Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Skráning á trúnaðarmannanámskeið í haust hafin

29.6.2010

Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 1. þrep er dagana 14. til 16. september. 2. þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til 6. þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB hér . Trúnaðarmenn skrái sig í samráði við sitt stéttarfélag.

LSS samþykkti verkfallsboðun

29.6.2010

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti að boða til verkfalls þeirra félagsmanna sem starfa hjá þeim sveitarfélögum sem Launanefnd sveitarfélaga fer með samningsumboð fyrir. Mjög góð þátttaka var í atkvæðagreiðslunni og var boðun verkfalls samþykkt með 95% greiddra atkvæða.

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmæla launafrystingu

21.6.2010

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir harðlega hugmyndum félagsmálaráðherra um launafrystingu opinberra starfsmanna. Ráðgjafar og stuðningsfulltrúar eru fjölmenn stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og launin óásættanlega lág fyrir, þótt þau séu ekki fryst.

Kjarasamningur SFR og Isavia samþykktur

15.6.2010

Kjarasamningur SFR og Isavia ohf sem undirritaður var 3. júní síðastliðinn hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 44. Atkvæði greiddu 31 eða 70.4%. Af þeim sem kusu sögðu 30 eða 97% já, nei sagði 1 eða 3% og enginn skilaði auðu.

Sjúkraliðar krefjast þess að launafrystingu verði þegar aflétt

10.6.2010

"Með yfirlýsingu sinni lýsir félagsmálaráðherra opinberum kvennastéttum stríð á hendur og gengur gegn þeim mikla samstarfsvilja sem sýndur hefur verið. Sjúkraliðafélag Íslands hefur verið með lausa samninga í 14 mánuði án þess að nokkuð hafi þokast í samningsátt. Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélagsins krefst þess að sú launafrysting sem verið hefur verði aflétt og nú þegar verði samið við félagið," segir m.a. í ályktun frá fundi kjaramálanefndar Sjúkraliðafélags Íslands í gær.

Hugmyndir um frystingu launa fráleitar

9.6.2010

Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB sagði í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa opinberra starfsmanna til ársins 2013 væru fráleitar. Þá sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB að tillaga félagsmálaráðherra væri stríðsyfirlýsing.

FOSVest til viðræðna við FOSS, STH og SDS um sameiningu

8.6.2010

Aðalfundur FOSVest samþykkti að ganga til viðræðna við FOSS, STH og SDS um sameiningu félaganna. Náist ásættanleg samstaða verður samningurinn borinn undir aðalfund félagsins.

SFR semur við Isavia ohf

4.6.2010

SFR og Isavia ohf skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöldi. Samningaviðræður hafa staðið yfir alllengi. Á tímabilinu urðu miklar breytingar á rekstrarumhverfi viðsemjenda þar sem meðal annars Keflavíkurflugvöllur ohf og Flugstoðir ohf runnu inn í nýtt félag, Isavia ohf.

Síðasta úthlutun úr Starfsmenntasjóði

3.6.2010

starfsmingisvuntaStarfsmenntaráð styrkti 48 verkefni á árinu 2009 um rúmar 60 milljónir króna samtals. Þetta kom fram á opnum fundi Starfsmenntaráðs í BSRB húsinu í morgun. Á fundinum var starf Starfsmenntaráðs sl. ár kynnt og úthlutanir úr Starfsmenntasjóði fyrir árið 2009. Einnig voru kynntar áherslur Starfsmenntaráðs við úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2010, en það er síðasta úthlutun úr sjónum. Til úthlutunar í ár eru 55 milljónir króna.

Helgarleiga í Stóruskógum

2.6.2010

Nokkur hús eru laus í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi og er hægt að leigja þau yfir helgi þótt komin sé sumartími. Um að gera að nýta sér þetta. Fyrstur kemur fyrstur fær. Orlofshúsin er hægt að leigja í gegnum bókunarvefinn hér á síðunni.

Fróðlegur og upplýsandi fundur um FA

2.6.2010

faadal1svuntaMjög fróðlegur og upplýsandi kynningarfundur um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var í gær, en 6. maí sl. varð BSRB aðili að Fræðslumiðstöðinni. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var stofnuð árið 2002 af ASÍ og SA og hefur starfað síðan 2003 á grunvelli þjónustusamnings við menntamálaráðuneytið. Aðild BSRB að Fræðslumiðstöðinni er í framhaldi af samþykkt laga um framhaldsfræðslu en í greinargerð með lögunum er lögð áhersla á að starfsemi Fræðslumiðstöðvarinnar nái einnig yfir opinbera vinnumarkaðinn.

Úthlutanir úr Starfsmenntasjóði kynntar

1.6.2010

Starfsmenntarad2010-junisvuStarfsmenntaráð stendur fyrir opnum fundi í húsakynnum BSRB fimmtudaginn 3. júní kl. 9:15 - 10:30. Á fundinum verður tilkynnt um úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2009 og áherslur Starfsmenntaráðs við úthlutanir úr Starfsmenntasjóði 2010. Sent verður með fjarfundabúnaði út til símenntunarmiðstöðva á landinu. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í fundinum.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta