtu í dag lesendabréf í Dagbladet þar sem þeir hvetja norsk stjórnvöld til að lána Íslendingum óháð endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands.

Atvinnumiđstöđ Hafnarfjarđar opnar á nćstunni

1.3.2010

Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar verður opnuð á næstunni þar sem sinnt verður svæðisbundinni vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði, einkum langtímaatvinnulausa og ungt fólk. Þetta er þróunarverkefni byggt á samstarfs- og þjónustusamningi milli Vinnumálastofnunar og Hafnarfjarðarbæjar með aðild Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði, en Starfsmannafélag Hafnarfjarðar er aðili að fulltrúaráðinu.

Ungt fólk til athafna

26.2.2010

Ungt-folk-AuglysingsvuntaFélags- og tryggingamála-ráðuneytið hefur falið Vinnumálastofnun að tryggja það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að bjóðast vinna eða virkniúrræði. Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra. Stefnt er að því að Vinnumálastofnun nái settu markmiði í nánu samstarfi við stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög. Alls á að skapa úrræði fyrir 2400 unga atvinnuleitendur.

Flugumferđarstjórar undirbúa verkfallsbođun

23.2.2010

Félag íslenskra flugumferðarstjóra samþykkti einróma á aðalfundi sínum í gærkvöldi að undirbúa strax atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir undir lok vikunnar.

BSRB styrkir íbúa Haiti

19.2.2010

Stjórn BSRB hefur ákveðið að leggja fram 300 þúsund krónur í söfnun ITUC, Alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga, til fórnarlamba jarðskjálftans á Haiti. Fjármunum söfnunarinnar verður varið í neyðarhjálp til að byrja með.

Hćfni og áhćtta verđi metin til launa hjá lögreglunni

18.2.2010

Lögreglumenn krefjast þess að þær takmarkanir sem þeim eru settar með sinn frítíma og auknar skyldur vegna t.a.m. aukavinnu og skerðingar á atvinnufrelsi í frítíma sínum, sem hljóta að teljast til skertra mannréttinda, að slíkt verði metið að fullu til launa og að auki að sú ábyrgð, hæfni og áhætta sem starf lögreglumanns krefst og í því felst endurspeglist í launkjörum lögreglumanna en þannig er því aldeilis ekki farið í dag. Þetta er niðurlag ályktunar stjórnarfundar Landssambands lögreglumanna sem haldinn var í gær.

Velferđarkerfiđ ţolir ekki meira

18.2.2010

visirsvunta"Frekari niðurskurður á velferðarkerfinu getur valdið varanlegu tjóni," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB í viðtali sem birtist á visir.is í gær. Í viðtalinu er hún spurð um viðbrögð hennar við þeim ummælum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að niðurskurður í velferðarkerfinu væri kominn að þolmörkum.

Sendiherra Venesúela í heimsókn

17.2.2010

venesvuntaJosé Sojo sendiherra Venesúela á Íslandi með aðsetur í Osló heimsótti skrifstofu BSRB í dag. Þar fundaði hann með þeim Elínu Björgu Jónsdóttur formanni BSRB og Ögmundi Jónassyni fyrrverandi formanni samtakanna.

Viđskiptaráđ tali skýrar

15.2.2010

ebj150210a"Hjá hinu opinbera gegnir öðru máli á krepputímum en á almennum vinnumarkaði því eftir sem áður eru samfélagsleg verkefni fyrir hendi. Krafa Viðskiptaráðs um samdrátt hjá ríki og sveitarfélögum kallar því á nánari skýringar frá aðstoðarforstjóra Viðskiptaráðs. Hvað nákvæmlega er hann að fara? Telur hann að þörf sé á því að fækka fólki í skólum, á sjúkrahúsum, á dvalarheimilum fyrir aldraða, í þjónustu við fatlaða, í löggæslunni og þannig má áfram telja? Ég fullyrði að hvergi er ofmannað á þessum vettvangi. Þvert á móti er vinnuálagið víða of mikið," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu 13. febrúar. 

Almannaţjónustan aldrei mikilvćgari en nú

11.2.2010

elinbjofsv"BSRB tekur heilshugar undir aðvörun Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu (EPSU), sem BSRB er aðili að, um að stjórnvöld mæti ekki efnahagskreppunni með niðurskurði í opinberri þjónustu," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB í viðtali í Morgunblaðinu í gær, 10. febrúar.

Ađför gerđ ađ Heilbrigđisstofnun Suđurnesja

10.2.2010

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja samþykkti í gær ályktun þar sem segir að rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé ríkinu ofviða og að hringlandaháttur stjórnvalda dragi máttinn úr harðduglegu starfsfólki HSS. Telur stjórnin að tími sé kominn til að einelti stjórnvalda í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni. Hátt í 50 félagsmenn STFS starfa á HSS.

Nýr vettvangur fyrir atvinnuleitendur

9.2.2010

fiskuribollaFræðslusetrið Starfsmennt skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Vinnumálastofnun um að taka að sér tímabundna ráðgjafaþjónustu við þá félagsmenn sem misst hafa vinnuna undanfarið. Samstarfið felur í sér að að bjóða atvinnuleitendum upp á náms- og starfsráðgjöf til að skýra stefnu í námsvali og starfsleit og tryggja þátttöku í virkniúrræðum. Námskeiðin eru ókeypist fyrir alla félagsmenn BSRB sem eru í atvinnuleit.

Fjölmenni á Andlegri sjálfsvörn

5.2.2010

sig1svuntaGóður rómur var gerður að fyrirlestri Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar sem hann flutti í gær í BSRB húsinu. Aðsókn var mjög góð. Fyrirlesturinn nefndist "Andleg sjálfsvörn" og var hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar.

