Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

Áramótapistill formanns BSRB

29.12.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBUm áramót er við hæfi að líta yfir farinn veg og hugleiða framtíðina. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá BSRB og vil ég þakka öllum þeim sem hafa komið að störfum bandalagsins hjartanlega fyrir þeirra framlag. Árið hefur um margt verið erfitt fyrir aðildarfélög bandalagsins og félagsmenn þeirra - enn eitt ár niðurskurðar og sparnaðar. Þótt hollt sé að líta um öxl tel ég þó mikilvægara að horfa til framtíðar.

Tekjuskerđingarmörk vegna húsaleigubóta hćkka

29.12.2011

Tekjuskerðingarmörk vegna húsaleigubóta hækkaVelferðarráðherra hefur ákveðið að hækka skerðingarmörk húsaleigubóta vegna fjölskyldutekna um 12,5%, úr 2,0 milljónum króna í 2,25 milljónir króna árið 2012. Þetta er í samræmi við það sem BSRB hefur lagt til þótt skerðingamörkin hefðu vissulega mátt vera enn hærri að mati bandalagsins.

Breytingar á séreignarsparnađi um áramót

28.12.2011

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsFrá og með næstu áramótum lækkar frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissparnað úr 4% í 2% af heildarlaunum. Launþegar þurfa ekki að breyta núgildandi samningum um séreignarsparnað heldur ber launagreiðendum að tryggja að iðgjaldið lækki niður í 2%.

BSRB krefst sambćrilega leiđréttinga á launum

23.12.2011

BSRB-logoBSRB telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB. Í kjölfar efnahagshrunsins missti fjöldi félagsmanna bandalagsins vinnuna og aðrir þurftu að taka á sig tímabundnar launalækkanir og skert starfshlutfall. Nú hefur kjararáð riðið á vaðið og leiðrétt þessar tímabundnu launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra starfsmanna og krefst BSRB þess að leiðréttingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni einnig koma til framkvæmda hið fyrsta. Mun BSRB í kjölfarið fara fram á viðræður við fjármálaráðherra um hvernig staðið verði að þeim leiðréttingum.

Gleđilega hátíđ

23.12.2011

JólamyndBSRB óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum, nær og fjær, gleðilegra jóla. Skrifstofa BSRB opnar aftur þann 27. desember og verður opin milli jóla og nýárs. Líkt og síðustu ár sendir BSRB ekki út jólakort að þessu sinni en styrkir þess í stað Mæðrastyrksnefnd um 500 þúsund krónur.

Formađur BSRB: Vantar fjölbreyttari úrrćđi í húsnćđismálum

21.12.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBNý skýrsla sem ber nafnið „Staða, horfur og möguleikar á húsnæðismarkaði árið 2011" sem Capacent hefur unnið fyrir Reykjavíkurborg sýnir m.a. 70% fleiri Íslendingar vilja leigja íbúð en gera það í dag. um leið þyrfti að fjölga leiguíbúðum um 13 þúsund á höfuðborgarsvæðinu og 16 þúsund á landinu öllu. „Þetta staðfestir margt af því sem BSRB hefur haldið fram síðustu mánuði þótt okkur hafi ekki grunað að þörfin fyrir leiguhúsnæði væri svona gríðarlega mikil," segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB.

Meira um rýrnun barnabóta: Hilmar í Morgunblađinu í dag

20.12.2011

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBMorgunblaðið birtir í dag viðtal við Hilmar Ögmundsson, hagfræðing BSRB, þar sem hann fjallar um skerðingu barnabóta. Á sunnudagskvöld var Hilmar í viðtali í kvöldfréttum sjónvarps út af sama málefni. Hilmar hefur bent á þá miklu rýrnum sem hefur orðið á barnabótum síðust ár miðað við verðlag.

Borgin kannar leiđir til ađ koma á fjölbreyttari húsnćđisstefnu

19.12.2011

Nýjar íbúðir rísa í ReykjavíkNýverið bárust fréttir af því að 300 nýjar íbúðir séu nú í byggingu miðsvæðis í Reykjavík og allt að 500 til viðbótar gætu farið í byggingu á næsta ári. Reykjavíkurborg samþykkti síðasta haust nýja húsnæðisstefnu sem er að hluta í samræmi við þær tillögur sem BSRB hefur boðað undanfarin misseri.

Hagfrćđingur BSRB á Rúv: Barnabćtur hafa rýrnađ um 20%

19.12.2011

Hilmar Ögmundssson í viðtali við fréttastofu RúvBarnabætur hafa rýrnað um tuttugu prósent miðað við verðlag síðustu þriggja ára samkvæmt því sem að Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, hefur reiknað út. Hann fjallaði ítarlega um málið í fréttum Rúv í gærkvöldi þar sem m.a. kom fram að lágmarkslaun hafa hækkað á síðustu árum en ekki frítekjumark vegna barnabóta og því hafi bætur til foreldra á lágmarsklaunum farið minnkandi.

Ađgerđir til ađ vinna gegn langtímaatvinnuleysi

16.12.2011

Aðilar vinnumarkaðarins, velferðarráðherra og borgarstjóri ásamt formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga.Samráðshópur stjórnvalda, stjórnmálaflokkanna og aðila vinnumarkaðarins um menntun og vinnumarkaðsúrræði skilaði 31. mars 2011 tillögum sínum til ríkisstjórnarinnar um átak til þriggja ára. Fyrr í dag var svo skrifað undir tillögur að átakinu og fjármögnun þeirra í Ráðhúsi Reykjavíkur.

BSRB styrkir Mćđrastyrksnefnd

15.12.2011

BSRB-logoSú ákvörðun var tekin á síðasta stjórnarfundi BSRB að veita Mæðrastyrksnefnd styrk fyrir þessi jól að upphæð 500 þúsund krónur.

Breytingar á almennum tekjuskatti skila óverulegum hćkkunum ráđstöfunartekna

13.12.2011

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBSamkvæmt fjárlagafrumvarpi 2012 áttu öll tekjuþrep í almennum tekjuskatti að hækka um 3,5% og persónuafsláttur um 5,1% frá 1. janúar 2012. En samkvæmt breytingartillögu fjárlaganefndar Alþingis er nú lagt til að mörkin á milli fyrsta og annars tekjuþreps í almennum tekjuskatti hækki í 230.000 krónur, eða rúm 9,8%. Hækkun annars og þriðja tekjuþreps mun hins vegar haldast óbreytt í 3,5%.

Dómur Hćstaréttar í máli félagsmanns BSRB varđandi lögmćti uppsagnar

8.12.2011

 Í dag féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns BSRB gegn Isavia ohf. en Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011. Dómurinn er fordæmisgefandi og hefur mikla þýðingu fyrir félagsmenn bandalagsins varðandi réttarstöðu þeirra við aðilaskipti að fyrirtækjum.

Mannréttindamál í Hörpunni á föstudag

7.12.2011

Alþjóðlegi mannréttindadagurinn, 10. desemberFyrsti fundur í fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál verður haldinn í Hörpunni í Reykjavík föstudaginn 9. desember klukkan 11.30 til 14.15. Tilefni þessa fyrsta fundar er Alþjóðlegi mannréttindadagurinn, 10. desember, en Sameinuðu þjóðirnar hvetja aðildarlönd sín til að taka mannréttindamál til sérstakrar umfjöllunar þann dag.

Opinn fundur um frumvarp stjórnlagaráđs

6.12.2011

Ný stjórnarskrá ÍslandsOpinn fundur um frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár verður haldin annað kvöld, miðvikudaginn 7. desember, kl. 20:00 á vegum Lýðræðisfélagsins Öldu, Stjórnarskrárfélagsins, Hreyfingarinnar og Borgarahreyfingarinnar

Ályktun stjórnar BSRB

2.12.2011

BSRB-logoStjórn BSRB samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem hið opinbera var hvatt til frekari eftirgjafar í niðurskurðarkröfum á heilbrigðisstofnanir, nýjum fjársýsluskatti á lífeyrissjóði var mótmælt og breytingum á séreignarlífeyriskerfinu var harðlega mótmælt. Ályktunina í heild sinni má nálgast hér að neðan.

Ný skýrsla um félagsţjónustu sveitarfélaga

1.12.2011

Félagsþjónusta sveitarfélaga árið 2011Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út skýrsluna „Félagsþjónusta sveitarfélaga árið 2011". Þar eru í fyrsta sinn dregnar saman og gefnar út yfirgripsmiklar upplýsingar um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Ađalfundur Starfsmannafélags Garđabćjar

1.12.2011

Vala Dröfn Hauksdóttir, formaður Starfsmannafélags GarðabæjarÁ aðalfundi STAG sem haldinn var um miðjan síðasta mánuð var lögum félagsins breytt þannig að nú eru 5 aðalmenn í stjórn félagsins. Einnig verður kosið sérstaklega um formann og ritara.

Ráđstefna: Ný viđhorf til náms

30.11.2011

Fræðslumiðstöð atvinnulífsinsNý viðhorf til náms er yfirskrift ráðstefnu sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norrænt tengslanet um nám fullorðinna halda í samstarfi, föstudaginn 2. desember kl. 13.30-16.30 á Hótel Reykjavík Natura.

Sólarhrings allsherjarverkfall opinberra starfsmanna í Bretlandi

30.11.2011

Um 2 milljónir opinberra starfsmanna hafa lagt niðurstörf í Bretlandi í dagOpinberir starfsmenn í meira en 25 löndum mótmæla í dag efnahagsþrengingum, auknum ójöfnuði, breytingum á lífeyriskerfum, uppsögnum og fátækt. Í Bretlandi hafa um tvær milljónir opinberra starfsmanna frá um 30 verkalýðsfélögum lagt niður störf í dag. Flug, almenningssamgöngur, skólahald og rekstur sjúkrahúsa er á meðal þess sem raskast veruleg í Bretlandi í dag vegna þessa sólahrings verkfalls.

Dregiđ úr sparnađarkröfum spítalanna: Skref í rétta átt

29.11.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB á 1. maíMeirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt til að dregið verði úr sparnaði sjúkrahúsa landsins miðað við það sem fyrstu drög fjárlagafrumvarps ársins 2012 gerðu ráð fyrir. Formaður BSRB segir þær fréttir vera af hinu góða þótt betra hefði verið að sjá fjárveitingar til sjúkrahúsanna enn hærri.

Grein formanns Sjúkraliđafélagsins í tilefni af Evrópudegi sjúkraliđa

29.11.2011

Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags ÍslandsKristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, skrifaði grein í Fréttablaðið um helgina í tilefni af Evrópudegi sjúkraliða sem fór fram á laugardag. Markmið dagsins er að vekja athygli á störfum sjúkraliða hvar sem þeir starfa og minna á nauðsyn slíkrar fagstéttar innan heilbrigðiskerfisins. Greinina má finna hér að neðan.

Auglýsingaherferđ BSRB

28.11.2011

Ein auglýsinga BSRB sem birst hefur síðustu dagaBSRB hefur síðustu daga birt auglýsingar í öllum stærstu dagblöðum landssins, útvarpi og sjónvarpi þar sem alþingsmenn og sveitastjórnarfulltrúar eru hvattir til að hafna uppsögnum og frekari niðurskurði í fjárhagsáætlunum sínum fyrir næsta ár. 

Í dag er alţjóđlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum

25.11.2011

Frá Ljósgöngunni 2010Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hófst formlega í dag með Ljósagöngum og morgunverðarfundi UN Women. Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er nú haldið í áttunda sinn á Íslandi en megið markmið þess er að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot.

Vel sóttur fundur hjá BSRB um verđtryggingu

24.11.2011

Gestir fundarins sátu fyrir svörum að framsögum loknumOpinn fundur um verðtryggingu fór fram í húsnæði BSRB í gær og var vel sóttur. Þar fjölluðu Þórólfur Matthíasson prófessor, Þórey S. Þórðardóttir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, Óskar Hafnfjörð Auðunsson aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka og Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, um kosti og galla verðtryggingarinnar. Upptöku af fundinum má nálgast hér á síðunni.

Eldvarnarátak LSS: Alţingismönnum kennt ađ slökkva elda

23.11.2011

Forseti Alþingis lærir handtökin við að nota slökkviliðstækiLandssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna stendur þessa dagana fyrir eldvarnarátaki sem miðar að því að fræða fólk um eldvarnir og mikilvægi þeirra. Átakinu er fyrst og fremst beint að ungu kynslóðinni og verða rúmlega 4 þúsund 8 ára börn heimsótt á meðan átakinu stendur. Eldri kynslóðirnar fá þó einnig sína fræðslu og í dag heimsóttu slökkviliðsmenn Alþingi þar sem þingmenn og ráðherrar fengu m.a. kennslustund í að slökkva elda.

BSRB býđur til opins fundar um verđtryggingu á morgun

22.11.2011

PeningarBSRB vekur athygli á opnum fundi um verðtryggingu sem fer fram í hádeginu á morgun í húsnæði bandalagsins að Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð.

Velferđarvaktin minnir á sig

21.11.2011

Velferðarvaktin„Standa verður vörð um grunnþjónustuna og má ekki draga úr henni gagnvart viðkvæmustu hópunum," er meðal þeirra ályktana sem Velferðarvaktin samþykkti á fundi sínum fyrr í mánuðnum. Velferðarvaktin hefur nú verið starfandi í tvö ár en hlutverk hennar er að hlutverk að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum efnahagshrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna.

Lóa nýr framkvćmdastjóri NFS

18.11.2011

Lóa BrynjúlfsdóttirLóa Brynjúlfsdóttir hefur nú tekið formlega við starfi framkvæmdastjóra NFS - Norræna verkalýðs-sambandsins, sem BSRB er aðili að. Lóa er ekki bara fyrsti Íslendingurinn til að gegna þessu starfi því hún er jafnframt fyrsta konan í framkvæmdastjórastöðu NFS.

Opinn fundur um verđtryggingu

17.11.2011

PeningarBSRB efnir til opins fundar um verðtryggingu í næstu viku, miðvikudaginn 23. nóvember kl. 12:00 - 13:20, í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð.

Feđur taka fćrri daga í fćđingarorlof

16.11.2011

Landshagir 2011Feður taka mun færri daga í fæðingarorlof nú en fyrir efnahagshrun eftir því sem fram kemur í nýútgefnum Landshögum 2011, hagtöluárbók Hagstofu Íslands. Þar má einnig sjá að útgjöld Atvinnuleysis-tryggingasjóðs hafa margfaldast á milli ára og bótaþegum vegna örorkulífeyris hefur fjölgað lítillega.

Jafnréttisstofa býđur til ráđstefnu um kynjasamţćttingu

15.11.2011

jafnréttisstofaÞann 22. nóvember býður Jafnréttisstofa til ráðstefnu um kynjasamþættingu undir yfirskriftinni „Fléttum saman þræðina - Kyn og opinber stjórnsýsla". Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður Reetta Siukola sem er einn helsti sérfræðingur Finnlands í innleiðingu kynjasamþættingar. Hún mun fjalla um reynslu Finna af því að taka upp kynjasamþættingu í erindi sínu Gender mainstreaming in Finland - Good practices, experiences and lessons learned.

Skráning í Forystufrćđslu - fjarkennsla einnig í bođi

14.11.2011

starfsmennt - námsvísirForystufræðsla fyrir starfsfólk og stjórnir stéttarfélaga heldur áfram undir lok mánaðar en um er að ræða 170 stunda heildstæða námsleið til að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni og mæta þannig nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn. Tvö námskeiðanna verða kennd nú í nóvember og að þessu sinni verður einnig boðið upp á fjarkennslu.

Formađur BSRB skrifar í Fréttablađiđ

10.11.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBElín Björg Jónsdóttir formaður BSRB skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni „Félagsleg samheldni skilar meiru en einstaklingshyggja". Þar fjallar hún m.a. um velferðarkerfið og skatta með hliðsjón af því sem Torben M. Andersen, sérstakur gestur á aðalfundi BSRB sagði í erindi sínu þar.

