Fréttir
Stöndum vörđ um samningsbundin réttindi
30.4.2010
FÍF samţykkti kjarasamninginn
30.4.2010
Fjölmennum á baráttufundi 1. maí
30.4.2010
Á morgun 1. maí verða haldnar baráttusamkomur víða um land. Fjórir fulltrúar BSRB munu halda ræður á baráttufundum á alþjóðalegum baráttudegi verkalýðsins á morgun. Það eru Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB sem heldur ræðu á Austurvelli í Reykjavík, Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ sem heldur ræðu í Hafnarfirði, Þuríður Einarsdóttir formaður PFÍ sem heldur ræðu í Búðardal og Ólöf Hildur Gísladóttir starfsmaður FOS-Vest flytur ávarp í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Byggjum nýtt Ísland!
30.4.2010
"Eldar loga á Íslandi, jafnt í náttúrunni sem hjá almenningi. Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna kynda nýja elda hjá þjóðinni. Þar er skjalfest hvernig þröngur hópur siðblindra einstaklinga fór ránshendi um þjóðarbúið án þess að stjórnvöld og eftirlitsaðilar gerðu neitt til að koma í veg fyrir það, þrátt fyrir viðvaranir. Þjóðin stendur frammi fyrir afleiðingum þeirrar hömlulausu trúar á einkaframtakið sem byrjað var að predika á tíunda áratug síðustu aldar og náði hámarki með einkavinavæðingu bankanna í byrjun þessarar aldar." Þannig hefst 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
BSRB styrkir Lúđrasveit verkalýđsins
29.4.2010
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB undirritaði í dag samning við Lúðrasveit verkalýðsins þar sem bandalagið styrkir lúðrasveitina um 400 þúsund krónur árlega næstu þrjú árin. Samningurinn gildir til ársloka 2012. Á móti mun Lúðrasveit verkalýðsins leika í 1. maí kaffi BSRB þessi þrjú ár auk þess sem bandalagið getur fengið sveitina til að leika við tvö önnur tilefni árlega án sérstakrar greiðslu.
BSRB tíđindi komin út
28.4.2010
1. maí blað BSRB er komið út. Því er dreift til allra félagsmanna BSRB. Blaðið er fjölbreytt að efni. Má þar nefna viðtal við Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB, umfjöllun um störfin sem mestu skila, viðtöl við félagsmenn, yfirheyrslur, umfjöllun um launamun kynjanna, viðtal við Ögmund Jónasson, vinnuverndarmál, umfjöllun um Virk og ýmislegt fleira.
Sendinefnd frá AGS á fundi hjá BSRB
27.4.2010
Sendinefnd frá AGS átti fund með fulltrúum BSRB og BHM í BSRB húsinu i dag. Auk fulltrúa þessara samtaka sátu fundinn fulltrúar úr fjármálaráðuneytinu. Á fundinum var fjallað um stefnumótun í skattamálum auk þess sem sendinefndinni voru kynntar ályktanir 42. þings BSRB um AGS, efnahagsmál og opinbera almannaþjónustu.
FÍF undirritađi kjarasamning viđ SA
25.4.2010
NOFS lýsir yfir samstöđu međ íslensku ţjóđinni vegna gossins
21.4.2010
LSS afli sér verkfallsheimildar
20.4.2010
Almannaţjónustan sé tryggđ viđ sameiningu ríkisstofnana
16.4.2010
Kynning á sameiningaráformum stjórnvalda
15.4.2010
Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Arnar Þór Másson sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu kynntu á opnum fundi í BSRB húsinu í dag áform stjórnvalda um sameiningu stofnana ríkisins. Stefnt er að því að sameining ríkisstofnana komi fram í hagræðingu í rekstri.
Kjaradeilu lögreglumanna vísađ til gerđardóms
15.4.2010
Opinn fundur um sameiningu stofnana
13.4.2010
Opinn fundur um fyrirhugaðar sameiningar stofnanna ríkisins verður haldinn í BSRB húsinu fimmtudaginn 15. apríl kl. 14. Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Arnar Þór Másson sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu munu þar kynna áform stjórnvalda um sameiningu stofnana en eins og fram hefur komið, m.a. hjá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra eru uppi áform um að sameina 80 stofnanir ríkisins.
Skýrsla Landssamtaka lífeyrissjóđa um lćrdóm af efnahagshruninu
8.4.2010
Vaxandi óánćgja vegna ástands kjaramála
8.4.2010
Opiđ bréf til íslensku ţjóđarinnar
7.4.2010
Í heilsíðuauglýsingu sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra og Flugvirkjafélag Íslands birti á skírdag segir að nýleg framganga ríkisstjórnarinnar í kjaradeilum flugvirkja og flugumferðarstjóra sé alvarleg áminning um að íslenskt launafólk búi ekki við grundvallar mannréttindi sem talin hafa verið varin af stjórnarskrá lýðveldisins. "Með nýsettum lögum, sem banna verkfall Flugvirkjafélags Íslands og með ótun um lög á verkfall Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hafa ríkisstjórn og Alþingi í raun afnumið verkfallsréttinn í landinu og brotið um leið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu," segir m.a. í auglýsingunni.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























