Fréttir
SFR vill tryggja almannaţjónustuna
31.3.2010
"Stjórn SFR telur mikilvægt að í allri umræðu um hagræðingu og sameiningu ríkisstofnana sé þess gætt að sú góða almannaþjónusta sem veitt er á Íslandi verði varin og tryggð," segir í ályktun sem stjórn SFR samþykkti í gær.
SA hvatt til áframhaldandi ađildar ađ stöđugleikasáttmálanum
30.3.2010
Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðuðu í dag til fundar með aðilum stöðugleikasáttmálans. Fundinn sóttu fulltúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands. Á fundinum var samþykkt að hvetja Samtök atvinnulífisins til þátttöku í áframhaldandi vinnu á grundvelli stöðugleikasáttmálans.
Fjármagn vegna sameiningar fari í velferđarţjónustuna
29.3.2010
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB segist gera ráð fyrir að menn séu að reyna að sameina stofnanir til þess að hafa fjármagn til þess að setja í velferðarþjónustuna. „Að það sé hægt að ná hagræðingu og aukinni skilvirkni til að halda uppi grunnþjónustu." Þetta kom fram í viðtali við hana á visir.is í dag.
Samhćfđar ađgerđir lánastofnanna gagnvart skuldum heimilanna
26.3.2010
Aðalfundur SFR krefst þess að ríkisstjórnin móti skýran lagaramma, og reglur um samhæfðar aðgerðir lánastofnanna gagnvart skuldum heimilanna, svo segir í ályktun frá fundinum sem haldinn var í gær. Þá gerði fundurinn kröfu til þess að stjórnvöld einfaldi úrræði, geri þau almenn, efli eftirlit og bæti lagaumhverfi. "Aðalfundur SFR telur þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði nýlega fram ekki duga að fullu."
Skylda stjórnvalda ađ tryggja góđa og örugga ţjónustu
26.3.2010
Það er skylda stjórnvalda, þar á meðal sveitarfélaga, að búa svo í haginn að öllum sé tryggð góð og örugg þjónusta, segir m.a. í ályktun aðalfundar Kjalar sem haldinn var í gær. Þá er bent á að þjóðin vinnur sig ekki út úr því erfiða efnahagsástandi sem nú ríkir með því að rústa almannaþjónustunni. Góð almannaþjónusta sé öflugasta tækið til að reisa við efnahagslífið.
Sjúkraliđar á Suđurlandi mótmćla
26.3.2010
Sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands samþykktu á fjölmennum fundi í gærkvöldi að koma hörðum mótmælum á framfæri við heilbrigðisyfirvöld og stjórnendur sjúkrahússins og krefjast þess að stofnunin virði lögbundið starfssvið og starfsréttindi sjúkraliða.
Stuđningsfulltrúar og félagsliđar vilja áframhaldandi ađild ađ SFR
24.3.2010
Á fjölmennum fundi stuðningsfulltrúa og félagsliða auk annarra starfsmanna sem starfa að málefnum fatlaðra sem haldinn var í BSRB húsinu í gær kom fram mjög skýr og einróma krafa um að starfsfólk sem eru félagsmenn í SFR haldi félagsaðild sinni og tryggi þannig réttindi sín og starfskjör. Fundinum barst m.a. undirskriftalisti frá starfsfólki svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Austurlandi þar sem skorað var á stjórn SFR að standa vörð um hagsmuni, réttindi og áframhaldandi veru starfsfólk í SFR.
Sjúkraliđar mótmćla vinnuálagi og undirmönnun á LSH
23.3.2010
Fjölmennur fundur sjúkraliða á Landspítala sem haldinn var í BSRB húsinu í gær mótmælti harðlega óþolandi vinnuálagi og undirmönnun á öllum deildum Landspítala háskólasjúkrahúss. Í ályktun frá fundinum segir að álagið valdi starfsmönnum óbætanlegu heilsuleysi, kvíða og vaxandi óöryggi í starfi. Forstjóri LSH og landlæknir sátu fundinn.
Lögreglan í Reykjavík vill breytingar á vinnufyrirkomulagi
23.3.2010
Lögreglufélag Reykjavíkur leggur til að horfið verði frá núverandi fyrirkomulagi löggæslu á höfuðborgarsvæðinu tafarlaust og að tekið verði upp fyrra fyrirkomulag. Þetta var samþykkt með lófaklappi á fjölmennum félagsfundi í BSRB húsinu í gær.