Ţjóđarsáttmáli gegn einelti undirritađur fyrr í dag

8.11.2011

Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB undirritar sáttmálann fyrir hönd BSRBDagurinn í dag er helgaður baráttunni gegn einelti og í hádeginu undirrituðu borgarstjóri Reykjavíkur, mennta- og menningar- málaráðherra, velferðarráðherra ásamt fulltrúum ýmissa félagasamtaka sérstakan Þjóðarsáttmála gegn einelti. Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, undirritaði sáttmálann fyrir hönd bandalagsins.

Starfsmennt minnir á sig

8.11.2011

StarfsmenntÞað er alltaf nóg um að vera hjá Starfsmennt og nokkur fjöldi námsskeiða fer af stað nú í nóvember. Einnig styttist í næstu lotu Forystufræðslu BSRB en frekari upplýsingar um þau námsskeið sem boðið verður upp á næstu vikurnar má finna í nýjasta fréttabréfi Starfsmenntar.

Dagur gegn einelti í dag

8.11.2011

BSRB-logoDagur gegn einelti er í fyrsta sinn haldinn í dag 8. nóvember. Ekki verður of oft kveðið á um hve mikilvægt er að öllum líði vel á vinnustað sínum og þar sé góður starfsandi, samskipti jákvæð og starfsumhverfi gott. BSRB hefur staðið fyrir öflugri fræðslu til handa trúnaðarmönnum til fjölda ára um aðgerðir og viðbrögð við einelti á vinnustað og á þessum degi er tilvalið að minna á það sem þar kemur fram.

Verkfallsbođun talin lögmćt - fordćmisgefandi fyrir ađildarfélög BSRB

4.11.2011

Sinfóníuhljómsveit ÍslandsÍslenska ríkið stefndi Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar Íslands nýverið fyrir Félagsdóm og krafðist þess að boðað verkfall yrði dæmt ólögmætt, á þeirri málfræðilegu forsendu að um væri að ræða verkföll en ekki verkfall. Nú hefur dómur fallið í málinu Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitarinnar í vil og er sá dómur fordæmisgefandi fyrir aðildarfélög BSRB sem gera kjarasamninga við ríki og sveitarfélög.

Ţjóđarsáttmáli um baráttu gegn einelti

4.11.2011

Í þínum sporum - stöndum saman gegn eineltiVerkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu „Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum" sem kom út í júní 2010.

Hagfrćđingur BSRB í Morgunútvarpi Rásar 2

2.11.2011

Grein Hilmars Ögmundssonar, hagfræðings BSRB, sem birtist á vef BSRB í gær hefur vakið nokkra athygli. Í greininni bendir Hilmar á að neysluskattar sem hafa verið til umræðu undanfarið muni þyngja skuldastöðu heimilanna. Hilmar var gestur Morgunútvarps Rásar 2 vegna þessa í morgun.

Framkvćmdastjóri BSRB í Fréttablađinu: Fjöldi ráđninga ráđuneyta án auglýsinga sláandi

2.11.2011

Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRBHelga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að fjöldi ráðninga ráðuneyta án auglýsinga sé sláandi og ekki í anda þess að sá hæfasti sé ráðinn í hvert skipti. Helga bendir á að árið 2007 hafi BSRB mótmælt lagabreytingum sem gerðu ráð fyrir að ekki þyrfti að auglýsa stöður ef ráðið væri innan Stjórnarráðsins og að sömu rök séu enn í gildi.

Vara viđ innleiđingu neysluskatta

1.11.2011

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBÍ kjölfar nýrrar skýrslu, þar sem m.a. kemur fram að Íslendingar eru næst feitasta þjóð í heimi, hefur velferðarráðherra boðað þjóðarátak í heilsu. Í framhaldinu gaf ráðherrann í skyn að til greina komi að beita skattkerfinu til að breyta neyslumynstri Íslendinga. Hafa sérstakir skattar á óhollari matvæli, til dæmis svokallaðir sykurskattar, verið nefndir í því samhengi og með slíkum sköttum eigi að reyna að stýra vali neytenda.

Ráđherra úthlutađi styrkjum vegna nema í starfsţjálfun

31.10.2011

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra fyrr í dagMennta- og menningarmálaráðuneyti úthlutaði í fyrsta skipti í dag styrkjum til fyrirtækja og stofnana vegna nema í starfsþjálfun. Styrkirnir eiga að gera fleiri nemendum sem taka starfsþjálfun sem hluta af starfsnámi á framhaldsskólastigi kleift að ljúka tilskilinni þjálfun á vinnustað.

Fulltrúar frá Finnlandi í heimsókn

28.10.2011

Hilmar Ögmundsson fer yfir efnahagshorfur ásamt gestunum frá FinnlandiNokkrir fulltrúar frá STTK í Finnlandi, systursamtaka BSRB þar í landi, eru staddir hér á landinu. Forseti samtakana, Mikko Mäenpää, kom ásamt fylgdarliði í heimsókn til BSRB að Grettisgötu 89 í gær.

Borgarstjóri fundađi međ framkvćmdanefnd

27.10.2011

Borgarstjóri ásamt formanni BSRBJón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, mætti í vikunni til fundar í húsnæði BSRB við Grettisgötuna þar sem hann fundaði með framkvæmdanefnd bandalagsins og nokkrum starfsmönnum. Ýmis mál voru þar rædd, s.s. aðkoma borgarinnar að almennum leigumarkaði og almenningssamgöngur.

Grein formanns BSRB í Fréttablađinu í dag

26.10.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBFréttablaðið birti í dag grein Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, þar sem hún fjallar um stöðu Fæðingarorlofssjóðs og skatta á inngreiðslur séreignarlífeyrissparnaðar. Grein Elínar Bjargar fylgir þannig eftir ályktunum nýafstaðins aðalfundar BSRB þar sem fjallað var um báða málaflokkana.

„Félagsleg samheldni skilar samfélaginu meiru en einstaklingshyggja"

25.10.2011

Torben M. Andersen á fundi BSRBTorben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósarháskóla, hélt á föstudag erindi á aðalfundi BSRB. Fjallaði Torben um velferðarkerfi Norðurlandanna í víðu samhengi og leiðrétti um leið margar rangfærslur sem haldið hefur verið fram um velferðarkerfið í íslenskri umræðu síðustu misseri.

Ályktun ađalfundar BSRB

21.10.2011

BSRBAðalfundur BSRB fór fram í dag, föstudaginn 21. október, í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Dagurinn hófst með erindi Torbens M. Andersen, hagfræðiprófessors við Árósaháskóla, og síðan tóku hefðbundin aðalfundarstörf við. Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum og send út að honum loknum.

Torben M. Andersen á opnum fundi hjá BSRB

20.10.2011

Torben M. AndersenTorben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósaháskóla, heldur erindi um norrænu velferðarkerfin á tímum niðurskurðar í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89 á morgun, 21. október kl.10:00. Erindið er öllum opið og að því loknu mun hann svara spurningum viðstaddra.

Nefnd um jafnrétti kynjanna skili ađgerđaáćtlun fyrir áramót

18.10.2011

JafnréttiRáðherranefnd um jafnrétti kynjanna fjallaði á fundi sínum sl. föstudag um launamun kynjanna og mögulegar aðgerðir gegn honum. Lýsti nefndin yfir áhyggjum sínum af því hversu treglega gengur að vinna bug á honum. Samþykkt var að skipa framkvæmdanefnd um launamun kynja sem skili ráðherranefnd tillögu að framkvæmdaáætlun með tímasettum aðgerðum fyrir árslok.

Um 2500 hafa notiđ ađstođar VIRK

17.10.2011

VIRKSamkvæmt upplýsingum frá VIRK starfsendurhæfingarsjóði hafa um 2.500 einstaklingar nýtt sér þjónustu starfsendurhæfingarsjóðsins frá því honum var komið á fót. Þetta kom fram í erindi sem Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs, hélt á þingi Starfsgreinasambands Íslands fyrir helgi.

Ađalfundur BSRB, Torben M. Andersen sérstakur gestur

15.10.2011

Torben M. AndersenAðalfundur BSRB fer fram þann 21. október næstkomandi í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Torben M. Andersen, hagfræði prófessor við Árósaháskóla, verður sérstakur gestur á fundinum og verður hann með erindi frá kl. 10 að morgni og fram að hádegi. Að matarhléi loknu munu svo hefðbundin aðalfundarstörf taka við.

Jafnréttisdagar Háskóla Íslands

14.10.2011

Halla GunnarsdóttirJafnréttisnefnd Háskóla Íslands stendur fyrir sérstökum Jafnréttisdögum næstu tvær vikurnar. Margir áhugaverðir viðburðir munu vera á dagskrá en markmið Jafnréttisdaga er að stuðla að fræðslu, aukinni umræðu og skilningi á jafnréttismálum, innan sem utan háskólasamfélagsins. Ókeypis er á alla viðburði Jafnréttisdaga og aðgangur er öllum heimill.

Formađur og framkvćmdastjóri BSRB á fundum ađildarfélaga

12.10.2011

Elín Björg og stjórn Starfsmannafélags FjallabyggðarElín Björg Jónsdóttir formaður og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóri BSRB héldu í síðustu viku áfram yfirreið sinni um landið og heimsóknum til aðildarfélaga BSRB. Þá voru þær gestir á fundi hjá Sjúkraliðafélagi Íslands í þessari viku.

Skýrsla um kynjahlutfall í nefndum, stjórnum og ráđum á vegum ríksins komin út

11.10.2011

Merki JafnréttisstofuSkýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna er nú komin út. Þar má finna greiningu á skiptingu kynjanna í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2010 auk þess sem þróun á kynjahlutfalli síðustu ára er skoðuð.

Innanríkisráđherra fór yfir stöđu mannréttindamála á Íslandi hjá SŢ

10.10.2011

Ögmundur JónassonÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra og sendinefnd frá Íslandi svöruðu fyrir stöðu mannréttindmála á Íslandi hjá vinnuhópi Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag, mánudaginn 10. október.

Grćnt hagkerfi á Íslandi

6.10.2011

Skýrsla nefndar um Grænt hagkerfi á ÍslandiÚt er komin skýrsla nefndar um Grænt hagkerfi á Íslandi en sérstök nefnd var kosin af Alþingi til að kortleggja sóknarfæri íslensks atvinnulífs á sviði grænnar atvinnusköpunar. Skýrsla nefndarinnar er umfangsmikil og eru niðurstöður hennar í 48 liðum.

Hópur um skuldavanda heimilanna kallađur saman á ný

4.10.2011

PeningarForsætisráðherra hefur ákveðið að kalla saman á ný sérfræðingahópinn sem vann skýrslu um skuldavanda heimilanna fyrir um ári síðan. Hópnum er ætlað að fara yfir fyrirliggjandi gögn um afföll húsnæðislána heimilanna, þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir til nýju bankanna og meta hvernig það svigrúm til afskrifta sem þannig myndaðist hefur verið nýtt heimilum landsins til hagsbóta.

Kynjakvóti í lífeyrissjóđum frá 2013

3.10.2011

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsAlþingi samþykkti á dögunum breytingu á lífeyrissjóðalögunum þess efnis að frá og með 1. september 2013 skuli stjórnir lífeyrissjóða vera skipaðar fulltrúum af báðum kynjum, og skal hlutur hvors kyns vera að lágmarki 40 prósent í stjórnum með fleiri en þrjá stjórnarmenn en í sjóðum með þriggja manna stjórn skal hvort kyn eiga a.m.k. einn fulltrúa.

Formađur samninganefndar Íslands viđ ESB á fundi međ BSRB

30.9.2011

Stefán Haukur Jóhannesson, formaður SamningarnefndStefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands við ESB, og Auðunn Atlason, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu, mættu til fundar í BSRB-húsinu í vikunni. Þar var farið yfir samningaferlið, gang viðræðnanna og gestum gafst tækifæri til að spyrja út í einstök atriði.

Ađalfundir FOS-Vest og FOSS

30.9.2011

Ásbjörn Sigurðsson, formaður Félags opinberra starfsmanna á SuðurlandiAðalfundur FOSS, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, var haldinn fyrir skemmstu á Hótel Selfossi. Engar breytingar urðu á stjórn FOSS á fundinum. Aðalfundur Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum var svo haldinn í skömmu fyrir helgi og þar hélst stjórnin líka óbreytt.

Mannauđssjóđur KSG stofnađur

30.9.2011

Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, en umsýsla með sjóðnum verður hjá Starfsmannafélagi Kópavogs.Stofnfundur Mannauðssjóðs KSG var haldinn í gær 29. september 2011. Í nýgerðum kjarasamningum Starfsmannafélags Kópavogs, Starfsmannafélags Suðurnesja og Starfsmannafélags Garðabæjar við Samband íslenskra sveitarfélaga var kveðið á um stofnun Mannauðssjóðs KSG. Sjóðurinn er símenntunar- og mannauðssjóður þessara þriggja starfsmannfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Trúnađarmannanámskeiđ - 2. ţrep hefst á mánudag

29.9.2011

BSRBNæstkomandi mánudag heldur Trúnaðarmannanámskeið BSRB áfram. Kennt verður mánudag og þriðjudag á jarðhæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89. Skráning stendur yfir á heimasíðu BSRB.

Jafnlaunastađall mikilvćgt verkfćri í baráttunni viđ óútskýrđan launamun

29.9.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var í viðtali í Fréttablaðinu í gær þar sem m.a. var fjallað um sérstakan starfshóp sem ríkisstjórnin mun skipa í samráði við heildarsamtök ríkisstarfsmanna í kjölfar útgáfu jafnlaunastaðals. Þessi starfshópur á að fylgja eftir áherslum um að uppræta kynbundinn launamun meðal ríkisstarfsmanna.

Ályktun fundar stjórnar og formanna svćđisdeilda LL

28.9.2011

LögreglanFundur stjórnar og formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna var haldinn í gær, þann 27. september 2011. Að fundi loknum var lýst yfir megnri óánægju og reiði með niðurstöðu gerðardóms sem að sögn fundarmanna var þvinguð var fram í kjaradeilu LL við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sl. föstudag gegn mótatkvæði fulltrúa LL.

Ný skýrsla um úrrćđi fyrir fólk í greiđsluvanda á Norđurlöndunum

27.9.2011

Guðbjartur í BSRBÚt er komin ný skýrsla á vegum velferðarráðuneytisins um úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda. Þar má finna samanburð á greiðsluúrræðum á öllum Norðurlöndunum en þær eru nokkuð mismunandi í hverju landi fyrir sig. Skýrslan var gerð að beiðni nokkurra þingmanna og hana má nálgast í heild sinni hér að neðan.

Gerđardómur: fulltrúi LL greiddi nei-yrđi

26.9.2011

Lögreglan fyrir utan BSRBNiðurstaða gerðardóms um kjör lögreglumanna var kynnt á föstudaginn var. Tveir dómenda, formaður dómsins og fulltrúi ríkisvaldsins greiddu já-yrði sitt við dómnum, en fulltrúi LL nei. Niðurstaðan felur í sér 4,25% hækkun á launum og að sérstök álagsgreiðsla hækkar um 13 þúsund krónur. Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum um helgina eru lögreglumenn allt annað en sáttir við þessa niðurstöðu.

Eftirlitsnefnd gagnrýnir útfćrslu 110% leiđarinnar

23.9.2011

Efnahags- og viðskiptaráðuneytiðEftirlitsnefnd vegna aðgerða í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins hefur skilað efnahags- og viðskiptaráðherra þriðju skýrslu sinni. Þar fjallar nefndin m.a. um þau úrræði sem fjármálafyrirtæki hafa boðið skuldsettum heimilum og metur hvernig til hefur tekist og hvað hefði mátt betur fara.

Félagsmađur FFR vinnur mál gegn íslenska ríkinu

21.9.2011

Félag flugmálastarfsmanna ríkisinsDómur féll við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær í máli félagsmanns gegn íslenska ríkinu varðandi efndir starfslokasamnings. Í málinu greindi aðila á um hvort samningur V og Lögreglustjórans á Suðurnesjum um uppgjör vegna áunnins leyfis frá störfum og starfslok hafi verið skuldbindandi fyrir íslenska ríkið og hvort kröfum samkvæmt samkomulaginu hafi verið beint að réttum aðila. Niðurstaðan var að íslenska ríkið var dæmt til að greiða eftirstöðvar greiðslna samkvæmt samkomulaginu.

Grein Hilmars í Fréttablađinu í dag

21.9.2011

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBHilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni: „Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna?" Greinina í heild sinni má finna hér að neðan.

Velferđarráđherra heimsótti BSRB

20.9.2011

Velferðarráðherra ásamt framkvæmdanefnd BSRB og starfsmönnumGuðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, kom á fund framkvæmdanefndar BSRB í gær ásamt aðstoðarkonu sinni, Önnu Sigrúnu Baldursdóttur. Á fundinum var m.a. rætt um um kynbundin launamun, fæðingarorlof, velferðarkerfið og fjárlagagerðina sem framundan er.

Skrifstofuskólinn - nýtt nám hjá Framvegis

20.9.2011

FramvegisFramvegis kynnir nú nýja námsleið sem er í boði fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur hug á að styrkja stöðu sína í almennum skrifstofustörfum. Námið hentar fyrir þá sem hafa starfað við skrifstofustörf og sækjast eftir fjölbreyttari þjálfun og auknu sjálfsöryggi í starfi, sem og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í skrifstofustörfum.

Launakönnun SFR stéttarfélags í almannaţjónustu

19.9.2011

Blað SFR & STRVSFR stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hafa nú birt helstu niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun VR. Könnunin sýnir m.a. fram á að yfir 60% starfsmanna eru óánægðir með laun sín, launamunur kynjanna eykst, laun starfsfólks á almennum markaði hækka meir en opinberra starfsmanna auk þess sem fjárhagsleg staða heimila þeirra síðarnefndu er mun lakari en annarra.

Velferđarvaktin fundađi međ ráđherra

15.9.2011

Velferðarvaktin ásamt Guðbjarti HannessyniVelferðarvaktin hefur nú verið starfandi í um tvö ár og hefur hún þegar sannað sig sem mikilvægur álitsgjafi stjórnvalda. Velferðarvaktin fundaði í gær með Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, til að fara yfir tillögur hennar og ábendingar um mikilvæg verkefni í velferðarmálum.

Trúnađarmannanámskeiđ BSRB

13.9.2011

Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið í næstu viku, dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu fyrir alla talsmenn stéttarfélaga og hvetur BSRB sem flesta til að nýta sér námskeiðið.

Forystufrćđsla BSRB

13.9.2011

BSRB minnir aftur á Forystufræðslu Bandalagsins í samvinnu við fræðslusetrið Starfsmennt sem hefst í næsta mánuði en skráning í námskeiðið er þegar hafin. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku þátttakenda en áhersla er lögð á lýðræðisleg virkni, upplýsingamiðlun og liðsheild. Ætlunin er að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni til að geta mætt fjölbreyttum verkefnum og nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn.

Skrifađ undir átakiđ „Nám er vinnandi vegur"

6.9.2011

Nám er vinnandi vegurRáðherrar velferðar- og menntamála ásamt fulltrúum háskóla og Vinnumálastofnunar skrifuðu í dag undir samkomulag um átakið „Nám er vinnandi vegur" við formlega athöfn í Háskóla Íslands. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor.

Kjarasamningur SLFÍ viđ Reykjavíkurborg samţykktur

5.9.2011

Sjúkraliðafélag ÍslandsKjarasamningur Sjúkraliðafélags Íslands við Reykjavíkurborg var samþykktur í nýafstaðinni atkvæðagreiðslu.

Halldór fundađi međ framkvćmdanefnd

2.9.2011

Halldór Halldórsson á fundi framkvæmdanefndar BSRBHalldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var gestur á fundi framkvæmdanefndar BSRB í morgun þar sem meðal annars var rætt um nærþjónustu sveitarfélaganna, stöðu starfsmanna sveitarfélaganna og stöðu sveitarstjórnarstigsins almennt.

Námskeiđ um kynjasamţćttingu

1.9.2011

Jöfnum leikinn - JafnréttisstofaJafnréttisstofa býður til námskeiðs um kynjasamþættingu þátttakendum að kostnaðarlausu. Á námskeiðinu verður fjallað um stöðu jafnréttismála á Íslandi í dag, hvað kynjasamþætting er og hvernig er hægt að nota hana til að efla það starf sem þegar er unnið.

Karl Rúnar kjörinn formađur Starfsmannafélags Hafnarfjarđar

31.8.2011

Nýr formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar var kjörinn í gær, þriðjudaginn 30. ágúst, á aðalfundi félagsins sem fram fór í sal Álftanesskóla.

Forystufrćđsla BSRB

30.8.2011

Starfsmennt - logoFræðslusetrið Starfsmennt hefur hannað heildstæða námsleið um forystufræðslu fyrir starfsfólk, stjórnendur og stjórnarmenn stéttarfélaga innan BSRB. Fyrstu námskeið haustsins verða kynnt bráðlega hér á vef BSRB.

Frćđslunámskeiđ um vinnuvernd

30.8.2011

Úrval stuttra framhaldsnámskeiða í vinnuvernd fyrir öryggisstarfsmenn, öryggisverði og aðra sem huga að vinnuvernd eru í boði á þessari önn hjá Vinnueftirlitinu.

Sjúkraliđar semja viđ Reykjavíkurborg

29.8.2011

Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélags Íslands náði kjarasamningi við Reykjavíkurborg nú skömmu fyrir helgi.

Handbók um „Bann viđ mismunun" komin út

26.8.2011

Handbókin „Bann við mismunun" er nú komin út á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands þar sem kynntar eru tilskipanir Evrópusambandsins um jafnrétti óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú/lífsskoðun, aldri, fötlun og kynhneigð .BSRB telur brýnt að heildstæðari jafnréttislöggjöf verði samþykkt á Íslandi og er útkoma bókarinnar mikilvægt innlegg í þá umræðu.

Nýr kynningarfulltrúi BSRB

23.8.2011

Ágúst Bogason hefur verið ráðinn kynningarfulltrú BSRB og hóf hann störf þann 15. ágúst síðastliðinn.

Grein Hilmars í Fréttablađinu

18.8.2011

Hilmar Ögmundsson

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar lýsir hann stuttlega þeirri erfiðu stöðu sem ríkir á leigumarkaðnum í landinu í dag. Einnig hvernig Íbúðarlánasjóður reynir að koma til móts við hina miklu eftirspurn á leiguhúsnæði og dempa hátt leiguverð. Í greininni ítrekar Hilmar einnig mikilvægi þess að hægt sé að velja á milli búsetuforma sem og þær tillögur sem bandalagið hefur áður lagt fram og miða að því að efla almennan markað með langtímaleiguíbúðum.

Ný námstilbođ haustiđ 2011

17.8.2011

Framvegis kynnir tvær nýjar námsleiðir sem standa til boða á næstunni. Námsleiðirnar eru sérstaklega hannaðar fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur hug á að styrkja stöðu sína.

 

Kjarasamningur Landssambands slökkviliđs- og sjúkraflutningamanna viđ Samband íslenskra sveitarfélaga samţykktur

12.8.2011

Nýgerður kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var undirritaður þann 15. júlí síðastliðinn hefur verið samþykktur.

Lögfesting á greiđsluskyldu launagreiđenda til VIRK

12.8.2011

Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í júní síðastliðnum (breyting á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða) þá ber öllum launagreiðendum að greiða 0,13% af heildarlaunum allra starfsmanna sinna til VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs frá og með 1. september 2011 – þ.e. miða skal við iðgjaldastofn septembermánaðar 2011.

Kjarasamningur Starfsmannafélags Suđurnesja viđ Samband íslenskra sveitarfélaga samţykktur

13.7.2011

Nýgerður kjarasamningur Starfsmannafélags Suðurnesja við Samband Íslenskra Sveitarfélaga var samþykktur á fundi félagsins þann 12.júlí.
Já sögðu 93.5%, nei sögðu 6.5%

Sjúkraliđafélag Íslands skrifar undir nýjan kjarasamning viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

13.7.2011

Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði í gærkvöldi undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.  Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um við önnur stéttarfélög innan BSRB.
Kynning fer fram á næstu dögum og verður kynningarfundur föstudaginn 15. júlí kl. 15. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Kjarasamningar SFR viđ Rarik, Isavia og SFH samţykktir

13.7.2011

 

Þrír kjarasamningar SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu hafa verið samþykktir í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna.

Kjarasamningur SFR og Isavia hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 51. 22 greiddu atkvæði eða 43,14%
Já sögðu 21 eða 95,45%. Nei sagði 1 eða 4,55%.

Kjarasamningur SFR og RARIK hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 40. 22 greiddu atkvæði eða 55%
Já sögðu 22 eða 100%. Enginn sagði nei.

Kjarasamningur SFR og SFH hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 217. 67 greiddu atkvæði eða 30,88%
Já sögðu 60 eða 89,55%. Nei sögðu 7 eða 10,45%.

Kjarasamningur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins viđ Isavia samţykktur

13.7.2011

ffrj logo
Kjarasamningur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) við Isavia hefur verið samþykktur í rafrænni atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna.
Á kjörskrá voru 317 og tóku 110 þátt eða 34,7%. Já sögðu 88, nei sögðu 15 og 7 skiluðu auðu. Samningurinn var því samþykktur með 80% greiddra atkvæða.

Kjarasamningur FOS-Vest viđ Orkubú Vestfjarđa samţykktur í atkvćđagreiđslu

7.7.2011

 

Kjarasamningur FOS-Vest við Samtök Atvinnulífsins f.h. Orkubús Vestfjarða hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu með 95% greiddra atkvæða.

Samningurinn felur í sér sambærilegar kjarahækkanir og samið hefur verið um að undanförnu. Gildistími er til 31. janúar 2014.  Launahækkanir verða í krónutöluhækkunum. Samninginn má sjá hér.

Sjúkraliđafélag Íslands gerir nýjan stofnanasamning viđ Samtök fyrirtćkja í heilbrigđisţjónustu

7.7.2011

Sjúkraliðafélag Íslands undirritaði í gær nýjan stofnanasamning við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Samningurinn felur í sér hækkun byrjunarlauna sjúkraliða og nýtt launaþrep fyrir þá sem hafa tekið og fengið metnar 230 stunda námskeið.

 

SFR semur viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

7.7.2011

 

Nýr kjarasamningur SFR og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður í gærkvöld og er hann með svipuðu sniði og þeir samningar sem Sambandið hefur gert við starfsmannafélag sveitarfélaganna. Samningurinn, ásamt kynningarefni verður sett á vefinn síðar í dag og verður hann síðan kynntur félagsmönnum í næstu viku, nákvæmari tímasetningin kynningarfundarins verður auglýst fljótlega.

Blađ stéttarfélaganna kemur út í dag

6.7.2011

Blað stéttarfélaganna - SFR og St. Rv.

Þriðja tölublað Blaðs stéttarfélaganna kemur út í dag. Blaðið er gefið út af SFR-stéttarfélagi í almannaþjónustu og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og verður dreift til félagsmanna í dag og á morgun. Blaðið er venju samkvæmt sneisafullt af efni. Þar er m.a. að finna viðtal við Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra um starfsmannastjórnun og skattamál, kjarasamningar félaganna eru kynntir ásamt niðurstöðum könnunarinnar um Stofnun ársins. Þá er í blaðinu að finna grein um starf Blátt áfram samtakanna auk þess sem fjallað er um uppsagnir í grunnskólum Reykjavíkur og birt viðtöl við félagsmenn St.Rv. sem starfa þar.

Blaðið má sjá hér.

Tollvarđafélag Íslands skrifar undir nýjan kjarasamning viđ ríkiđ

6.7.2011

 

 

Tollvarðafélag Íslands skrifaði undir nýjan kjarasamning til þriggja ára við samninganefnd ríkisins í gær. Samningurinn felur í sér sambærilegar kjarahækkanir og samið hefur verið um að undanförnu við ríkið. Launahækkanir felur í sér krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin er hagstæðari fyrir félagsmenn. Félagsmönnum er þannig tryggð að lágmarki 4,25% hækkun þann 1. júní 2011, að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. mars 2012 og að lágmarki 3,25% þann 1. mars 2013. Einnig kemur til 38.000 kr. eingreiðsla þann 1. mars 2014 fyrir þá sem eru í fullu starfi í janúar 2014 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

5.7.2011

 

 

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga, vegna félagsmanna hjá Akraneskaupstað og dvalarheimilinu Höfða, í dag. Samningurinn verður kynntur 12. júlí á skrifstofunni á Akranesi og atkvæðagreiðsla fer fram með rafrænni kosningu. Samningurinn er á líkum nótum og gerður hefur verið við önnur félög starfsmanna sveitarfélaga.

Samninginn í heild sinni má finna hér.

KJÖLUR skrifar undir nýjan kjarasamning viđ Samtök fyrirtćkja í heilbrigđisţjónustu

5.7.2011

Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu skrifaði 3. júlí sl. undir nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.

Kjarasamningurinn er á svipuðum nótum og samningarnir sem gerðir hafa verið að undanförnu og gildir frá 1. maí 2011 til 30. júní 2014. Launahækkanir verða krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin skilar félagsmönnum hagstæðari niðurstöðu. Þannig er félagsmönnum tryggð að lágmarki 34.000 kr. hækkun á samningstímanum.

Starfsmannafélag Kópavogs skrifar undir nýjan kjarasamning viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

5.7.2011

SfK logo

Starfsmannafélag Kópvogs undirritaði nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga sl. föstudag. Samningurinn verður kynntur síðar í mánuðinum og atkvæðagreiðsla fer fram með póstkosningu. Samningurinn felur m.a. í sér hækkun lægstu launa og hækkun persónu- og orlofsuppbótar.

Við samþykkt kjarasamningsins greiðist sérstök eingreiðsla, kr. 50.000.- hverjum starfsmanni í fullu starfi sem er við störf í maí og miðast greiðslan við fullt starf í mánuðunum mars - maí. Þá verður greidd önnur eingreiðsla 1.febrúar 2012 kr. 25.000,- miðað við fullt starf.

Samninginn má sjá hér.

Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar samţykktur

5.7.2011

Kjarasamningur SFR og Fríhafnarinnar sem undirritaður var 28. júní 2011 var samþykktur þriðjudaginn 5. júlí. Á kjörskrá voru 139 félagsmenn og greiddu 98 þeirra atkvæði eða 70,5%. Já sögðu 93,88% eða 92, nei sögðu 5,1% eða 5 og 1 eða 1,02% atkvæði var ógilt. Kjarasamningurinn framlengist til 31. janúar 2014.

Sjá samninginn hér.

Landssamband slökkviliđs- og sjúkraflutningamanna semur viđ Isavia ohf.

5.7.2011

 

Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Isavia ohf. hafa undirritað kjarasamning til 3 ára. Um er að ræða sambærilegan samning og Isavia hefur gert við aðra starfsmenn fyrirtækisins. Auk eingreiðslna verður launahækkun fyrsta júní sem nemur 4,25 % eða 12.000 kr. Kjarasamningurinn verður kynntur félagsmönnum í vikunni og fer í kjölfarið í atkvæðagreiðslu. 

Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar samţykktur

5.7.2011

Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar sem undirritaður var 16. júní s. l. var samþykktur mánudaginn 4. júlí. Á kjörskrá voru 427 félagsmenn og greiddu 70 þeirra atkvæði eða 16,39%. Já sögðu 78,57% eða 55, nei sögðu 20,0% eða 14 og 1 eða 1,43% skilaði auðu. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. maí síðast liðnum og gildir til 31. mars 2014.

Sjá kynningarbækling um kjarasamninginn hér.
Sjá kjarasamninginn í heild sinni hér.

 

Starfsmannafélög Kópavogs og Suđurnesja skrifa undir nýjan kjarasamning viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

4.7.2011

Starfsmannafélag Kópavogs og Starfsmannafélag Suðurnesja skrifuðu undir nýja kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga 1. júlí s.l. Samningarnir eru á svipuðum nótum og kjarasamningarnir sem Kjölur og Starfsgreinasambandið skrifuðu undir í síðustu viku.

Kjarasamningarnir gilda frá 1. maí s.l. til 30. júní 2014. Þeir fela í sér 50 þúsund króna eingreiðslu við samþykkt og starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar n.k. fá 25 þúsund króna eingreiðslu. Þá koma til hækkanir á orlofsuppbót og desemberuppbót.  Prósentuhækkanir á launum verða 1. mars 2012, 2013 og 2014.

Uppsögn trúnađarmanns dćmd ólögmćt

1.7.2011

Nýlega var kveðinn upp dómur Félagsdóms í máli nr. 6/2011, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja f.h. Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar gegn Orkuveitu Reykjavíkur. Málið varðaði uppsögn trúnaðarmanns vegna endurskipulagningar og hagræðingar í starfsemi Orkuveitunnar. Voru verkefni trúnaðarmannsins J að hluta til lögð niður en nokkur hluti var færður til annarra sviða.

Dómnum þótti blasa við að Orkuveitunni hefði verið í lófa lagið að láta J sitja fyrir um vinnu við þær uppsagnir sem málið tók til. Var því niðurstaðan sú að ekki hefði verið sýnt fram á nægilega ríkar ástæður fyrir uppsögn trúnaðarmannsins. Uppsögnin hafi brotið gegn 2. máls. 11. gr. laga nr. 80/1938 og því ólögmæt.

Dóminn má finna hér.

FOS-Vest skrifar undir kjarasamning viđ SA f.h. Orkubú Vestfjarđa

1.7.2011

 

Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum (FOS-Vest) skrifaði í gær undir nýjan kjarasamning við Samtök Atvinnulífsins f.h. Orkubús Vestfjarða.

Samningurinn felur í sér svipaðar kjarabætur og aðrir samningar sem hafa verið undirritaðir að undanförnu og er gildistími hans frá 1. júní 2011 til 31. janúar 2014.

Samningurinn fer á næstunni í kynningu meðal félagsmanna og í kjölfarið atkvæðagreiðslu.

LSS vísar viđrćđum til sáttasemjara og nćr samkomulagi viđ Akureyrarbć um frítökurétt

1.7.2011

 

Samninganefnd Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) ákvað í vikunni að vísa kjarasamningsviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar mánudaginn 4. júlí n.k.

LSS hefur að undanförnu unnið að samkomulagi við Akureyrarbæ vegna uppsafnaðs frítökuréttar slökkviliðsmanna. Samkomulag hefur nú náðst meðal aðila og verður hlutaðeigandi félagsmönnum kynnt efni samningsins á næstunni.

SFR semur viđ Samtök fyrirtćkja í heilbrigđisţjónustu

1.7.2011

 

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem SFR hefur verið að gera undanfarið.

Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á næstunni og atkvæðagreiðslu um hann verður að vera lokið kl. 11 þann 12. júlí n.k.

Sjá samninginn hér.

Kjölur semur viđ Samband íslenskra sveitarfélaga

30.6.2011

Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu skrifaði í morgun undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.  Samninginn má sjá hér.

Kjarasamningurinn fer nú í kynningu á félagssvæðinu.
Á mánudaginn 4. júlí á Skagaströnd kl. 16.30
Á þriðjudaginn 5. júlí á Akureyri, kl. 08:15  Dalvík kl. 16.30  og Siglufirði 20.00
Á Miðvikudaginn 6. júlí á Akureyri 12.30
Á fimmtudaginn 7. júlí í Borgarnesi kl. 16.30

Póstkosning verður um samninginn og eru félagsmenn hvattir til að taka virkan þátt í kosningunni.

Sjúkraliđar hjá Reykjavíkurborg funda

30.6.2011

 

Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélags Íslands hélt í gær fjölmennan fund sjúkraliða sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Til umræðu var staða kjarasamningsviðræðna félagsins við Reykjavíkurborg. Sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem mótmælt var harðlega þeim drætti sem hefur orðið á kjarasamningsgerð við stéttina. Ályktunina má sjá hér.

SFR og FFR semja viđ Isavia ohf

30.6.2011

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Félag flugmálastarfsmanna ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamning við Isavia ohf. um miðnættið í gær. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem verið gerðir að undanförnu.

Virkur vinnustađur - ţróunarverkefni í samstarfi viđ fyrirtćki og stofnanir

29.6.2011

 

VIRK starfsendurhæfingarsjóður kynnir nú nýtt þróunarverkefni í samvinnu við atvinnurekendur sem ber heitið Virkur vinnustaður. Verkefnið tekur til forvarna gegn brottfalli af vinnumarkaði og snemmbærs inngrips í starfsendurhæfingu. Verkefnið hefst formlega haustið 2011 og því lýkur innan þriggja ára.

Tilgangur með verkefninu er að veita stjórnendum og starfsmönnum fræðslu og aðstoð við að móta og innleiða stefnu um velferð og fjarvistir. Áhersla er lögð á jákvæða og heilsusamlega nálgun, með þátttöku stjórnenda og starfsmanna við þarfagreiningu vinnustaðarins, og útfærslu á stefnu og leiðum eftir því sem best hentar hverri starfsemi.

SFR skrifar undir kjarasamning viđ Fríhöfnina

28.6.2011

 

Samninganefndir SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu og Fríhafnarinnar skrifuðu undir kjarasamning kl. 13.30 í dag. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem SFR hefur verið að gera undanfarið.

Nýlegur dómur um greiđslu yfirvinnu vegna skerđingar á matar- og kaffitímum

28.6.2011

 

slfí logo
 

Nýlega var kveðinn upp dómur í Félagsdómi í máli nr. 4/2011, Sjúkraliðafélag Íslands gegn Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili. Málið fjallar um hvort atvinnurekanda sé skylt að greiða yfirvinnukaup eða dagvinnukaup vegna skerðingu á matar- og kaffitímum vaktavinnustarfsmanns í hlutastarfi. Kjarasamningsákvæðið sem um ræðir er víðast orðað með sama hætti í kjarasamningum opinberra starfsmanna og hefur því ótvírætt fordæmisgildi.

Dómurinn hefur þannig þýðingu fyrir vaktavinnufólk í hlutastarfi á vinnustöðum þar sem tíðkast hefur að greiða yfirvinnu á hverja vakt vegna skerðingar á matar- og kaffitímum óháð því hvort viðkomandi starfsmaður er í fullu starfi eða hlutastarfi. Samkvæmt dómnum er óheimilt að láta af slíkum greiðslum hafi verið komin á venja um að greiða skuli yfirvinnulaun vegna skerðingarinnar óháð starfshlutfalli.

Dóminn má sjá hér.

Kjarasamningur Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins viđ Ríkisútvarpiđ samţykktur

28.6.2011

Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins (SRÚ) samþykkti í gær nýjan kjarasamning við Ríkisútvarpið ohf. eftir atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Skrifað var undir samninginn 23. júní sl. og er hann á svipuðum nótum og aðrir samningar sem skrifað hefur verið undir að undanförnu. 

Samninginn má sjá hér.

Félagsmenn SFR og FFR lýsa yfir fullum stuđning viđ samninganefndir sínar í kjaradeilunni viđ ISAVIA

28.6.2011

Fjölmennur félagsfundur félagsmanna í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins og SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu var haldinn á Keflavíkurflugvelli í gær vegna viðræðna stéttarfélaganna um nýjan kjarasamning við Isavia. Á fundinum lýstu fundarmenn yfir fullum stuðningi við samninganefndir sínar sem hafa setið síðastliðnar vikur við samningaborðið með fulltrúum Isavia.

Sjúkraliđafélag Íslands skrifar undir kjarasamning viđ ríkiđ

28.6.2011

slfí logo

Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði undir nýjan kjarasamning við ríkið klukkan að ganga eitt í nótt. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og aðrir samningar aðildarfélaga BSRB við ríkið sem undirritaðir hafa verið að undanförnu.

Samningafundi SFR, FFR viđ Isavia ohf. slitiđ

24.6.2011

Samningafundi SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) við Isavia ohf. var slitið í dag. Samkvæmt fréttatilkynningu stéttarfélaganna ber mikið á milli samningsaðila og staðan gefur ekki tilefni til bjartsýni.

Viðræður aðila hafa gengið illa í dag og í gær. Eftir hádegi í dag var fundi slitið eftir að samninganefnd Isavia lagði fram tillögur að samningi sem engin umræðugrundvöllur var um. Félögin munu á mánudag halda fundi með félagsmönnum sínum hjá Isavia til að fara yfir stöðuna og og kanna hug þeirra til þess hvernig haldið verður á málum í framhaldinu.

Fréttatilkynningu á heimasíðu SFR má sjá hér.

Lengdur umsóknarfrestur hjá Framvegis

23.6.2011

 framvegis blóm

Framvegis hefur sent frá sér tilkynningu um lengdan umsóknarfrest í grunnnám skólaliða. Hægt er að skrá sig í grunnnám skólaliða til 3. ágúst. Umsóknarfrestur var áður auglýsur til 21. júní. Í tilkynningunni segir jafnframt að námið sé að fyllast og því sé betra að skrá sig sem fyrst á heimasíðu Framvegis.

Umsóknafrestur til skráningar í skrifstofuskólann er 23. ágúst.

Lesið má nánar um námstilboðin á heimasíðunni www.framvegis.is eða með því að hafa samband í síma 5814914.

Slitnađ upp úr viđrćđum Sjúkraliđafélagsins og Reykjavíkurborgar

23.6.2011

Í gærkvöldi slitnaði upp úr viðræðum Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) við Reykjavíkurborg. Að sögn SLFÍ hefur verið lögð mikil vinna í greiningu á launamun meðal þeirra sjúkraliða er starfa annars vegar hjá Reykjavíkurborg og hins vegar ríkinu. Þeir útreikningar hafi verið lagðir fyrir viðsemjendur og í kjölfarið hafi verið lögð fram tillaga um leiðréttingu launa. Borgin hefur tekið undir tillögu SLFÍ um að hækka skuli lægst launuðu sjúkraliðana með breytingu á launatöflu. Sú breyting tekur hins vegar eingöngu til fámenns hóps ef nokkurra. Fjölmennur hópur sjúkraliða hjá borginni eru komnir með langan starfsaldur og eru í ábyrgðarmeiri stöðum og hefur borgin lagt til að lækkuð verði laun þeirra þar sem laun þessa hóps er hærri en hjá ríkinu.

Kjarasamningur SFR viđ ríkiđ samţykktur í atkvćđagreiđslu

20.6.2011

 

Kjarasamningur SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 29. maí síðastliðinn var samþykktur í dag. Á kjörskrá voru 4213 félagsmenn og greiddu 1521 þeirra atkvæði eða 36,1%. Já sögðu 85,4% eða 1299, nei sögðu 13,0% eða 197 og 26 eða 1,6% skilaði auðu. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. maí 2011 og gildir til 31. mars 2014.

Kjarasamningur Félags starfsmanna stjórnarráđsins viđ ríkiđ samţykktur í atkvćđagreiđslu

20.6.2011

 

Kjarasamningur Félags starfsmanna stjórnarráðsins við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 8. júní sl. hefur verið samþykktur með meginþorra greiddra atkvæða.  Samningurinn gildir til 31. mars 2014 og er á svipuðum nótum og aðrir ríkissamningar sem gerðir hafa verið undanfarið.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur viđ Faxaflóahafnir, Orkuveituna og Strćtó bs.

20.6.2011

st. rv.
 

 

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar (St. Rv.) hefur að undanförnu undirritað þrjá kjarasamninga við þrjá atvinnurekendur það er: Faxaflóahafnir, Orkuveitu Reykjavíkurborgar og Strætó bs. Samningarnir við Faxaflóahafnir og Strætó bs. fela í sér sambærilegar hækkanir og samningur St. Rv. við Reykjavíkurborg en samningurinn við Orkuveituna felur í sér sambærilegar hækkanir og nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði.

SFR semur viđ Reykjavíkurborg

20.6.2011

sfr logo

SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning rétt fyrir miðnættið þann 16. júní síðast liðinn. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og samningurinn sem SFR gerði við ríkið nýverið. Stærsti hópurinn sem samningurinn nær til eru stuðningsfulltrúar og félagsliðar, sem vinna við málefni fatlaðra. Sá hópur flutti frá ríkinu yfir til Reykjavíkurborgar um síðustu áramót þegar málefni fatlaðra var flutt yfir frá ríki yfir til sveitarfélaga.

Kjarasamningur Starfsmannafélags Suđurnesja viđ ríkiđ vegna starfsmanna Heilbrigđisstofnunar Suđurnesja samţykktur

16.6.2011

st. suðurnesja

Kjarasamningur Starfsmannafélags Suðurnesja við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs vegna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur verið samþykktur með meginþorra greiddra atkvæða.  Samningurinn gildir til 31. mars 2014 og er á svipuðum nótum og aðrir ríkissamningar sem gerðir hafa verið undanfarið.

 

Kjarasamningur Starfsmannafélags Kópavogs viđ ríkiđ samţykktur en kjaradeilu viđ sveitarfélögin vísađ til Ríkissáttasemjara

16.6.2011

sfk

Niðurstaða liggur fyrir í atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsmannafélags Kópavogs við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, sem undirritaður var 31. maí sl.

Á kjörskrá voru 8
Þar af kusu       7
Já sögðu           7

Samningurinn hefur því verið samþykktur.

Starfsmannafélag Kópavogs hefur hins vegar vísað kjaradeilu sinni við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara.

Kjarasamningur Samflots viđ Samband íslenskra sveitarfélaga samţykktur

16.6.2011

s logo

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Samflots við Samband íslenskra sveitarfélaga sem var undirritaður 29. maí sl. er nú lokið. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er eftirfarandi.

Á kjörskrá voru:            3332
Atkvæði greiddu:         723         eða 21,7% af greiddum atkvæðum
Já sögðu:                     626         eða 86,58% af greiddum atkvæðum
Nei sögðu:                    84           eða 11,69% af greiddum atkvæðum
Auðir seðlar:                13            eða 1,80% af greiddum atkvæðum

Samningurinn telst því samþykktur.

Kjarasamningur FFR vegna starfsmanna Flugmálastjórnar samţykktur

16.6.2011

ffr logo
 Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) skrifaði undir kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkisins vegna starfsmanna hjá Flugmálastjórn Íslands 1. júní sl. Greidd hafa verið atkvæði um samninginn og er niðurstaðan eftirfarandi.

Alls höfðu 14 starfsmenn Flugmálastjórnar atkvæðisrétt.

Þar af kusu 9, já sögðu 8 og einn sagði nei.

Samningurinn hefur því verið samþykktur.

Kjarasamningur KJALAR viđ ríkiđ samţykktur í atkvćđagreiđslu

12.6.2011

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem var undirritaður 30. maí sl. er nú lokið og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta. Á kjörskrá voru 214 og var 76% þátttaka. Sögðu 89% já við samningnum gegn 5,5% mótatkvæða en ógildir voru 5,5%

Kjaraviđrćđum KJALAR og sambands íslenskra sveitarfélaga slitiđ

12.6.2011

kjolur logo

Kjaraviðræðum KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið slitið eftir árangurslausar viðræður um tryggingu á hækkun lægstu launa. Kjölur hefur farið fram á launahækkanir í samræmi við aðra kjarasamninga, þ.e. að lágmarki á launaflokk 12.000 kr. á þessu ári, 11.000 kr. árið 2012 og 11.000 kr. árið 2013. Á vef KJALAR kemur fram að kröfur þeirra séu í samræmi við launahækkanir samkvæmt samningi þeirra við ríkið og nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Enn fremur séu þær að sömu fjárhæð og sem nemur nýkynntum hækkununum á atvinnuleysisbótum og lífeyrisgreiðslum almannatrygginga. 

Samiđ viđ HS orku og HS veitur

12.6.2011

Starfsmannafélög Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Vestmannaeyja skrifuðu undir nýjan kjarasamning við HS orku h.f. og HS veitur h.f. föstudaginn 10. júní. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu. Gildistími samningsins er frá 1. maí síðastliðnum til 31. janúar 2014.
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum  16. júní kl. 12:30 og að kynningu lokinni verður greitt um hann atkvæði.

Afmćlis- og menningarhátíđ BSRB Munađarnesi haldin á morgun

10.6.2011

æja mynd

BSRB minnir á afmælis- og menningarhátíð bandalagsins sem verður haldin í þjónustumiðstöðinni Munaðarnesi á morgun laugardaginn 11. júní. Árlega er haldin menningarhátíð bandalagsins í Munaðarnesi en í ár fagna orlofsbyggðirnar í Munaðarnesi einnig 40 ára afmæli. Hátíðin er opin öllum og boðið verður upp á veitingar.

Hćkkanir bóta almanna- og atvinnuleysistrygginga

9.6.2011

Velferðarráðherra hefur kynnt hækkanir á bótum almanna- og atvinnuleysistrygginga í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins. Bætur almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga hækka frá 1. júní síðastliðnum þannig að lífeyrisþegar og atvinnuleitendur fái hliðstæðar kjarabætur og samið hefur verið um í nýjum kjarasamningum á vinnumarkaði. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins kemur fram að markmiðið sé ekki síst að bæta hag þeirra sem hafa lökustu kjörin og að draga úr fátækt.

Námstilbođ Framvegis síđsumars og hausts 2011

9.6.2011

 framvegis blóm

Framvegis mun á næstunni bjóða upp á þrjár nýjar námsleiðir sem eru sérstaklega hannaðar fyrir fólk á vinnumarkaði sem ekki hefur setið á skólabekk í langan tíma. Námsleiðirnar eru Skrifstofuskólinn fyrir þá sem vilja auka færni sína í skrifstofustörfum, grunnnám skólaliða fyrir þá sem hafa umsjón með skólabörnum utan kennslustofunnar í skólanum og námskeið í þjálfun færni í lestri og skrift.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur viđ ríkiđ

9.6.2011

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði í gær nýjan kjarasamning við ríkið. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir kjarasamningar sem hafa verið undirritaðir af félögum ríkisstarfsmanna að undanförnu. Samningurinn er til þriggja ára.

Kjarasamningurinn verður nú kynntur félagsmönnum og mun rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefjast á næstu dögum.

Félag starfsmanna Stjórnarráđsins skrifar undir kjarasamning

8.6.2011

 Félag starfsmanna Stjórnarráðsins (FSS) og samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráðherra skrifuðu undir nýjan kjarasamning í dag. Kjarasamningurinn er á svipuðum nótum og aðirir samningar aðildarfélaga BSRB sem hafa verið undirritaðir undanfarið. Samningurinn gerir ráð fyrir 50.000.- eingreiðslu eftir samþykki samnings, sem og álagsgreiðslum upp á samtals 25.000.- á yfirstandandi ári. Einnig er gert ráð fyrir hækkunum á orlofs- og desemberuppbót.

Samninginn má sjá hér.

Samningur viđ Neytendasamtökin um ađstođ fyrir leigjendur

8.6.2011

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði í gær þjónustusamning við Neytendasamtökin um leiðbeiningarþjónustu við leigjendur. Þjónusta Neytendasamtakanna felst í því að samtökin veiti leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt sinn og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Þá er gert ráð fyrir að samtökin byggi upp upplýsingavef fyrir leigjendur á heimasíðu sinni og veita leigjendum viðtöl. Enn fremur að leigjendur eigi kost á lögfræðilegri ráðgjöf um réttindi og skyldur leigjenda.

Starfsmannafélag Suđurnesja semur viđ ríkiđ f.h. HSS og stjórn félagsins endurkjörin

7.6.2011

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur skrifað undir samning við ríkið vegna félagsmanna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Samningurinn gildir til 31. mars 2014 og er á svipuðum nótum og aðrir ríkissamningar sem gerðir hafa verið undanfarið.

Öll stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja var endurkjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gærkvöldi.

Starfsmannafélagið á nú í samningaviðræðum hjá ríkissáttasemjara við Samband íslenskra sveitarfélaga og einnig standa yfir samningafundir við HS orku og HS veitur fyrir félagsmenn er þar starfa.

Afmćlis- og menningarhátiđ BSRB 11. júní

6.6.2011

Æja mynd

Afmælis- og menningarhátíð BSRB verður haldin í þjónustumiðstöðinni Munaðarnesi laugardaginn 11. júní  n.k. Árlega er haldin menningarhátíð bandalagsins í Munaðarnesi en í ár fagna orlofsbyggðirnar í Munaðarnesi 40 ára afmæli.  

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifar undir

1.6.2011

 Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði í gær undir kjarasamning við Reykjavíkurborg. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar aðildarfélaga BSRB sem hafa verið undirritaðir á undanförnum dögum.

Stađa framkvćmdastjóra NFS – norrćna verkalýđssambandiđ laus til umsóknar

31.5.2011

Norræna verkalýðssambandið (NFS) auglýsir lausa stöðu framkvæmdastjóra frá og með 13. ágúst 2011. Helstu verkefni framkvæmdastjóra eru að stýra skrifstofu NFS, starfa með stjórn þess og kynna NFS út á við. Ráðið verður í stöðuna til fjögurra ára í senn með möguleika á framlengingu.

Afstađa ríkistjórnarinnar til áhersluatriđa BSRB um kjara- og réttindamál

31.5.2011

BSRB hefur að undanförnu fundað reglulega með fulltrúum ríkisstjórnarinnar til að koma á framfæri áherslum sínum vegna yfirstandandi kjarasamningsgerðar opinberra starfsmanna. Niðurstaða þeirrar vinnu er að Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB fékk í dag bréf frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra um afstöðu ríkisstjórnarinnar til áhersluatriða BSRB um kjara- og réttindamál.

Kjölur skrifar undir nýjan kjarasamning viđ ríkiđ

31.5.2011

KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu og samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráðherra skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöldi.

Kjarasamningurinn er á svipuðum nótum og samningarnir sem aðilar á almennum markaði gerðu fyrr í vor og gildir frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Launahækkanir verða krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin skilar félagsmönnum hagstæðari niðurstöðu. Þannig er félagsmönnum tryggð að lágmarki 4,25% hækkun þann 1. júní 2011, að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. mars 2012 og að lágmarki 3,25% þann 1. mars 2013. Einnig kemur til 38.000.- eingreiðsla þann 1. mars 2014 fyrir þá sem eru í fullu starfi í janúar 2014 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.

Flugumferđarstjórar skrifa undir

31.5.2011

Félag íslenskra flugumferðarstjóra skrifaði undir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia í morgunsárið. Samningurinn er til 5 ára. Yfirvinnubann hefur verið hjá flugumferðarstjórum undanfarna mánuði en öllum verkfallsaðgerðum hefur nú verið aflýst.

Samningurinn verður kynntur félagsmönnum í vikunni og mun niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn liggja fyrir innan hálfs mánaðar.

Ný stjórn FFR

30.5.2011

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) hélt aðalfund s.l. föstudag þann 27. maí. Á fundinum var kjörin ný stjórn. Kristján Jóhannsson var kjörin nýr formaður FFR. Bandalagið þakkar fráfarandi stjórnarmönnum farsælt samstarf í gegnum tíðina og óskar jafnframt nýkjörnum stjórnarmeðlimum til hamingju með kjörið.

SFR semur viđ ríkiđ

30.5.2011

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu skrifaði undir nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármálaráðherra rétt fyrir kl. eitt í nótt.

Kjarasamningur SFR felur í sér sambærilegar kjarahækkanir og samið var um í kjarasamningum almenna vinnumarkaðarins í byrjun maí. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Launahækkanir felur í sér krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin er hagstæðari fyrir félagsmenn. Félagsmönnum er þannig tryggð að lágmarki 4,25% hækkun þann 1. júní 2011, að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. mars 2012 og að lágmarki 3,25% þann 1. mars 2013. Einnig kemur til 38.000 kr. eingreiðsla þann 1. mars 2014 fyrir þá sem eru í fullu starfi í janúar 2014 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.

Samflot skrifar undir nýjan kjarasamning

30.5.2011

Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga, skrifaði í gærkvöldi undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2011 til 30. september 2014. Launahækkanir og eingreiðslur samningsins eru á svipuðum nótum og samið var um á almenna vinnumarkaðnum fyrr í mánuðnum. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstunni og skal atkvæðagreiðslu vera lokið 15. júní n.k.

BSRB skrifar undir samkomulag viđ fjármálaráđherra

29.5.2011

BSRB og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs með kjarasamningum 2011 var undirritað í dag. Samkomulagið er umgjörð um sameiginleg hagsmunamál bandalagsins vegna ríkisstarfsmanna. Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Árni Stefán Jónsson fyrsti varaformaður BSRB og Kristín Á. Guðmundsdóttir ritari BSRB skrifuðu undir samkomulagið fyrir hönd bandalagsins. Gunnar Björnsson og Ágústa H. Gústafsdóttir skrifuðu undir fyrir hönd fjármálaráðherra.

 

Kjarasamningur Póstmannafélags Íslands samţykktur

27.5.2011

Kjarasamningur Póstmannafélags Íslands við Íslandspóst hf. var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Póstmannafélagsins eða 90,1%. Kjarasamningurinn var undirritaður þann 18. maí s.l. og lauk talningu í dag.  

Á kjörskrá voru 932, atkvæði greiddu 525 eða 56,34%. 
Já sögðu 473 eða 90,1%
Nei sögðu 46 eða 8.8%
Auðir og ógildir seðlar voru 6 eða 1.1%.

BSRB fundađi međ ráđherrum

20.5.2011

Fulltrúar BSRB funduðu í dag með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Þar var farið yfir þætti er lúta að réttindamálum opinberra starfsmanna í aðdraganda kjarasamninga og falla beint undir verksvið ráðherra, svo sem málefni lífeyrissjóða opinberra starfsmanna, að unnið verði að þeirri framtíðarsýn að vinnuvikan verði 36 stundir og að tryggt verði áframhaldandi framboð á námi á framhaldsskólastigi fyrir fullorðna starfsmenn. Jafnframt að tryggt verði að ef samið verði um eingreiðslur í kjarasamningum skuli þær skila sér til lífeyrisþega og foreldra í fæðingar- og foreldraorlofi.

Póstmannafélag Íslands skrifađi undir nýjan kjarasamning

18.5.2011

Póstmannafélag Íslands undirritaði í dag nýjan kjarasamning við Íslandspóst kl. 13. Samningurinn felur í sér sambærilegar launahækkanir og aðildarfélög ASÍ sömdu um fyrr í mánuðnum. Lögð var áhersla á hækkun lægstu launa sem verður framkvæmd með svonefndri launatryggingu.

Við gildistöku samningsins skal öllum félagsmönnum tryggð 182.000 kr. lágmarkslaun eftir fjögurra mánaða starf. Ef hækkun launa í viðkomandi flokki með 4,25% hækkun nær ekki 12.000 kr. mun launaflokkurinn hækka sem nemur þeirri upphæð. Með þeim hætti munu laun þeirra lægst launuðu hlutfallslega hækka mest.

Samkvæmt samningnum hækka laun félagsmanna PFÍ um allt að 20% á samningstímabilinu sem lýkur 31. janúar 2014, uppfylli stjórnvöld ákveðin skilyrði fyrir 22. júní 2011. Verði samningurinn samþykktur fá félagsmenn eingreiðslu 1. júní n.k. að fjárhæð 50.000 kr.

Orlofsuppbót ríkisstarfsmanna 2011

16.5.2011

Fjármálaráðuneytið hefur gefið út yfirlýsingu um orlofsuppbót 2011. Samkvæmt kjarasamningum fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs við stéttarfélög ríkisstarfsmanna skal greiða orlofsuppbót 1. júní ár hvert. Skilyrði greiðslu er oftast að finna í gr. 4.2.2. í kjarasamningum.

Í tilviki flestra aðildarfélaga BSRB er óskert orlofsuppbót 25.800 kr.

 

Sérstakur saksóknari og Sýslumađurinn í Vík stofnanir ársins 2011

13.5.2011

Niðurstaða könnunar SFR um stofnun ársins var kynnt í sjötta sinn í kvöld. Húsfyllir var á Nordica hótel við afhendingu viðurkenninga þeirra sem voru í efstu sætum.  

Efsta sætið í flokki stærri stofnana hlaut embætti Sérstaks saksóknara með einkunnina 4,40 en flokkurinn tekur til stofnana þar sem starfsmenn eru fleiri en 50. Sýslumaðurinn í Vík var efstur í flokki minni stofnana þar sem starfsmenn eru 50 eða færri með einkunnina 4,79.

Frekari upplýsingar um könnunina er að finna hér.

BSRB óskar sigurvegurum og stofnunum ársins innilega til hamingju með árangurinn.

Nám er vinnandi vegur - Opin námskynning í Laugardalshöll

9.5.2011

Nám er vinnandi vegurFimmtudaginn 12. maí frá kl. 11-16 verður opin námskynning í Laugardalshöll. Þar gefst tækifæri til að kynna sér nýja námsmöguleika í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og fullorðinsfræðslu. Ráðgjafar frá Vinnumálastofnun og skólunum munu aðstoða við að finna heppilegustu leiðirnar til að bæta menntun, auka hæfni og fjölga atvinnumöguleikum einstaklinga. Kynningin er opin öllum. Sjá nánar hér.

Ađildarfélög BSRB hefja kjarasamningsviđrćđur

6.5.2011

BSRB fundaði með forsætisráðherra og fjármálaráðherra mánudaginn 2. maí og afhenti þeim minnisblað um sameiginleg málefni aðildarfélaga sem hafa verið falin bandalaginu til úrlausnar við komandi kjarasamninga. Voru aðilar sammála um mikilvægi þess að ljúka skyldi við kjarasamninga við opinbera starfsmenn sem fyrst. Þá átti framkvæmdanefnd BSRB fund með samninganefnd ríkisins í gær þar sem afhent var sama minnisblað og áhersluatriðin rædd.

Í kjölfar kjarasamninga ASÍ við SA sem gerðir voru 5. maí voru aðildarfélög BSRB boðuð á fundi með viðsemjendum sínum. Ástæða þess að aðildarfélög BSRB hafa ekki fengið viðræður um launalið sinna kjarasamninga er sú að viðsemjendur þeirra hafa viljað bíða eftir niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Félögin eru að hefja samningsviðræður og munu þær taka mið af launahækkunum nýrra kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum.

Umfangsmiklum niđurskurđi lokiđ

3.5.2011

Steingrímur J. SigfússonSteingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist vonast til þess að umfangsmiklum niðurskurði sé lokið, þó enn þurfi að beita aðhaldsaðgerðum. Í samtali við BSRB tíðindi sagði hann ríkisstjórnina hafa sett sér það markmið varðandi samneysluna að útgjöld til hennar færu aldrei niður fyrir 25% af vergri landsframleiðslu. Steingrímur segir það markmið enn í gildi. Vonir standi til þess að miklum niðurskurði, af þeirri stærðargráðu sem við höfum séð, sé lokið og á næstu tveimur árum nægi að hafa skýr aðhaldsmarkmið. Ljóst sé enda að komið sé að ákveðnum mörkum sem ákaflega sársaukafullt væri að fara yfir.

Krafa um samstöđu á 1. maí

2.5.2011

Ganga_2BSRB félagar héldu 1. maí hátíðlegan um allt land, líkt og aðrir í verkalýðshreyfingunni. Fjöldi manns sótti viðburði, gekk kröfugöngur, hlýddi á ræður og hélt kröfum sínum á lofti. Allir formenn BSRB, þau Elín Björg Jónsdóttir formaður, Árni Stefán Jónsson 1. varaformaður og Garðar Hilmarsson 2. varaformaður, héldu ræður. Óhætt er að segj að bandalagið hafi dreift sér víða um land því Garðar talaði á Austurvelli í Reykjavík, Árni Stefán í Borgarnesi og Elín Björg á Sauðárkróki.

BSRB tíđindi á vefnum

2.5.2011

BSRB tíðindi 2011 - forsíða

BSRB tíðindi komu út í tengslum við fyrsta maí, líkt og undanfarin ár. Þetta er 20. árgangur BSRB tíðinda og kennir þar margra grasa að venju. Þar má nefna viðtal við fjármálaráðherra þar sem hann segir m.a. að fjárlögum hinna miklu niðurskurða sé lokið og nú taki við tími aðhalds. Þá má nefna umfjöllun um lífeyrismál og stöðu LSR, kyngreiningu á áhrifum kreppunnar, umfjöllun um kynjabókhald BSRB og húsnæðisstefnu bandalagsins. Þá er einnig fjallað um streitu í kjölfar kreppunnar og rætt við félaga í BSRB, svo fátt eitt sé nefnt.

Kynjabókhald BSRB 2011

2.5.2011

Kynjabókhald BSRB kemur nú út öðru sinni, en að þessu sinni hefur verið bætt við upplýsingum um kynjahlutföll tilnefndra fulltrúa nefnda stjórnar og ráða á vegum BSRB. Líkt og í fyrra er þar einnig að finna gröf og línurit yfir kynskiptingu félagsmanna, stjórna aðildarfélaga, stjórnar og skipaðra fulltrúa á vegum BSRB. Breyting hefur orðið á milli kynjasamsetningar samtölu allra stjórnarmanna innan aðildarfélaganna 2011 miðað við 2010. Þar hafa konur aukið hlut sinn úr 56% í 62%. Að sama skapi hefur körlum fækkað úr 44% í 38%.

Ávarp Elínar Bjargar 1. maí

2.5.2011

EBJ á KróknumElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, flutti hátíðarávarp 1. maí á samkomu stéttarfélaganna í Skagafirði, sem fór fram í húsi Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Ávarpið fer hér á eftir:

Útifundur á Austurvelli og kaffi ađ Grettisgötu

30.4.2011

Dagskrá 1. maí verður með hefðbundnu sniðii í höfuðborginni. Safnast verður saman að horni Snorrabrautar og Laugavegs klukkan 13, þar sem Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkur lög. Þá verður gengið niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Austurvöll og leika lúðrasveitirnar fyrir göngunni. Útifundur hefst síðan að Austurvelli klukkan 14.10 og lýkur klukkan 15. Að honum loknum býður BSRB í fyrsta maí kaffi að Grettisgötu 89.

BSRB átelur getuleysi ríkis og sveitarfélaga

29.4.2011

Stjórn BSRB skorar á ríki og sveitarfélög að ganga nú þegar til kjarasamninga við aðildarfélög BSRB. Stjórnin telur ólíðandi að kjarasamningsgerð sé haldið í gíslingu með kröfu um að fámennum hópi verði afhentar auðlindir landsins. Ríki og sveitarfélög hafa í hálft ár komið sér undan því að hefja fyrir alvöru vinnu við gerð kjarasamninga og ber það vott um getu- og ábyrgðarleysi þeirra sem þar ráða. Stjórnin hefur sent frá sér ályktun sem fer hér á eftir:

Flugumferđarstjórar hljóta ćđstu viđurkenningu

26.4.2011

Flugumferðarstjórar_viðurkenningFlugumferðarstjórar á Íslandi hlutu æðstu viðurkenningu sem IFATCA, Alþjóðasamtök félagasamtaka flugumferðarstjóra, veita fyrir framúrskarandi fagmennsku (outstanding professionalism) árið 2010. Verðlaunin eru veitt fyrir afrek þar sem einstaklega fagleg vinnubrögð eru viðhöfð í flugumferðarstjórn. Á ráðstefnu haldin í Amman, Jórdaníu dagana 10-15 apríl síðastliðin var þessi viðurkenning veitt íslenskum flugumferðarstjórum fyrir einstakt afrek meðan á Eyjafjallajökulsgosinu stóð.

Skýrsla um húsnćđisstefnu tilbúin

26.4.2011

Samráðshópur um húsnæðisstefnu sem skipaður var í nóvember 2010 hefur skilað velferðarráðherra skýrslu með tillögum um aðgerðir á sviði húsnæðismála. Fulltrúi BSRB í hópnum var Hilmar Ögmundsson hagfræðingur. Í skýrslunni eru markmið húsnæðisstefnu skilgreind og lagðar fram tillögur um hvernig stjórnvöld geti náð þeim. Áhersla er lögð á að húsnæðisstefna skuli hafa það meginmarkmið að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna í landinu og stuðla að félagslegri samheldni og efnahagslegum stöðugleika.

Flugmálastarfsmenn mótmćla harđlega

12.4.2011

Stjórn Félags flugmálastarfsmanna ríkisins hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun þar sem Ísavía er hvatt til að draga ákvörðun sína um starfslokastefnu og starfsaldurslok til baka:

Stjórn Félags flugmálastarfsmanna ríkisins ( FFR ) átelur og mótmælir harðlega ákvörðun stjórnar Ísavia ohf frá 1. apríl 2011, sem kveður á um starfslokastefnu og reglu um starfsaldurslok hjá Ísavia ohf.

Elín Björg formađur Virk

12.4.2011

elinbjofSjórn Virk - starfsendurhæfingarsjóðs, kaus í morgun Elínu Björgu Jónsdóttur, formann BSRB, sem formann sinn. Elín Björg tekur við stöðunni af Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdarstjóri SA, sem hefur gegnt henni síðastliðið ár, en hann verður áfram meðstjórnandi. Aðilar að sjóðnum skipta formennsku með sér ár og ár í senn og hefur Elín Björg verið varaformaður síðastliðið ár. Við þeirri stöðu tekur Ágústa Hlín Gústafsdóttir, sem starfar í Stjórnarráðinu.

SLFÍ býđur félagsmönnum sálgćslu

12.4.2011

Öllum félagsmönnum Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) býðst nú stuðningur og sálgæsla í formi viðtala og handleiðslu hjá séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni, fyrrverandi sóknarpresti í Kópavogskirkju. Ægir býr yfir reynslu sem getur nýst þeim sem standa frammi fyrir miklu álagi í störfum sínum og einkalífi. Í frétt á heimasíðu SLFÍ segir að álag á sjúkraliða hefur aukist all verulega á undanförnum mánuðum og árum og því sé stuðningur við þá nauðsynlegur.

Landsframleiđsla mun vaxa

5.4.2011

Landsframleiðsla mun vaxa um 2,3% á árinu 2011 og 2,9% á árinu 2012 samkvæmt nýrri þjóðhagspál Hagstofu Íslands. Einkaneysla og fjárfesting °munu aukast á sama tíma, en samneysla heldur áfram að dragast saman. Gert er ráð fyrir að aukning fjárfestinga og einkaneyslu leiði til vaxtar í landsframleiðslu frá 2011 og út spátímann þrátt fyrir mikinn samdrátt í samneyslu árin 2011 og 2012.

Akstursgjald ríkisstarfsmanna

4.4.2011

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald
Fyrstu 10.000 km, kr. 104,00 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 94,00 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 83,50 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. apríl 2011. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2010 dagsett 1. október 2010.

Ađalfundur SFR segir kröfur SA fráleitar

30.3.2011

Aðalfundur SFR 2011Fjölmennur aðalfundur SFR, sem haldinn var í BSRB-húsinu þriðjudaginn 29. mars, átaldi harðlega þá stöðu sem upp er komin í kjarasamningum. Fundurinn samþykkti ályktun þar sem kröfur SA um að gengið verði frá fyrirkomulagi um stjórn fiskveiða áður en kjarasamningar verði gerðir við launafólk, er sögð fráleit. Þá var eftirgjöf stjórnvalda gagnvart atvinnurekendum einnig harðlega mótmælt. "Stjórn sem kennir sig við jöfnuð og félagslegt réttlæti á ekki að bíða eftir forskrift og leyfi frá atvinnurekendum á almennum markaði, heldur sýna frumkvæði í samningum við eigin viðsemjendur," segir í ályktuninni.

Áunnin lífeyrisréttindi ekki skert

30.3.2011

Aldrei hefur staðið til að skerða áunnin lífeyrisréttindi opinberra stafsmanna, eða breyta á nokkurn hátt, nema viðhaft verði fullt samráð við heildarsamtök opinberra starfsmanna. Þetta kemur fram í bréfi frá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra til BSRB, BHM og KÍ. Samtökin fóru fram á skýr svör ráðherra vegna minnisblaðs SA og ASÍ um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, en frá því var sagt hér. Heildarsamtökin hafa öll lýst því yfir að ekki komi til greina að skerða áunnin réttindi og þau séu ekki til viðræðna um samstarf í þá veru. Ráðherra segir sér "bæði ljúft og skylt" að upplýsa um þessi mál.

Upplýsingavefur um Icesave

29.3.2011

Opnaður hefur verið upplýsingavefur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave, sem haldin verður laugardaginn 9. apríl. Vefurinn er í umsjón Lagastofnunar Háskóla Íslands og eru upplýsingarnar unnar af Lagastofnun að beiðni Alþingis. Um kosningarrétt og kjörskrá í þjóðaratkvæðargreiðslunni fer á sama hátt og við alþingiskosningar. Þó skulu kjörskrár miðaðar við íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag.

Grein formanna um lífeyrismál

29.3.2011

Formenn BSRB, BHM og KÍ, segja ólíðandi að samtök launafólks gangi fram með kröfu um skerðingu réttinda félaga í öðrum samtökum. Þetta kemur fram í grein sem þeir rituðu í Fréttablaðið í síðustu viku. Þar segir að í minnisblaði SA og ASÍ um lífeyrismál, sem áður hefur verið sagt frá, sé þess krafist að réttindi opinberra starfsmanna verði skert og lífeyriskerfi þeirra breytt. "Það er alvarlegt að ASÍ skuli taka sér stöðu við hlið atvinnurekenda í kröfum sínum, ekki við hlið annarra félaga sinna í baráttu fyrir bættum réttindum launafólks. Raunar er umhugsunarefni hve samhljómur í málflutningi ASÍ og SA er orðinn ríkur, en það er önnur saga."

Tekist á um Icesave

25.3.2011

Icesave_fundurÓhætt er að segja að skoðanir hafi verið skiptar á opnum fundi BSRB um Icesave, sem haldinn var í BSRB-húsinu í gær. Frummælendur, lögfræðingarnir Jóhannes Karl Sveinsson og Reimar Pétursson, reifuðu kosti og galla þess að segja já eða nei í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Fundurinn var mjög fræðandi og upplýsandi og þátttakendur fengu að spyrja frummælendur spjörunum úr að framsögum loknum.

Opinn fundur um Icesave í dag

24.3.2011

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Icesave í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 í dag klukkan 16.30. Frummælendur á fundinum verða lögfræðingarnir Jóhannes Karl Sveinsson, sem sat í samninganefnd um Icesave, og Reimar Pétursson, sem er einn þeirra sem kvatt hafa til þess að lögin um Icesave verði felld. Fundurinn er öllum opinn.

BSRB, BHM og KÍ funda um lífeyrismál

24.3.2011

Lífeyrishópar BSRB, BHM og KÍ funduðu í morgun um stöðu lífeyrismála. Tilefnið var ekki síst hugmyndir ASÍ og SA um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna, en ekki síður almenn staða í lífeyrismálum. Ein af niðurstöðum fundarins var sú að þörf væri á að kynna llífeyrismál fyrir almenningi, en um þau ríkir nokkur misskilningur; líkt og umrætt minnisblað ASÍ og SA ber með sér.

Siđareglur ráđherra og ríkisstarfsmanna

23.3.2011

Forsætisráðherra hefur gefið út siðareglur ráðherra, en samkvæmt þeim skal skipuð samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna. Nefndin er ráðgefandi fyrir stjórnvöld og mun hún leiða vinnu við undirbúning siðareglna fyrir mismunandi hópa ríkisstarfsmanna og innleiðingu þeirra. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, á sæti í nefndinni.

Alţjóđlegi vatnsdagurinn 22. mars

22.3.2011

Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint 22. mars sem alþjóðlegan dag vatnsins til að vekja athygli á skorti á vatni í heiminum. Samþykktin felur ekki í sér lagalegar skuldbindingar, en viðurkennir að aðgangur að vatni og hreinlætisaðstöðu sé grundvallarmannréttindi. Í dag er áætlað að um rúmlega milljarður manna eða einn sjötti mannkyns, hafi takmarkaðan eða engan aðgang að hreinu drykkjarvatni og um tvo og hálfan milljarð skorti vatn til hreinlætis. Samkvæmt útreikningum sem gerðir voru í tengslum við „þúsaldarmarkmið" Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórnir heimsins samþykktu árið 2000, er gert ráð fyrir að 1,6 milljarður manna muni bætast við þann fjölda til ársins 2015, jafnvel á svæðum sem eru rík af vatni eins og Vesturlönd.

Opinn fundur um Icesave

22.3.2011

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Icesave í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 24. mars klukkan 16.30. Frummælendur á fundinum verða lögfræðingarnir Jóhannes Karl Sveinsson, sem sat í samninganefnd um Icesave, og Reimar Pétursson, sem er einn þeirra sem kvatt hafa til þess að lögin um Icesave verði felld. Fundurinn er öllum opinn.

Minnisblađi ASÍ og SA hafnađ

18.3.2011

Stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála, dagsettu 25. febrúar 2011. Þar koma fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Stjórnin samþykkti rétt í þessu ályktun þar sem þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð.

Sala tćkja og áhalda

17.3.2011

Þann 10. mars s.l. rann út tilboðsfrestur vegna sölu á tækjum og áhöldum í eigu Eignasjóðs orlofsheimila BSRB sem auglýst voru til sölu í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu þann 19. febrúar s.l. Alls bárust tilboð frá 84 aðilum í einn eða fleiri hluti. Ákveðið var að ganga ekki að tilboðum sem fólu í sér kaup á heildarpakkanum, heldur að selja einstaka hluti sér. Hæstu tilboð í einstaka hluti eru birt hér og verður haft samband við viðkomandi aðila á næstu dögum og gengið frá samningum við þá.

Vinnufundur um lífeyrisimál

17.3.2011

Nú stendur yfir vinnufundur stjórnar BSRB um lífeyrismál í BSRB-húsinum, Grettisgötu 89. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, fór í morgun yfir stöðuna á sjóðnum, réttindi og uppbyggingu bæði A og B deildar. Þá fór Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, yfir stöðuna í lokuðum deildum lífeyrissjóðum sveitarfélaga. Nú er Benedikt Jóhannesson tryggingasérfræðingur að fara yfir samspil lífeyrissjóðakerfisins og almannatrygginga. Árni Stefán Jónsson, fyrsti varaformaður BSRB, mun á eftir fara yfir stöðuna í vinnuhópi um lífeyrismál. Stjórn BSRB mun síðan vinna úr þeim upplýsingum sem fram koma í vinnuhópum.

Mun fleiri konur misstu vinnuna

15.3.2011

Mun fleiri konur en karlar hafa misst vinnuna hjá ríkinu vegna niðurskurðar ríkisstjórnarinnar. Í ársbyrjun 2009 störfuðu 21.900 hjá ríkinu í 17.900 stöðugildum, en um síðustu áramót störfuðu þar 21.000 í 17.400 stöðugildum. Fækkað hefur um 470 konur og 70 karla. Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi í gær. Af þessu sést að varnaðarorð BSRB, sem meðal annars mátti sjá í ályktun jafnréttisnefndar BSRB frá í júní 2009, hafa illu heilli ræst.

Rćđa Elínar Bjargar á alţjóđlegum baráttudegi kvenna

9.3.2011

Formaður BSRB, Elín Björg Jónsdóttir flutti ræðu á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær 8. mars í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Í ræðu sinni fór hún yfir sögu alþjóðlegs baráttudags kvenna sem fagnaði í gær 100 ára afmæli. Vakti hún athygli á að samstöðu verkafólks hefði þurft til að berjast fyrir þeim umbótum sem náðst hafa í jafnréttismálum og samstaðan er enn helsta vopnið í baráttunni fyrir betri kjörum og fjölskylduvænni menningu. Ótækt sé að eftir 100 ára baráttu fyrir jafn sjálfsögðum málum og jafnrétti kynjanna er, skuli launamisrétti enn vera fyrir hendi. Elín Björg hvetur til samstöðu alls samfélagsins í jafnréttisbaráttuni og að herhvötinni sé hlýtt um fullt jafnrétti, endanlegt jafnrétti.

Elín Björg međ ávarp í Ráđhúsinu

7.3.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, flytur ávarp á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, 8. mars, en það er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Fundurinn er haldinn í Tjarnarsalnum og ber yfirskriftina: Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti - 8. mars í 100 ár. Dagskráin hefst á ávarpi Frú Vigdísar Finnbogadóttur. Að því loknu flytur Elín Björg Jónsdóttir ávarp sem hún nefnir "Þín herhvöt oft fékk ekki svar", en fleiri fylgja síðan í kjölfarið.

Jafnrétti úr viđjum vanans

7.3.2011

Á morgun, þriðjudaginn 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. BSRB stendur þá fyrir fundi á Grand Hótel Reykjavík, klukkan 11.45 til 13. Yfirskrift fundarins er: "Staða konunnar er laus til umsóknar - Jafnrétti úr viðjum vanans." Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, flytur þar erindið: Löggjöf um mismunum og fjölþætt mismunum. Þá kynnir Eygló Árnadóttir, sjálfstætt starfandi fræðikona, niðurstöður athugunar á velferð kvenna fyrir og eftir efnahagshrun, en erindið nefnir hún Konur í kreppu? Að lokum flytur Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands, erindið: "Engin afsökun fyrir þvermóðsku og heimóttarskap að vera úr Mývatnssveit" um skrif Öðlingskarlanna í Fréttablaðið.

Vilja funda međ stjórnendum Isavia

7.3.2011

Formenn þriggja stéttarfélaga innan BSRB munu fara fram á fund með forstjóra og stjórnarformanni Isavia, ásamt með forsvarsmönnum BSRB, vegna dóms vegna kynferðislegrar áreitni sem upp kom hjá fyrirtækinu. Félögin þrjú, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag íslenskra flugumferðarstjóra og SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu, héldu sameiginlegan fund um málið í síðustu viku. Kom þar fram óánægja vegna þessa máls, sem og annarra hjá fyrirtækinu.

Dagskrá 8. mars á Akureyri

4.3.2011

BSRB kemur að þremur fundum sem haldnir verða á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars. Tveir hafa þegar verið auglýstir og verða þeir haldnir í Reykjavík.

Á Akureyri er einnig boðað til hádegisfundar í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Fundurinn verður haldinn á hótel KEA kl. 12-13:30 undir yfirskriftinni: Er þetta allt að koma? Launajafnrétti, aðgerðir og niðurskurður.

 

Niđurskurđur í skólum bitnar á konum

3.3.2011

Niðurskurður í grunn- og leikskólum Reykjavíkurborgar mun fækka konum í stjórnunarstöðum, lækka laun þeirra sem fyrir verða og hefur í för með sér verri þjónustu fyrir börn og foreldra. Þetta kemur fram í bréfi sem Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hefur sent Jóni Gnarr borgarstjóra og Degi B. Eggertssyni formanni borgarráðs. Afrit af bréfinu fór til Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartar Hannessonar velferðarráðherra. Kristín minnir á lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna, nr. 10/2008, en samkvæmt þeim ber að bæta sérstaklega stöðu kvenna.

Elín Björg međ ávarp 8. mars

2.3.2011

Augl_8_marsBSRB kemur að tveimur fundum sem haldnir verða á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars. Klukkan 11.45 til 13 verður haldinn fundur á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni: Staða konunnar er laus til umsóknar - Jafnrétti úr viðjum vanans. Dagskrá þess fundar má sjá á myndinni hér til hliðar. Klukkan 17 hefst dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni: Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti - 8. mars í 100 ár. Dagskráin hefst á ávarpi Frú Vigdísar Finnbogadóttur. Að því loknu flytur Elín Björg Jónsdóttir ávarp og fleiri í kjölfarið.

Gögn um Stóruskóga komin á vefinn

1.3.2011

Fjölmennur kynningarfundur var haldinn í gær um orlofshúsin í Stóruskógum, en þau hafa verið auglýst til sölu. Alls er um að ræða 17 hús og tvær lóðir til leigu, en þar er hægt að reisa sumarhús. Kynningarefnið sem stuðst var við á fundinum er nú komið á heimasíðu BSRB undir hlekknum Orlofsbyggðir. Það má einnig nálgast hér.

Grein Ţórveigar í Fréttablađinu

1.3.2011

Þórveig ÞormóðsdóttirÞórveig Þormóðsdóttir, formaður jafnréttisnefndar BSRB, segir að niðurskurður í velferðarkerfinu gangi þvert gegn yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð. Jafnréttisnefnd BSRB hafi varað við þessu og hafnað atvinnustefnu á kostnað kvenna, í ályktun sem samþykkt var í júní 2009. Nýlegt svar velferðarráðherra við fyrirspurn á Alþingi sýni að 92 konur muni missa störf sín alfarið vegna niðurskurðar í fjárlögum 2011 og 15 karlar. Þá muni 75,6 stöðugildi kvenna sæta skerðingu á starfshlutfalli á móti 11,1 stöðugildi karla.

Kynningarfundur um orlofshús

28.2.2011

StóruskógarKynningarfundur um sölu á orlofshúsum í Stóruskógum verður haldinn í dag klukkan 17, í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Alls eru til sölu 17 hús á svæðinu og tvær lóðir til leigu. Svæðið er staðsett vestan við Þjóðveg 1, á móts við Munaðarnes sem Norðurá rennur austan við. Gljúfurá liggur vestan við svæðið. Orlofssvæðið er að stórum hluta vaxið birkikjarri og er þekkt fyrir heita sumardaga og mikla veðursæld.

Fundađ um neysluviđmiđ

24.2.2011

Guðbjartur í BSRBNú stendur yfir fundur um neysluviðmið í BSRB-húsinu. Ráðherra velferðarmála, Guðbjartur Hannesson, er að kynna neysluviðmiðin og síðan verða umræður um málið. Neysluviðmiðin byggja á skýrslu sérfræðingahóps sem lagði fram þrenns konar neysluviðmið. Í fyrsta lagi er dæmigert viðmið sem lýsir hóflegri neyslu, í öðru lagi skammtímaviðmið byggt á sömu forsendum en í því er gert ráð fyrir að fólk geti dregið úr neyslu og frestað útgjaldaliðum tímabundið og í þriðja lagi grunnviðmið sem gefa á vísbendingar um hvað fólk þarf að lágmarki til að framfleyta sér.

Kaupmáttarrýrnun mest hjá BSRB

24.2.2011

Kaupmáttur opinberra starfsmanna hefur lækkað mest frá því 2006 samkvæmt niðurstöðu vinnuhóps sem kannað hefur þróun kaupmáttar í undirbúningi kjarasamninga. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, sagði í samtali við Eyjuna að þetta kæmi félagsmönnum BSRB ekki á óvart. Þeir hefðu fundið fyrir þessu á eigin skinni. „Með allt of hógværum launahækkunum og mikilli verðbólgu rýrnar kaupmátturinn óhjákvæmilega. Opinberir starfsmenn hafa búið við það að vera með lægri laun en gengur og gerist á almenna markaðnum og þessi úttekt sýnir að þau hafa skerðst enn frekar hjá okkur."

Grein Elínar Bjargar í Fréttablađinu

24.2.2011

elinbjof"Allir þurfa þak yfir höfuðið, um það þarf ekki að velkjast. Nú er tækifæri á því að byggja upp leigukerfi að norrænum sið og veita öllum þau mannréttindi að eiga sér samastað." Svo mælir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í grein í Fréttablaðinu í dag. Elín er þar að minna á hugmyndir BSRB um almennan leigumarkað, en samráðshópur velferðarráðuneytisins er að ræða hugmyndir um að efla  leigumarkað í landinu með því að setja íbúðir í eigu lífeyrissjóða, banka og annarra lánastofnana á leigumarkað.

Ráđherra á fundi BSRB

22.2.2011

Guðbjartur HannessonVelferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson, verður á opnum fundi í BSRB-húsinu, að Grettisgötu 89, fimmtudaginn nk., 24. febrúar, klukkan 16.30. Ráðherra mun þar fara yfir nýbirt neysluviðmið, sem mikið hafa verið í umræðunni undanfarið. Að loknu erindi ráðherra verða umræður um málið. Fundurinn er öllum opinn.

Orlofshús í Stóruskógum til sölu

21.2.2011

StóruskógarBSRB auglýsir til sölu 17 orlofshús í Stóruskógum í Borgarbyggð. Svæðið er staðsett vestan við Þjóðveg 1, á móts við Munaðarnes sem Norðurá rennur austan við. Gljúfurá liggur vestan við svæðið. Orlofssvæðið er að stórum hluta vaxið birkikjarri og er þekkt fyrir heita sumardaga og mikla veðursæld. Að auki eru til leigu tvær auðar lóðir á svæðinu, sem reisa á orlofshús á.

Til sölu tćki og áhöld

21.2.2011

Eignasjóður orlofsheimila BSRB auglýsir til sölu fjölmörg tæki og áhöld sem eru í eigu sjóðsins og staðsett í Munaðarnesi í Borgarfirði. Upplýsingar um ástand gefur Geir Sævar Geirsson í síma 898-7527 og er jafnframt hægt að fá að skoða tækin og áhöldin í samráði við hann. Tilboðum skal skila skriflega til skrifstofu BSRB Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, merktum Drífu Valdimarsdóttur fjármálastjóra eða á netfangið drifa@bsrb.is fyrir 10. mars n.k. BSRB áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Bent er á að starfsemi BSRB fellur ekki undir virðisaukaskattsskylda starfsemi.

SLFÍ vinnur mál fyrir Hćstarétti

18.2.2011

Sjúkraliðafélag Íslands vann á dögunum mál fyrir Hæstarétti sem höfðað var gegn Dvalarheimilinu Ási og Sjóvá-almennum trygginum. Sjúkraliði sem starfaði á Ási varð fyrir aftanákeyrslu og hlaut varanleg meiðsl á öxl. Hún leitaði til Sjúkraliðafélagsins og fékk staðfestingu á að þar sem slysið hefði verið á vinnutíma væri það skilgreint sem vinnuslys. Gerði sjúkraliðinn því þá kröfu að atvinnurekandi hennar greiddi bætur úr slysatryggingu sem ákvæði er um í kjarasamningi SLFÍ. Vátryggingarfélagið synjaði um bætur á grundvelli þess að ársfrestur til að gera kröfur um bætur væri liðinn. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði báða aðila af kröfunni, en Hæstiréttur sýknaði tryggingarfélagið en dæmdi Dvalarheimilið Ás til að greiða sjúkraliðanum bætur á grundvelli þess að þeir hefðu látið hjá líða að tilkynna henni um trygginguna og skilmála hennar svo að sjúkraliðinn gæti leitað réttar síns. Þar sem það hafði ekki verið gert gat dvalarheimilið ekki losnað undan ábyrgð sinni.

BSRB átelur launahćkkun dómara

18.2.2011

Stjórn BSRB hefur samþykkt ályktun í tilefni af ákvörðun kjararáðs um tímabundið álag á laun til dómara:

 

BSRB átelur ákvörðun kjararáðs um sérstakt tímabundið álag á laun til hæstaréttardómara og dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Starf dómara er mikilvægt og engum vafa er undirorpið að mikið álag hefur verið á þeim í kjölfar efnahagshrunsins. Það á hins vegar við um fjölmargar aðrar stéttir. Við mikinn niðurskurð til almannaþjónustunnar hefur álagið á starfsmenn hennar aukist verulega, jafnhliða auknum verkefnum með brýnni þörf og færri starfsmönnum. Ákvörðunin hlýtur að slá tóninn í yfirstandandi kjaraviðræðum og þær stéttir sem búa við mikið álag hljóta að vænta sömu uppbótar. Það er ólíðandi að á meðan ríkisvaldið fæst ekki til að ganga frá kjarasamningum við starfsmenn sína skuli kjararáð hækka laun dómara.

Úthlutađ vegna ţjónustu viđ fatlađa

16.2.2011

Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun almennra framlaga sjóðsins vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2011. Um er að ræða, samtals 7.833.246.000 króna sem skiptist á milli þjónustusvæða/sveitarfélaga. Forsendur áætlunarinnar byggjast á greiningu á skiptingu framlaga ríkisins vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2010. Tekið er tillit til viðbóta og tilfærslna milli fjárlagaliða sem áttu sér stað á árinu 2010 og fram koma í greinargerð með frumvarpi til fjárlaga árið 2011, líkt og segir á vef Innanríkisráðuneytisins.

69 ár frá stofnun BSRB

14.2.2011

BSRB var stofnað 14. febrúar árið 1942, fyrir sléttum 69 árum. Bandalagið var stofnaði í Reykjavík og voru stofnfélög 14 og höfðu á að skipa 1550 félagsmönnum. Tildrögin að stofnun bandalagsins voru ríkjandi dýrtíð allt frá 1939 sem rekja má til heimsstyrjaldarinnar síðari og nánasta aðdraganda hennar. Umræðan um nauðsyn heildarsamtaka var þegar hafin um sumarið 1939. Stórt skref á þeirri braut var svo stigið 28. janúar 1941 er fulltrúaráði félaga opinberra starfsmanna var komið á fót. Hlutverk þess var að koma á framfæri sameiginlegum kröfum félaganna og vinna að stofnun heildarsamtaka.

Ráđstefna um kynjađa hagstjórn

11.2.2011

Ráðstefna um kynjaða hagstjórn verður haldin á Hilton Hótel Nordica á mánudaginn klukkan 13. Þar mun Diane Elson, prófessor við Essex háskóla í Bretlandi, halda fyrirlestur, um kynjaða hagstjórn. Hún er einn helsti sérfræðingur í kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð. Hún starfar með The Women‘s Budget Group sem er sjálfstæður hópur sérfræðinga úr akademíu, frá frjálsum félagssamtökum og stéttarfélögum.

Grein Sonju í Fréttablađinu

11.2.2011

Sonja Ýr ÞorbergsdóttirSonja Ýr Þorbergsdótir, lögfræðingur BSRB, ritar grein í Fréttablaðið í tilefni nýfallins dóms héraðsdóms Reykjaness í máli félagsmanns BSRB. Sonja segir dóminn hafa mikið fordæmisgildi, en í honum er tekin afstaða til þess hvort ákveðið atvik hafi verið kynferðisleg áreitni á vinnustað og hvort atvinnurekandi hafi brugðist við með réttum hætti í kjölfar atviksins. Sonja telur dóminn fela í sér mikilvægar leiðbeiningar um hvernig atvinnurekendur eigi að bregðast við aðstæðum sem þessum, grípa eigi til viðeigandi ráðstafana og gæta þess að slík atvik hafi ekki áframhaldandi áhrif á störf og líðan starfsmanns.

Yfirvinnubann hjá flugumferđarstjórum

10.2.2011

Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur samþykkt yfirvinnubann sem og þjálfunarbann. Yfirgnæfandi meirihluti var fylgjandi þessum aðgerðum eða um 90%. Yfirvinnubannið hefst 14. febrúar og stendur ótímabundið eða þar til nýr kjarasamningur hefur verið undirritaður. Yfirvinnubannið er sem hér segir:
  • kl. 20:00 - 24:00 mánudaga - föstudaga
  • kl. 00:00 - 07:00 mánudaga - föstudaga
  • kl. 00:00 - 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga

Segir stjórnvöld ekki ţora ađ semja

10.2.2011

Árni Stefán Jónsson, fyrsti varaformaður BSRB og formaður SFR, segir ríkisstjórnina ekki þora að semja við ríkisstarfsmenn og þeir leyfi Samtökum atvinnulífsins að halda kjarasamningum í gíslingu með kröfu um lausn í kvótamálum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. "Ríkisstjórnin þorir ekki að ganga til samninga við ríkisstarfsmenn og er að bíða eftir einhverju öðru, einhverri lausn á hinum almenna markaði," sagði Árni Stefán við Rúv í gær og bætti því við að þetta væri óþolandi afstaða miðað við þær aðstæður sem við búum við í dag.

Dómur í máli félagsmanns BSRB vegna kynferđislegrar áreitni á vinnustađ

9.2.2011

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt atvinnurekanda til að greiða starfsmanni sínum skaða- og miskabætur vegna þess tjóns er hún varð fyrir í kjölfar kynferðislegrar áreitni yfirmanns á vinnustað og athafna eða athafnaleysis atvinnurekanda í kjölfar kvörtunar vegna þess. Starfsmaðurinn sem um ræðir er félagsmaður BSRB og tók bandalagið að sér að kostnaðinn af rekstri málsins fyrir dómstólum þar sem um prófmál var að ræða. Niðurstaðan hefur því fordæmisgildi og almenna þýðingu fyrir launafólk enda að finna leiðbeiningu um skilgreiningu og viðbrögð við kynferðislegri áreitni á vinnustað.

Fundađ međ Íbúđalánasjóđi

3.2.2011

ÍbúðarlánasjóðurForsvarsmenn BSRB funduðu með Sigurði Erlingssyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, og Sigurði Geirssyni, forstöðumanni innra eftirlits sjóðsins, í morgun. Þar kynnti BSRB tillögur sínar um að koma á fót leiguhúsnæðiskerfi að danskri fyrirmynd. BSRB hefur talað fyrir þeirri hugmynd að koma upp nokkurskonar félagslegum íbúðum í eigu leigufélaga eða fyrirtækja. Þannig mætti leysa úr bráðum húsnæðisvanda, um leið og festu yrði komið á leigumarkaðinn hér á landi.

Lokađ vegna Jafnréttisţings

2.2.2011

Skrifstofa BSRB verður lokuð föstudaginn 4. febrúar vegna Jafnréttisþings. Allir starfsmenn BSRB munu sækja þingið og taka þátt í starfi þess. Hlutverk þingsins er að efna til samræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa öllum áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum. BSRB hefur lengi lagt mikla áherslu á jafnréttismál og hefur staðið fyrir ýmiskonar aðgerðum í þeim efnum.

SFR vill 18 til 24 mánađa samninga

31.1.2011

SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu, hefur kynnt viðsemjendum þá kröfu sína að lögð verði áhersla á krónutöluhækkun árið 2011, en árið 2012 verði um prósentuhækkanir að ræða, ásamt með mögulegum krónutölukhækkunum. Þá telur SFR að það þjóni ekki hagsmunum launþega að gera skemmri samninga en til 18 mánaða og leggur til að gildistími samninga verði 18 til 24 mánuðir. Með því sé hægt að vinna að stöðugleika til hæfilegs tíma,en binda kjarasamninga þó ekki of langt inn í framtíðina í því óvissuástandi sem nú ríkir.

Diane Elson og kynjuđ hagstjórn

27.1.2011

Jafnréttisstofa býður til ráðstefnu um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð mánudaginn 14. febrúar kl. 13:00 á Hilton Hótel Nordica. Ráðstefnan ber yfirskriftina Nýir tímar - breytt hagstjórn. Aðal fyrirlesari verður Diane Elson einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði auk þess mun verkefnastjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð kynna starf sitt og tvö tilraunaverkefni á hennar vegum verða kynnt.

BSRB fundađi međ ráđherrum

26.1.2011

Stjórnarráð_26.1.11Framkvæmdanefnd BSRB fundaði í dag með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Þar var farið yfir þau verkefni sem aðildarfélögin hafa falið BSRB að berjast fyrir og falla beint undir verksvið ráðherra, svo sem málefni Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna, að unnið verði að þeirri framtíðarsýn að vinnuvikan verði 36 stundir og að staðið verði við gefin loforð um hækkun persónuafsláttar.

Jafnréttisstofa gefur út dagatal

25.1.2011

Jafnréttisstofa hefur gefið út dagatal til að vekja athygli á nauðsyn þess að rjúfa staðalmyndir kynjanna á vinnumarkaði en kynbundið starfsval er samfélagslegt vandamál sem hindrar bestu nýtingu mannauðsins og dregur úr fjölbreytni og sveigjanleika vinnumarkaðarins. Í frétt á heimasíðu Jafnréttisstofu segir að ýmsar rannsóknir bendi til að kynjaskiptur vinnumarkaður sé hindrun í vegi fyrir jafnri stöðu karla og kvenna þar sem hann viðheldur m.a. launamun kynjanna en í ár eru 50 ár frá gildistöku laga um launajöfnuð kvenna og karla á Íslandi.

Gengiđ á fund forsvarsmanna ríkisstjórnar

25.1.2011

Framkvæmdanefnd BSRB gengur á fund forystumanna ríkisstjórnarinnar, þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, í Stjórnarráðshúsinu klukkan níu í fyrramálið. Þar verður þeim kynnt þau verkefni sem BSRB hefur verið falið af aðildarfélögum sínum að leggja áherslu á í kjarasamningum, sem og áherslur bandalagsins.

Skýrsla um ađgerđir gegn einelti

24.1.2011

Starfshópur um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum hefur gefið út skýrslu með 30 tillögum að samhæfðum aðgerðum gegn einelti. Ríkisstjórnin veitir sérstaklega 9 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til að styðja við átakið. Meðal þess sem starfshópurinn leggur til er að sérstakur dagur verði árlega helgaður baráttunni gegn einelti og kynferðislegri áreitni. Þá er einnig lagt til að komið verði á fót fagráði sem almennir vinnustaðir, skólar eða foreldrar geti leitað til þegar koma upp erfið og illleysanleg eineltismál. 

Félagsmálaskólinn međ 42 námskeiđ

24.1.2011

Félagsmálaskóli alþýðu hefur gefið út bækling með yfirliti yfir öll þau námskeið sem skólinn býður upp á. Alls eru það 42 námskeið. Sú breyting hefur orðið á að ekki verða haldin námskeið á fyrirfram ákveðnum dögum, heldur þarf að panta þau. Reynslan hefur sýnt að meiri aðsókn er á þau námskeið sem félögin panta sérstaklega.

Sjúkraliđar í Reykjavík krefjast kjarasamninga

21.1.2011

Sjúkraliðar hjá Reykjavíkurborg hafa dregist verulega aftur úr í launum miðað við sjúkraliða hjá ríki og sjálfseignarstofnunum. Þetta kemur fram í ályktun sem fjölmennur kjarafundur Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti á miðvikudag. Þar var þess krafist af stjórn Reykjavíkurborgar að ganga nú þegar til kjarasamninga við Sjúkraliðafélagið. Liðnir eru 18 mánuðir síðan samningur við félagið rann út og þrír mánuðir síðan samið var við sjúkraliða sem starfa hjá ríki og sjálfseignarstofnunum með afturvirkni fyrir þá mánuði sem samningar voru lausir.

Grein Helgu í Fréttablađinu

21.1.2011

Helga JónsdóttirNauðsynlegt er að bæta samhæfingu og reglufestu í stjórnsýslunni, að því er kemur fram í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.  Helga Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri BSRB, bendir á þessa staðreynd í grein í Fréttablaðinu í dag og segir að afnám á formfestunni séu kolröng viðbrögð við skýrslu rannarsóknarnefndar Alþingis um það sem leiddi þjóðina í þær ógöngur sem hún er í. Grein Helgu er viðbrögð við ályktun Ríkisendurskoðunar um að einfalda þurfi uppsagnarferli opinberra starfsmanna.

Opinberir stjórnendur nýta ekki stjórnunartćki

19.1.2011

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál ríkisins sýnir að opinberir stjórnendur nýta ekki þau stjórnunartæki sem þeir hafa yfir að ráða, svo sem starfsmannasamtöl og frammistöðumat. Líkt og stjórn BSRB ályktaði um í nóvember, þegar fyrstu niðurstöður skýrslunnar voru kynntar, lætur aðeins helmingur forstöðumanna fara fram reglulegt mat á frammistöðu starfsmanna. Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, segir í samtali við Eyjuna að áminningarferlið sé ekki íþyngjandi, heldur sé til staðar til að tryggja vandaða stjórnsýslu.

Í heimsókn hjá Kili

19.1.2011

Heimsókn til KjalarElín Björg Jónsdóttir formaður og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóra halda áfram yfirreið sinni yfir landið og heimsóknum til aðildarfélaga BSRB. Á föstudag sóttu þær Kjöl - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu heim, í höfuðsstöðvar félagsins á Akureyri. Þar sátu þær stjórnarfund og kynntust starfinu. Þetta er liður í átaki til að styrkja tengslin milli aðildarfélaganna og skrifstofu BSRB og kynnast starfsemi einstakra félaga. Vonir standa til að hægt verði að heimsækja öll aðildarfélögin innan tíðar.

Grein Elínar í Fréttablađinu

19.1.2011

elinbjofElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, telur lag að ná kjarasamningum sem séu íslensku þjóðinni til heilla. Þetta kemur fram í grein sem hún birti í Fréttablaðinu á mánudag. Elín telur þó mikilvægt að semja sem fyrst. "Í því árferði sem við búum við er mikilvægt að semja sem fyrst svo að heimilin í landinu sjái hver launaþróunin verður. Það er á ábyrgð okkar í verkalýðshreyfingunni og viðsemjenda okkar að eyða þeirri óvissu eins fljótt og hægt er og stuðla að því að leiðrétta þá kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin ár."

Enn laust á trúnađarmannanámskeiđ

14.1.2011

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst 24. janúar. Námið er í sjö þrepum og fer kennsla fram í BSRB húsinu að Grettisgötu 89. Námið er ætlað trúnaðarmönnum á vinnustöðum og er stílað upp á fullorðið fólk á vinnumarkaði, eldra en 20 ára og með stutta skólagöngu. Tilgangur námsins er að auðvelda trúnaðarmönnum að takast á við verkefni sem þeim eru falin, að þeir efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Hægt er að fá allt námið metið til 11 eininga til styttingar náms í framhaldsskóla. Skráning fer fram á vef BSRB og skrifstofa BSRB veitir allar upplýsingar í síma 525-8300.

Nýr námsvísir Starfsmenntar

13.1.2011

StarfsmenntNýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út og er þar að finna þær námsleiðir sem í boði eru vorið 2011. Þar er að finna fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða og margskonar mannauðsþjónustu fyrir opinbera starfsmenn. Starfsmennt er afsprengi þeirrar auknu áherslu sem fram hefur komið í endur- og símenntun starfsmanna ríkisins. Setrið byggir á þeirri hugmyndafræði að það sé æskilegt að þjálfa, viðhalda og auka þekkingu starfsmanna til að auka gæði starfseminnar og starfsánægju þeirra.

BSRB vill fjöskylduvćnna samfélag

13.1.2011

Samninganefnd sveitarfélagaBSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi. Þetta er á meðal þeirra verkefna sem aðildarfélögin hafa falið bandalaginu að berjast fyrir, ásamt með lífeyrismálum, því að tryggja framlög í Mannauðspott og að réttur til hlutveikinda verði viðurkenndur, svo eitthvað sé nefnt. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við Fréttablaðið að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag.

Kröfur kynntar samningsađilum

12.1.2011

Samninganefndum ríkisisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga verða kynntar kröfur BSRB í kjarasamningum á sitthvorum fundinum í BSRB húsinu í dag. Þar verður farið yfir þau sameiginlegu verkefni í kjarasamningum sem bandalaginu hafa verið falin af aðildarfélögunum, en að öðru leyti er samningsrétturinn hjá hverri samningseiningu fyrir sig..

Semja á um fyrst um innihald

11.1.2011

elinbjofsvElín Björg Jónsdóttir segir að undarlegt sé að ræða lengd kjarasamninga áður en fyrir liggi hvað í samningunum sjálfum sé. Þetta kemur fram í samtali við Eyjuna en þar er Elín spurð út í ummæli Vilhjálms Egilssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, þess efnis að ekki sé vænlegt að semja til skemmri tíma en þriggja ára.

Unniđ gegn víxlverkun bóta og almannatrygginga

10.1.2011

Fundin verður lausn til framtíðar á víxlverkun bóta almannatrygginga og lífeyrissjóðanna og samstarf Tryggingarstofnunar ríkisins og lífeyrissjóðanna verður eflt til einföldunar og hagsbóta fyrir lílfeyrisþega. Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í samkomulagi ríkisstjórnar Íslands og Landssambands lífeyrissjóða varðandi víxlverkun bóta. Þetta er þetta í fullu í samræmi við baráttumál BSRB, sem meðal annars má sjá stað í samþykktum 42. þings bandalagsins.

Ráđherranefnd í atvinnumálum

10.1.2011

Ríkisstjórnin skipaði fyrir helgi nýja ráðherranefnd í atvinnumálum. Hennar er m.a. að fara yfir atvinnu- og vinnumarkaðsmál í tengslum við stefnu stjórnvalda. Velferðarmálin verða inn á borði nefndarinnar eftir því sem þurfa þykir, en aðeins forsætis- og fjármálaráðherra munu eiga föst sæti í nefndinni. Velferðar-, mennta- og menningarmála-, efnahags- og viðskipta-, sjávarútvegs- og landbúnaðar- og iðnaðarráðherra munu koma inn í nefndina eftir umfjöllunarefni hverju sinni. BSRB er á meðal þeirra aðila sem nefndin mun hafa samráð við.

Genfarskólinn 2011

6.1.2011

Norræni lýðháskólinn, Genfarskólinn, er ætlaður virkum félögum í stéttarfélögum og geta allir félagar í aðildarfélögum BSRB sótt um að taka þátt í honum. Námið hefst með staðlotu í Runö í Svíþjóð og að því loknu tekur við fjarnám í apríl og maí. Aðalnámskeiðið fer síðan fram í Genf 29. maí til 17. júní. BSRB hefur valið einn fulltrúa í skólann árlega.Umsóknarfrestur er til 10. janúar og skal umsóknum skilað á skrifstofu BSRB.

Starsflokanámskeiđ Félagsmálaskóla BSRB

5.1.2011

Félagsmálaskóli BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði á höfuðborgarsvæðinu dagana 31. janúar til 2. febrúar 2011. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í aðildarfélögum BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 26. janúar á skrifstofu BSRB, í síma 525-8300, eða á netfangið bsrb@bsrb.is Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta