Fréttir
Kjölur styður SFR
29.9.2010
Stjórn Kjalar stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu hefur lýst yfir fullum stuðningi við SFR stéttarfélag í almannaþjónustu, í deilum þess við Samband íslenskra sveitarfélaga um stéttarfélagsaðild. Sambandið krefst þess að starfsmenn sem vinna að málefnum fatlaðra færist úr SFR í bæjarstarfsmannafélögin, þegar málaflokkurinn flyst frá ríki til sveitarfélaga, en SFR hefur haldið á lofti kröfum um félagafrelsi.
Heimsókn frá Noregi
28.9.2010
Félagar úr Fagforbundet Nordland kíktu í heimsókn á Grettisgötuna í gær og fengu kynningu á BSRB, ASÍ og fræðslu um efnahagsástandið á Íslandi. Um er að ræða félaga úr Nordlands-deild Fagforbundet,en það er stærsta verkalýðsfélag Noregs með rúmlega 310 þúsund meðlimi. Segja má að um sé að ræða samtök sem jafngildi bæði BSRB og ASÍ hér á landi.
Hver samningseining sér
24.9.2010
Samið um upplýsingagjöf
24.9.2010
Samkomulag um umgjörð upplýsingagjafar frá ríki til heildarsamtaka ríkisstarfsmanna var undirritað í dag. Samkomulagið er liður í Framkvæmdaáætlun kjarasamninga, en samkvæmt því verður upplýsingagjöfin milli heildarsamtaka ríkisstarfsmanna og aðildarfélaga þeirra samræmd. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, undirritaði samkomulagið, ásamt þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur formanns BHM og Elnu Katrínu Jónsdóttur, varaformanni Kennarasambands Íslands. Gunnar Björnsson og Sverrir Jónsson skrifuðu undir fyrir hönd fjármálaráðherra.
Heimsókn í Grundarfjörð
23.9.2010
Elín Björg Jónsdóttir formaður og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri lögðu land undir fót í síðustu viku og sóttu Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu heim. Skrifstofur félagsins eru í Grundarfirði og þar tók Helga Hafsteinsdóttir formaður á móti þeim, ásamt fleirum úr stjórninni.
Stéttarfélagsaðild verði óþvinguð
21.9.2010
Trúnaðarmannaráð SFR krefst þess að starfsmenn haldi stéttarfélagaaðild
17.9.2010
Stjórn BSRB kallar eftir rannsókn á einkavæðingu bankanna
15.9.2010
Sjúkraliðar einhuga
13.9.2010
Launabil eykst á milli opinberra og almenna starfsmanna
13.9.2010
Launabil milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði í sameiginlegum starfsmönnum hefur aukist og laun eru nú 18% hærri á hinum almenna vinnumarkaði. Þetta kemur fram í launakönnun SFR.
Krefjast þess að mannréttindi séu virt
6.9.2010
Stjórn FSR, félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Óvissa ríkir um starfsöryggi og stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Frá þessu segir á heimasíðu SFR Vésteinn Valgarðsson, formaður FSR, sagði í samtali við Fréttablaðið að félagsmenn vilji tilheyra SFR, stéttarfélagi í almannaþjónustu, vegna lífeyrissjóðsmála sem og til að missa ekki aðgang að styrktar- og símenntunarsjóðum BSRB.
Maíkórinn hefur upp raust sína að loknu sumarfríi
6.9.2010
Maíkórinn er blandaður kór BSRB félaga sem tók formlega til starfa haustið 2009. Í vetur mun kórinn æfa á mánudögum kl. 19:30-21:30 á Grettisgötu 89. Lagaval er fjölbreytt og andinn góður. Kórinn getur bætt í allar raddir og þá sérstaklega karlaröddum, en í kórnum er bæði vant söngfólk og óvant. Allir velkomnir. Stjórnandi er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari Hörður Bragason. Nánari upplýsingar hjá svavaki@simnet.is, s. 867 7882.
Borgarafundur um fátækt á Íslandi
3.9.2010
Miðvikudaginn 8. september verður haldinn borgarafundur í Ráðhúsi Reykjavíkur um fátækt á Íslandi. Formaður BSRB verður í pallborði, ásamt ráðherrum, forseta ASÍ og fleirum. Frummælendur verða talsmenn öryrkja, aldraðra, atvinnuleitenda, félagsbótaþega og láglaunaþega, ásamt fulltrúum hjálparsamtaka. Fundurinn hefst klukkan 20.
Nánar um fundinn hér.
Úttekt á lífeyrissjóðum hafin
2.9.2010
Úttektarnefnd Landssamtaka lífeyrissjóðanna er tekin til starfa, en henni er ætlað að "gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008," líkt og segir í samþykkt um nefndina. Um þriggja manna nefnd er að ræða og tilnefndi ríkissáttasemjari alla í nefndina, að ósk stjórnar landssamtakanna.
Samþykktu samning naumlega
1.9.2010
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























