Fréttir
Ungt fólk til athafna
26.2.2010
Félags- og tryggingamála-ráðuneytið hefur falið Vinnumálastofnun að tryggja það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að bjóðast vinna eða virkniúrræði. Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra. Stefnt er að því að Vinnumálastofnun nái settu markmiði í nánu samstarfi við stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög. Alls á að skapa úrræði fyrir 2400 unga atvinnuleitendur.
Flugumferðarstjórar undirbúa verkfallsboðun
23.2.2010
Félag íslenskra flugumferðarstjóra samþykkti einróma á aðalfundi sínum í gærkvöldi að undirbúa strax atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir undir lok vikunnar.
BSRB styrkir íbúa Haiti
19.2.2010
Stjórn BSRB hefur ákveðið að leggja fram 300 þúsund krónur í söfnun ITUC, Alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga, til fórnarlamba jarðskjálftans á Haiti. Fjármunum söfnunarinnar verður varið í neyðarhjálp til að byrja með.
Hæfni og áhætta verði metin til launa hjá lögreglunni
18.2.2010
Lögreglumenn krefjast þess að þær takmarkanir sem þeim eru settar með sinn frítíma og auknar skyldur vegna t.a.m. aukavinnu og skerðingar á atvinnufrelsi í frítíma sínum, sem hljóta að teljast til skertra mannréttinda, að slíkt verði metið að fullu til launa og að auki að sú ábyrgð, hæfni og áhætta sem starf lögreglumanns krefst og í því felst endurspeglist í launkjörum lögreglumanna en þannig er því aldeilis ekki farið í dag. Þetta er niðurlag ályktunar stjórnarfundar Landssambands lögreglumanna sem haldinn var í gær.
Velferðarkerfið þolir ekki meira
18.2.2010
"Frekari niðurskurður á velferðarkerfinu getur valdið varanlegu tjóni," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB í viðtali sem birtist á visir.is í gær. Í viðtalinu er hún spurð um viðbrögð hennar við þeim ummælum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að niðurskurður í velferðarkerfinu væri kominn að þolmörkum.
Sendiherra Venesúela í heimsókn
17.2.2010
José Sojo sendiherra Venesúela á Íslandi með aðsetur í Osló heimsótti skrifstofu BSRB í dag. Þar fundaði hann með þeim Elínu Björgu Jónsdóttur formanni BSRB og Ögmundi Jónassyni fyrrverandi formanni samtakanna.
Viðskiptaráð tali skýrar
15.2.2010
"Hjá hinu opinbera gegnir öðru máli á krepputímum en á almennum vinnumarkaði því eftir sem áður eru samfélagsleg verkefni fyrir hendi. Krafa Viðskiptaráðs um samdrátt hjá ríki og sveitarfélögum kallar því á nánari skýringar frá aðstoðarforstjóra Viðskiptaráðs. Hvað nákvæmlega er hann að fara? Telur hann að þörf sé á því að fækka fólki í skólum, á sjúkrahúsum, á dvalarheimilum fyrir aldraða, í þjónustu við fatlaða, í löggæslunni og þannig má áfram telja? Ég fullyrði að hvergi er ofmannað á þessum vettvangi. Þvert á móti er vinnuálagið víða of mikið," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu 13. febrúar.
Almannaþjónustan aldrei mikilvægari en nú
11.2.2010
"BSRB tekur heilshugar undir aðvörun Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu (EPSU), sem BSRB er aðili að, um að stjórnvöld mæti ekki efnahagskreppunni með niðurskurði í opinberri þjónustu," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB í viðtali í Morgunblaðinu í gær, 10. febrúar.
Aðför gerð að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
10.2.2010
Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja samþykkti í gær ályktun þar sem segir að rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé ríkinu ofviða og að hringlandaháttur stjórnvalda dragi máttinn úr harðduglegu starfsfólki HSS. Telur stjórnin að tími sé kominn til að einelti stjórnvalda í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni. Hátt í 50 félagsmenn STFS starfa á HSS.
Nýr vettvangur fyrir atvinnuleitendur
9.2.2010
Fræðslusetrið Starfsmennt skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Vinnumálastofnun um að taka að sér tímabundna ráðgjafaþjónustu við þá félagsmenn sem misst hafa vinnuna undanfarið. Samstarfið felur í sér að að bjóða atvinnuleitendum upp á náms- og starfsráðgjöf til að skýra stefnu í námsvali og starfsleit og tryggja þátttöku í virkniúrræðum. Námskeiðin eru ókeypist fyrir alla félagsmenn BSRB sem eru í atvinnuleit.
Fjölmenni á Andlegri sjálfsvörn
5.2.2010
Góður rómur var gerður að fyrirlestri Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar sem hann flutti í gær í BSRB húsinu. Aðsókn var mjög góð. Fyrirlesturinn nefndist "Andleg sjálfsvörn" og var hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar.
Ályktanir 42. þings BSRB
4.2.2010
Kominn er út bæklingur með ályktunum 42. þings BSRB sem haldið var dagana 21. - 23. október 2009. Í bæklingnum eru allar ályktanir þingsins en þar kemur fram stefna BSRB í öllum helstu málaflokkum sem varða félagsmenn BSRB og mótun framtíðarsamfélags jöfnuðar, atvinnu, velferðar og réttlætis, eins og yfirskrift þingsins var.
Trúnaðarmannanámskeið BSRB og FA á Akureyri
3.2.2010
Fyrsta þrep trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst á Akureyri 22. mars nk. Námið er í sex þrepum og veitir 10 einingar á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í húsnæði Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti í stofu Þ21. Hvert þrep stendur í þrjá daga frá 9 - 16.
Andleg sjálfsvörn á fimmtudag
2.2.2010
Fyrirlestur Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar „Andleg sjálfsvörn" sem frestað var sl. fimmtudag vegna EM í handknattleik verður fluttur í BSRB - húsinu nk. fimmtudag, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