Ályktanir 42. ţings BSRB

4.2.2010

thingsalyktanir42svuntaKominn er út bæklingur með ályktunum 42. þings BSRB sem haldið var dagana 21. - 23. október 2009. Í bæklingnum eru allar ályktanir þingsins en þar kemur fram stefna BSRB í öllum helstu málaflokkum sem varða félagsmenn BSRB og mótun framtíðarsamfélags jöfnuðar, atvinnu, velferðar og réttlætis, eins og yfirskrift þingsins var.

Trúnađarmannanámskeiđ BSRB og FA á Akureyri

3.2.2010

Fyrsta þrep trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst á Akureyri 22. mars nk. Námið er í sex þrepum og veitir 10 einingar á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í húsnæði Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti í stofu Þ21. Hvert þrep stendur í þrjá daga frá 9 - 16.

Andleg sjálfsvörn á fimmtudag

2.2.2010

sigursteinnsvuntaFyrirlestur Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar „Andleg sjálfsvörn" sem frestað var sl. fimmtudag vegna EM í handknattleik verður fluttur í BSRB - húsinu nk. fimmtudag, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.

SFR afli fljótlega verkfallsheimildar fyrir starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf

28.1.2010

"Í ljósi þess að lítill eða enginn samningsvilji er fyrir hendi af hálfu viðsemjenda og Samtaka atvinnulífsins, verður ekki hjá því komist að SFR afli fljótlega verkfallsheimildar meðal félagsmanna sem eru starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf, ef enginn árangur verður af starfi Ríkissáttasemjara í kjaradeilunni á næstu dögum," segir m.a. í yfirlýsingu félagsfundar sem SFR félagar sem starfa á Keflavíkurflugvelli stóð fyrir í gær.

Fyrirlestri Sigursteins Mássonar frestađ

27.1.2010

Vegna leiks Íslands og Noregs á EM í handknattleik hefur verið ákveðið að fresta fyrirlestri Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar um andlega sjálfsvörn sem halda átti í BSRB húsinu kl. 16 á morgun. Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 4. febrúar kl. 16 og er hann í boði BSRB.

Sjúkraliđar vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara

27.1.2010

Sjúkraliðafélag Íslands hefur sent kjaradeilu félagsins til ríkissáttasemjara. Fyrsti fundur undir hans stjórn var haldinn 21. janúar sl.

FFR íhugi verkfallsheimld vegna Keflavíkurflugvallar ohf.

26.1.2010

Félagsfundur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins í gær krefst þess að stjórn félagsins vísi viðræðum við SA vegna kjarasamninga starfsmanna Keflavíkurflugvallar ohf. nú þegar til Ríkissáttasemjara. Þess var jafnframt krafist að stjórn FFR hefjist nú þegar handan við að undirbúning kosninga til að afla verkfallsheimildar.

Andleg sjálfsvörn

21.1.2010

sigursteinnsvunta„Andleg sjálfsvörn" nefnist fyrirlestur sem Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar  flytur í BSRB - húsinu nk. fimmtudag, 28. janúar kl. 16. Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.

Fundađ međ stjórnum ađildarfélaganna

19.1.2010

tollararstjsvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB funduðu í dag með stjórn og trúnaðarmannaráði Tollvarðafélags Íslands. Þetta er fyrsti fundur nýkjörins formanns og framkvæmdastjóra BSRB með stjórnum aðildarfélaga bandalagsins en stefnt er að því að funda með þeim á næstu vikum og mánuðum.

Heildarkjarasamningur Samflots viđ LN

15.1.2010

Lokið hefur verið við að setja saman í heildarkjarasamning síðustu tvo samninga sem Samflotið hefur gert við Launanefnd sveitarfélaga. Síðasti heildstæði samningur var undirritaður 29. maí 2005. Að útgáfunni (textavinnunni) komu fulltrúar beggja samningsaðila.

Námsvísir Starfsmenntar fyrir vorönn 2010

15.1.2010

namsvstarfsmsvuntaNámsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar fyrir vorönn 2010 er kominn út. Í honum er kynnt fjölbreytt námsframboð fræðslusetursins. Í boði eru fjölmörg þverfagleg námskeið sem efla starfshæfni á sviði tungumála, stjórnunar, samskipta og leiðtogafræða. Finna má bæði stutt námskeið og lengri námsleiðir sem dýpka þá þekkingu og hæfni sem fyrir er og styrkja stöðu starfsmanna.

Fulltrúar BSRB í samningahópum um ađildarviđrćđur viđ ESB

14.1.2010

Stjórn BSRB hefur skipað fulltrúa í sjö samningahópa vegna samningaviðræðna ríkisins um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Auk þess hefur bandalagið skipað varamenn í þessa hópa. Samningahóparnir hafa þegar hafið störf.

Flugumferđarstjórar íhuga ađgerđir

8.1.2010

Félagsfundur Félags íslenskra flugumferðarstjóra sem haldinn var í gærkvöldi skorar á samninganefnd félagsins að skoða aðgerðir til að knýja á að gengið verði frá kjarasamningum við félagið sem fyrst. 

Ókeypis námskeiđ fyrir atvinnulausa BSRB félaga

8.1.2010

smenntsvuntaFræðslusetrið Starfsmennt býður atvinnulausum félagsmönnum í BSRB upp á ókeypis námskeið sem ætluð eru til að styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði. Hér er um að ræða 18 sjálfstæð námskeið sem haldin verða í BSRB húsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 alla vorönnina 2010.

Vatniđ í stjórnarskrána

4.1.2010

jonogvatnidvuntaBSRB fagnar yfirlýsingu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að eitt af brýnustu verkefnum þjóðarinnar sé að íslenskt vatn verði skilgreint í stjórnarskrá sem almannaeign.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta