Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

Gengislánalögin tóku gildi í gćr

29.12.2010

Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra umg gengisbundin lán, sem samþykkt var á Alþingi 18. desember, varð að lögum í gær. Lánastofnanir hafa nú 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum gengisbundnum bíla- og fasteignaveðlánum. Lögin miða að því að koma á fót skilvirkari úrræðinum í útreikningum og endurgreiðslu ólögmætra gengisbundinna lána, t.d. vegna eigendaskitpa, greiðslna ábyrgðarmanna og ólíkrar samningsgerðar lána.

Gleđilega hátíđ

23.12.2010

JólamyndBSRB óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skrifstofa BSRB verður lokuð á morgun, aðfangadag, en opin á milli jóla og nýárs. Gleðilega hátíð. BSRB sendir ekki út jólakort í ár, en hefur sama hátt á og í fyrra og gefur þess í stað Mæðrastyrksnefnd 400 þúsund krónur.

Ţingmálaumsagnir BSRB gerđar ađgengilegri

22.12.2010

Umsagnir BSRB um lagafrumvörp og þingsályktunartillögur hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vefnum. Vinstra megin á forsíðunni, undir Á döfinni, er að finna hnappinn Umsagnir um þingmál. Sé þrýst á hann koma upp allar umsagnir sem BSRB hefur sent Alþingi á yfirstandi löggjafarþingi, sem er hið 139. í röðinni.

Gengiđ til friđar í ţrjá áratugi

20.12.2010

Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur að venju fyrir blysför niður Laugaveginn í Reykjavík fimmtudaginn 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00.  Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi áður en gangan leggur af stað. Í lok göngunnar verður stuttur fundur á Ingólfstorgi þar sem Steingerður Hreinsdóttir, alþjóða þróunarfræðingur   ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands flytur ávarp en fundarstjóri er Árni Pétur Guðjónsson leikari. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.

Leitađ ađ skyndihjálparmanni ársins

20.12.2010

Rauði kross Íslands auglýsir nú eftir ábendingum um hver á skilið að verða útnefndur skyndihjálparmaður ársins 2010. Jafnframt því að vera viðurkenning til einstaklings er tilgangur valsins að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja fólk til að læra skyndihjálp og verða hæfara til að veita hjálp á vettvangi slysa. Tilnefningar þurfa að hafa borist Rauða krossi Íslands, eigi síðar en 15. janúar 2011.

Formađur BSRB brýnir sveitarstjórnir

17.12.2010

elinbjofElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, hefur sent öllum sveitarstjórnarfulltrúum landsins bréf, í tengslum við gerðir fjárhagsáætlana. Í því áminnir hún þá um að nærþjónusta sveitarfélaga er hluti af velferðarkerfinu og það sé því á ábyrgð kjörinna fulltrúa að tryggja að ekki sé höggvið að rótum velferðarkerfisins við fjárhagsáætlanagerð. Þá hvetur hún þá til að dreifa kostnaði við velferðina með því að nýta sér útsvar, frekar en að hækka gjöld. Gjaldskrárhækkun bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna.

Grein Helgu í Fréttablađinu

16.12.2010

Helga JónsdóttirHelga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, ritar grein í Fréttablaðið í dag. Þar áminnir hún kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum um að stíga varlega til jarðar við fjárhagsáætlanagerð og gæta þess að höggva ekki að rótum velferðarkerfisins. Nærþjónusta sveitarfélaga sé hluti þess kerfis og ábyrgð sveitarstjórnarfulltrúa, á að verja velferðina, sé jafn rík og þingmanna við fjárlagagerð.

 

Lokaráđstefna Evrópuárs gegn fátćkt

15.12.2010

Evrópuárið 2010 er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Ísland hefur tekið fullan þátt í verkefninu. Árinu fer senn að ljúka en vinnan heldur áfram. Á lokaráðstefnunni, sem haldin verður 17. desember í Ráðhúsi Reykjavíkur, verða kynnt mörg þeirra verkefna og rannsókna sem hefur verið ýtt úr vör á árinu. en fjöldi styrkja var veittur til baráttunnar.

Dregiđ úr niđurskurđi

15.12.2010

Þriðja útgáfa fjárlaga gerir ráð fyrir milljarði króna hærra framlagi til velferðarmála en upphaflega stóð til. Meirihluti fjárlaganefndar skilaði tillögum af sér í gær og gert er ráð fyrir að frumvarpið verði afgreitt í dag. BSRB hefur undanfarið staðið fyrir umfangsmikilli herferð og brýnt þingmenn til að verja velferðina.

Verksviđ, leiđarljós og hlutverk BSRB

14.12.2010

Verksvið, leiðarljós og hlutverk BSRB eru skilgreind í bæklingi sem nú er kominn út. Hann er afrakstur hugmyndavinnu sem stjórn BSRB ákvað að leggja  í vorið 2010. Þar kemur fram að verksvið BSRB er að veita aðildarfélögunum þjónustu á ýmsum sviðum og sinna fræðslu og upplýsingagjöf. Undir leiðarljós bandalagsins fellur hins vegar að vera heildarsamtök og talsmaður aðildarfélaganna, forysta í stéttarfélagsumræðu og að sjá um samskipti við hið opinbera. Ítarlegri skilgreiningu er að finna í bæklingnum.

4 milljarđar í Jöfnunarsjóđ

13.12.2010

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun greiða allt að 4.200 milljónir króna. Til úthlutunar nú koma 4.025 milljónir.

Ólögmćt uppsögn hjá Stykkishólmsbć

10.12.2010

Hæstiréttur felldi í gær dóm í máli Sjúkraliðafélags Íslands gegn Stykkishólmsbæ vegna ólögmætrar uppsagnar forstöðumanns hjúkrunarheimilisins í Stykkishólmi. Hæstiréttur féllst á rök félagsins að um ólögmæta uppsögn væri að ræða. Var bæjarfélaginu gert að greiða starfsmanninum 3,8 milljónir króna með dráttarvöxtum, samkvæmt lagaákvæðum um vexti og verðtryggingu. Þá var bæjarfélagið dæmt til að greiða starfsmanninum fyrrverandi málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, samtals 1.200.000 krónur.

Áskorun stjórnar BSRB til ţingmanna

10.12.2010

Stjórn BSRB samþykkti rétt í þessu áskorun til Alþingismanna vegna fjárlagafrumvarpsins. Þingmenn eru hvattir til þess að sjá til þess að niðurskurðartillögur frumvarpsins höggvi ekki að rótum velferðarkerfisins og til að verja velferðina.Bókin Í yfirferð hagfræðings BSRB, Hilmars Ögmundssonar, á frumvarpinu, kom fram að forsendur frumvarpsins eru mjög hæpnar, svo ekki sé meira sagt.

Forseti afhendir borgarstjóra verđlaun

9.12.2010

Starfsmenntaverðlaun 2Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í BSRB húsinu í gær. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun. Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu. Verðlaunin eiga að vera verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði. Starfsmenntaráð veitti verðlaunin í síðasta sinn, en þau flytjast nú á hendur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. BSRB er aðili að Fræðslumiðstöðinni.

Hugmyndir BSRB kynntar sáttasemjara

8.12.2010

Hjá SáttaBSRB er til viðræðna um sameiginlegar viðræður um endurreisn íslensks efnahagslífs. Slíkar viðræður gætu þó aldrei orðið kjaraviðræður, þar sem sem hvert félag innan bandalagsins er með samningsréttinn og hefur ekki falið BSRB að gera kjarasamninga. Ef af sameiginlegum viðræðum aðila vinnumarkaðarins verður eiga þær ekki að hafa áhrif á kjaraviðræður á nokkurn hátt. Einstaka kjaraviðræður halda því  áfram hvað sem mögulegum sameiginlegum viðræðum líður. Formaður, varaformenn og framkvæmdarstjóri BSRB afhentu ríkissáttasemjara hugmyndir BSRB í morgun.

Opinberum starfsmönnum fćkkar um 6,3%

7.12.2010

Opiniberum starfsmönnum hefur fækkað um sem nemur 1.156 stöðugildum á tveimur árum. Í október 2008 voru stöðugildi í dagvinnu 18.394 hjá stofnunum ríkisins. Miðað við sama mánuð árið 2010 var fjöldi stöðugilda í dagvinnu 17.239. Þetta jafngildir 6,3% fækkun. Þetta er þveröfugt við það sem ýmsir, svo sem Samtök iðnaðarins, hafa haldið fram og sumir fréttamenn haft gagnrýnislaust eftir.

Frćđslunefnd óttast um framhaldsskólana

7.12.2010

Fræðslunefnd BSRB óttast að með fyrirhuguðum niðurskurði til framhaldsskóla geti fólk ekki tekið við öllum þeim sem í skólana sækja. Það leiði til aðstöðumunar á milli kynslóða, einhæfara náms og vinni gegn markmiðum menntamálaráðuneytisins um að auka menntunarstig þjóðarinnar. Þetta kemur fram í ályktun sem fræðslunefndin samþykkti í morgun.

Grein Elínar Bjargar í Fréttablađinu

7.12.2010

elinbjofElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar lýsir hún því hvernig forfeður okkar byggðu velferðarkerfið upp í gegnum bágindi og kröpp kjör. Framsýni þeirra varð til þess að í dag eigum við öflugt velferðarkerfi. Í niðurskurði þeim sem erfiðir tímar nú kalla á má ekki höggva að rótum þess velferðarkerfis.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta