Fréttir
FFR samţykkti kjarasamning viđ Isavia
27.5.2010
Laus hús í Stóruskógum og Munađarnesi
26.5.2010
Hægt er að leigja hús yfir næstu helgi í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi þótt komin sé sumartími. Um að gera að nýta sér þetta enda spáin fyrir helgina mjög góð og allur gróður að springa út. Orlofshúsin er hægt að leigja í gegnum bókunarvefinn hér á síðunni. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Viđrćđur um sameiningu STH, FOSS og SDS
26.5.2010
Kvennamál Snorra og stuđmússík á menningarhátíđ BSRB
25.5.2010
Á annað hundrað manns nutu tónlistar stuðboltanna í South River Band og upplesturs og frásagnar Óskars Guðmundsson af Snorra Sturlusyni á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi í veðurblíðunni laugardaginn 22. maí. Þá var opnuð sýning á málverkum Elfars Guðna Þórðarsonar í þjónustumiðstöðinni sem standa mun fram á haust
Fróđlegt erindi um bankahruniđ
21.5.2010
Góður rómur var gerður að erindi Salvarar Nordal, Bankahrun og lærdómar, sem hún hélt í BSRB húsinu í morgun. Salvör Nordal er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta sannsóknarskýrslu Alþingis. Salvör kom víða við í erindi sínu og fjallaði m.a. um starfshætti innan bankanna, lagahyggju ábyrgð og traust.
Undrun og vonbrigđi međ sölu HS Orku
21.5.2010
Bođuđum niđurskurđi í velferđarkerfinu mótmćlt
21.5.2010
FOSVest heimsótt
19.5.2010
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri bandalagsins heimsóttu stjórn Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum í gær og sátu stjórnarfund hjá þeim. Á fundinum var m.a. rætt um hlutverk BSRB og framtíðarstefnu bandalagsins og aðildarfélaga þess.
Menningarhátíđ BSRB 22. maí
19.5.2010
Árleg menningarhátíð BSRB verður haldin í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi laugardaginn 22. maí kl.14. Á hátíðinni verður opnuð sýning á málverkum Elfars Guðna Þórðarsonar. Óskar Guðmundsson rithöfundur segir frá Snorra Sturlusyni og les úr bók sinni um Snorra og South River Band flytur tónlist. Aðgangur er ókeypis og að lokinni dagskrá eru veitingar í boði BSRB.
Bankahrun og lćrdómar
18.5.2010
Bankahrun og lærdómar nefnist erindi sem Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands verður með á opnum fundi í BSRB húsinu föstudaginn 21. maí kl. 10.30. Salvör var ein af þremur sérfræðingum í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem vann siðfræðihluta sannsóknarskýrslu Alþingis.
Lífeyrisrétturinn órjúfanlegur hluti af heildarkjörum
17.5.2010
"Þegar rætt er um skuldbindingar ríkisins vegna B-deildar LSR má ekki gleyma því að þá er einnig verið að tala um réttindi þess fólks sem starfað hefur í opinberri þjónustu á undanförnum áratugum. Lífeyrisrétturinn hefur verið órjúfanlegur hluti af heildarkjörum þeirra og launin hafa oft á tíðum verið lægri en ella vegna góðra lífeyrisréttinda. Skuldbindingar eða skuld ríkisins eru því áunnin réttindi tugþúsunda einstaklinga og þær eiga að koma til greiðslu á næstu áratugum. Að bera þetta saman við Icesave skuldina er vart sæmandi," segir m.a. í grein eftir Hauk Hafsteinsson framkvæmdastjóra LSR.
Niđurskurđi harđlega mótmćlt
17.5.2010
Alvöru samningsviđrćđur hefjist strax viđ SLFÍ
14.5.2010
Kjaradeila TFÍ til Ríkissáttasemjara
11.5.2010
Samninganefnd Tollvarðafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við ríkið til Ríkissáttasemjara. Í frétt á heimasíðu TFÍ kemur fram að á undanförnum mánuðum hafi ekki verið að finna mikinn samningsvilja að hálfu SNR og því hafi deilan staðið í stað.
Umferđarstofa og Sýslumađurinn á Hvolsvelli voru stofnanir ársins
11.5.2010
FFR semur viđ ISAVIA ohf
7.5.2010
BSRB ađili ađ Frćđslumiđstöđ atvinnulífsins
6.5.2010
BSRB varð í dag aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samningur um það var undirritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í dag. Samninginn undirrituðu Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Inga Rún Ólafsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðrún Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.
Slökkviliđs- og sjúkraflutningamenn mótmćla
5.5.2010
Um 70 slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn söfnuðust saman fyrir utan skrifstofur Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30 í morgun til að mótmæla þeim seinagangi sem er í viðræðum við Launanefnd sveitarfélaga, en samninganefnd LSS átti fund með LN kl. 10 í morgun.
Kynningarfundir fyrir sjóđfélaga LSR
4.5.2010
LSR heldur kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 27. maí. Hægt er að velja um tvær tímasetningar kl. 8:30 -10:00 eða kl. 16:30 -18:00. Á fundunum verður fjallað um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.
Sinubruni í Munađarnesi
3.5.2010
Sinubruni varð í Munarnesi að kveldi 1. maí og mátti litlu muna að eldurinn bærist ekki í orlofshús á svæðinu. Eldurinn kviknaði vegna þess að börn höfðu farið óvarlega með eld og er brýnt að jafnt börn sem fullorðnir fari varlega með eld sérstaklega á þessum árstíma.
Niđurskurđurinn bitni ekki á grunnţjónustu samfélagsins
1.5.2010

"Öflug opinber almannaþjónusta er aldrei eins mikilvæg eins og í því ástandi sem nú ríkir. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum áhrifum umfram það sem kreppan gefur tilefni til. BSRB krefst þess að tryggt verði að aðgerðir til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunnþjónustu samfélagsins. Frá þeirri kröfu verður ekki hvikað," sagði Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB m.a. í ræðu sinni á mjög fjölmennum baráttufundi á Austurvelli í dag 1. maí.
Nýja hugsun - nýtt ţjóđfélag
1.5.2010
„Ójafnrétti kynjana er mein í íslensku samfélagi sem við viljum ekki hafa með okkur inn í framtíðina. Því verður að linna að litið sé á að þau störf er konur inna af hendi séu óæðri hefðbundnum karlastörfum. Við viljum ekki taka þetta mein með okkur inn í framtíðina. Við viljum nýja hugsun, við viljum nýtt þjóðfélag," sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands í ræðu sem hún hélt á baráttufundi í Hafnarfirði 1. maí.
1. maí alţjóđlegur baráttudagur verkalýđsins
1.5.2010

Munið 1. maí kaffi í BSRB húsinu Grettisgötu 89 eftir útifundinn kl. 15.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