FÍF mótmćlir lögum á verkfall flugvirkja
22.3.2010
Félag íslenskra flugumferðarstjóra sendi áðan frá sér yfirlýsingu þar sem inngripi ríkisstjórnar og Alþingis í kjaradeilu flugvirkja er mótmælt harðlega.
Villandi umrćđa um ţróun launa opinberra starfsmanna
22.3.2010
"Þrátt fyrir þrotlausa baráttu stéttarfélaga hafa laun opinberra starfsmanna ávallt verið lakari en kjör sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði. Það er fráleitt að tala um að einhver grundvallarbreyting hafi orðið á þessum launamun nú þegar einkageirinn gengur í gegnum tímabundna leiðréttingu á rekstrarumhverfi sínu," segir m.a. í yfirlýsingu frá BSRB um villandi fjölmiðlaumfjöllun um kjör opinberra starfsmanna.
Málefni fatlađra á krossgötum - breytingar á starfsumhverfi
22.3.2010
SFR hefur boða til málfundur um stöðuna innan málefna fatlaðra, faglegar áherslur í nútíð og framtíð, réttindastöðu starfsmanna og áætlaðan flutning á málaflokknum til sveitarfélaganna. Í kjölfar fundarins verður haldinn aðalfundur Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa. Fundurinn er á morgun, þriðjudag 23. mars kl. 17 í BSRB húsinu.
Sjúkraliđar funda međ landlćkni og forstjóra LSH
22.3.2010
Sjúkraliðafélag Íslands stendur fyrir fundi sjúkraliða Landspítala háskólasjúkrahúss með forstjóra Landspítalans og landlækni í BSRB húsinu í dag kl. 17.
Erindi um nýtt launakerfi ríkisstarfsmanna
19.3.2010
Nýtt launakerfi - óbreytt laun? var yfirskrift á erindi sem Katrín Ólafsdóttir lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík flutti á opnum fundi í BSRB húsinu í dag. Fyrirlesturinn var vel sóttur og umræður líflegar. Erindið byggir Katrín á doktorsritgerð sinni sem m.a. fjallar um breytingu á launakerfi ríkisstarfsmanna árið 1998.
Stjórn BSRB mótmćlir inngripi stjórnvalda í vinnudeilu
19.3.2010
Stjórn BSRB lítur það því mjög alvarlegum augum að stjórnvöld skuli hafa haft uppi hótanir um að grípa inn í kjaradeilu með lagasetningu á löglega boðaðar verkfallsaðgerðir og brjóta þar með á grundvallarréttindum launafólks. Þetta kemur m.a. fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi BSRB í dag.
Kjölur kallar eftir gegnsćjum og lýđrćđislegum stjórnarháttum
18.3.2010
Félagsfundur Kjalar haldinn í Borgarnesi 18. mars 2010 kallar eftir betra siðferði, nýjum áherslum og gegnsæjum og lýðræðislegum stjórnarháttum.
Ađgerđir ríkisstjórnarinnar spor í rétta átt
17.3.2010
Formaður BSRB segir að aðgerðir ríkisstjórarinnar vegna erfiðrar stöðu heimilanna séu spor í rétta átt. Það liggi á að aðstoða skuldsett heimili þannig að fólk geti komið undir sig fótunum á ný.
Nýjar ađgerđir vegna skuldavanda heimilanna
17.3.2010
Ríkisstjórnin kynnti í dag nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar skv. frétt á heimasíðu forsætisráðuneytisins er annars vegar stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp, sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots. Fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.
Ţvert nei viđ tilbođi FÍF
16.3.2010
"Það tók samninganefnd Samtaka atvinnulífsins/ríkisins heilar tíu mínútur að meta nýtt tilboð sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra lagði fram á fundi ríkissáttasemjara eftir hádegið í dag og svara síðan með því að segja þvert nei," segir í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra flugumferðarstjóra sem send var út kl. 18 í kvöld.
Flugumferđarstjórar aflýsa bođuđu verkfalli
16.3.2010
Á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag lagði Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) fyrir viðsemjendur sína tillögu að lausn yfirstandandi kjaradeilu. Jafnframt aflýsti félagið boðuðum verkföllum flugumferðarstjóra á morgun miðvikudaginn 17. mars og á föstudag 19. mars.
Lagasetning brot á samţykktum Alţjóđavinnumálastofnunarinnar
16.3.2010
David Cockroft, framkvæmdastjóri Alþjóðaflutningaverkamannasambandsins, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra bréf þar sem hann hvetur íslensk stjórnvöld til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og leggja til hliðar fyrirætlanir um að afnema með lögum réttindi til verkfalls. Þess í stað eigi stjórnvöld að stuðla að því að skapa sanngjarnt og uppbyggilegt umhverfi samningaviðræðna sem gagnast megi báðum samningsaðilum.
Ţolinmćđi lögreglunnar á ţrotum
15.3.2010
"Lögreglumenn hafa gríðarlegt langlundargeð og mikla þolinmæði en sú þolinmæði er nú á þrotum. Þegar þetta er skrifað (12. mars 2010) hafa kjarasamningar lögreglumanna verið lausir í litla 284 daga. Þetta langlundargeð lögreglumanna og þolinmæði er orðin af afar skornum skammti. Það sást enda allvel fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara s.l. þriðjudag (9. mars 2010) þegar stór hópur lögreglumanna mætti þar til að sýna samninganefnd sinni stuðning í verki þegar hún mætti þar til fundar, við samninganefnd ríkisins, undir forsæti Ríkissáttasemjara," segir Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna m.a. í grein á heimasíðu LL.
Trúnađarmannanámi BSRB og FA lokiđ í vor
12.3.2010
Vorönn trúnaðarmannanáms BSRB og Félagsmálaskóla BSRB lauk í dag með því að um tíu trúnaðarmenn útskrifuðust úr náminu. Þetta er fimmta önnin sem þessir nemendur sækja sér fræðslu sem trúnaðarmenn og gildir það sem 10 einingar í framhaldsskólanámi.
BSRB mótmćlir áformum um bráđabirgđalög á verkfallsađgerđir FÍF
11.3.2010
"BSRB mótmælir öllum áformum um að stjórnvöld grípi inn í vinnudeilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Flugstoðir ohf og Keflavíkurflugvöll ohf með setningu bráðabirgðalaga á verkfallsaðgerðir félagsins. Í fjölmiðlum hafa verið reifaðar hugmyndir um inngrip stjórnvalda í vinnudeiluna. Sú umræða hefur áhrif á viðræður aðila og hleypir aukinni hörku í deiluna. Verkfallsréttur launafólks eru grundvallarréttindi og inngrip stjórnvalda með lagasetningu eins og nú er til umræðu er ólýðræðisleg valdbeiting," segir m.a. í ályktun frá stjórn BSRB.
Nýtt launakerfi - óbreytt laun?
11.3.2010
Nýtt launakerfi - óbreytt laun? er yfirskrift á erindi sem Katrín Ólafsdóttir lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík flytur á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 19. mars kl. 14. Erindið er byggt á doktorsritgerð Katrínar sem m.a. fjallar um breytingu á launakerfi ríkisstarfsmanna árið 1998.
Fjögurra tíma verkfall FÍF í fyrramáliđ
9.3.2010
Fyrsta verkfall Félags íslenskra flugumferðarstjóra hefst í fyrramálið. Samningafundi félagsins með viðsemjendum var slitið rétt fyrir klukkan sjö í kvöld án niðurstöðu. Verkfallið í fyrramálið stendur frá klukkarn sjö til 11.
Fjölmenn mótmćli lögreglumanna hjá Sátta
9.3.2010
Lögreglumenn fjölmenntu við húsakynni ríkissáttasemjara við Borgartún í Reykjavík kl. 14 í dag þegar fundur samninganefnda Landssambands lögreglumanna og ríkisins hófst. Kjarasamningar lögreglumanna hafa nú verið lausir frá því í ágúst í fyrra þegar lögreglumenn felldu kjarasamning með yfir 90% greiddra atkvæða.
Unniđ verđi í nánu samstarfi viđ starfsmenn og stéttarfélög
9.3.2010
„Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri. Margar stofnanir eru undirmannaðar vegna niðurskurðar um leið hafa verkefni aukist og víða gengið á kjör starfsmanna. Við þetta verður ekki unað," segir m.a. í ályktun aðalfundar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um kjaramál sem haldinn var í gær.
Versnandi kjörum og auknu vinnuálagi mótmćlt
9.3.2010
Félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti ályktanir um kjaramál og heilbrigðismál á fundi 4. mars sl. Í ályktuninni um kjaramál er vakin athygli á að kjarasamningar félagsins hafa verið lausir í 11 mánuði og því er mótmælt að samhliða versnandi kjörum hafi vinnuálag og undirmönnun á heilbrigðisstofnunum aukist verulega. Í ályktuninni um heilbrigðismál er lýst vaxandi áhyggjum og eindreginni andstöðu við síendurteknum ákvörðunum stjórnvalda um niðurskurð á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu.
Fullt hús á fundi vegna 8. mars
8.3.2010
Fullt hús var á fundi á Grand Hóteli í hádeginu í dag vegna 8. mars. Yfirskrift fundarins var Frelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs. Að fundinum stóðu auk BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.
Alţjóđlegur barátttudagur kvenna 8. mars
5.3.2010
BSRB stendur ásamt fleiri félagasamtökum að tveimur fundum sem haldnir verða mánudaginn 8. mars en þá er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti haldinn í hundraðasta skiptið. Þá stendur SFR að ráðstefnu á Akureyri 8. mars. Félagið mun halda ráðstefnur um jafnréttismál í öllum landsfjórðungum í mars og apríl.
Fundađ međ stjórn SLFÍ
4.3.2010
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB funduðu í dag með stjórn Sjúkraliðafélags Íslands. Fundurinn fór fram á skrifstofa SLFÍ, Grensásvegi 16 í Reykjavík. Þetta er annar fundur formanns og framkvæmdastjóra BSRB með stjórnum aðildarfélaga bandalagsins á þessu ári en stefnt er að því að funda með stjórnum allra félaganna á næstu vikum og mánuðum.
Viđ getum betur
4.3.2010
Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti standa fjölmörg félagasamtök fyrir dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 8. mars 2010 kl.17 undir yfirskriftinni Við getum betur. BSRB og nokkur aðildarfélög bandalagsins eru meðal þeirra sem standa að dagskránni.
Frelsi til fjölskyldulífs
3.3.2010
Frelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs, er yfirskrift fundar í tilefni 100 ára afmælis alþjóðlegs baráttudags kvenna mánudaginn 8. mars. Að fundinum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Fundurinn er á Grand hóteli í Reykjavík frá kl. 11.45 til 13.
FÍF bođar verkfallsađgerđir
3.3.2010
Niðurstaða atkvæðagreiðslu Félags íslenskra flugumferðarstjóra um boðun verkfalla til að þrýsta á um gerð kjarasamnings var afgerandi. 98% kusu með verfallsboðun. Kjörsókn var góð en um 70% félagsmanna tóku þátt í henni. Framkvæmd verkfallanna hefur verið kynnt yfirstjórn Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. en verkföllin ná ekki til félagsmanna FÍF sem starfa hjá Flugmálastjórn Íslands.
Fyrsta útskrift úr trúnađarmannanámi BSRB og FA
2.3.2010
Um 20 trúnaðarmenn á vegum aðildarfélaga BSRB útskrifuðst í dag úr trúnaðarmannanámi BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast úr náminu en það hófst á vorönn 2008. Auk þess að styrkja trúnaðarmennina í starfi veitir það þeim 10 einingar á framhaldsskólastigi.
Jafnréttisráđstefnur SFR í öllum landsfjórđungum
2.3.2010
SFR stendur fyrir ráðstefnuröð um jafnrétti á komandi vikum og verður ráðstefna haldin í öllum landsfjórðungum. Fyrsta ráðstefnan verður á Akureyri 8. mars á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Næst er komið að Egilsstöðum 14. apríl, Ísafirði 20. apríl og endað í Reykjavík 28. apríl.
Norđmenn láni Íslandi óháđ endurskođun AGS
2.3.2010
Tveir forystumenn opinberra starfsmanna í Noregi, Jan Davidsen formaður Fagforbundet og Kjartan Lund framkvæmdastjóri NOFS, birtu í dag lesendabréf í Dagbladet þar sem þeir hvetja norsk stjórnvöld til að lána Íslendingum óháð endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands.
Atvinnumiđstöđ Hafnarfjarđar opnar á nćstunni
1.3.2010
Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar verður opnuð á næstunni þar sem sinnt verður svæðisbundinni vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði, einkum langtímaatvinnulausa og ungt fólk. Þetta er þróunarverkefni byggt á samstarfs- og þjónustusamningi milli Vinnumálastofnunar og Hafnarfjarðarbæjar með aðild Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði, en Starfsmannafélag Hafnarfjarðar er aðili að fulltrúaráðinu.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























