Fréttir
SFR vill 18 til 24 mánađa samninga
31.1.2011
Diane Elson og kynjuđ hagstjórn
27.1.2011
BSRB fundađi međ ráđherrum
26.1.2011
Framkvæmdanefnd BSRB fundaði í dag með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. Þar var farið yfir þau verkefni sem aðildarfélögin hafa falið BSRB að berjast fyrir og falla beint undir verksvið ráðherra, svo sem málefni Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna, að unnið verði að þeirri framtíðarsýn að vinnuvikan verði 36 stundir og að staðið verði við gefin loforð um hækkun persónuafsláttar.
Jafnréttisstofa gefur út dagatal
25.1.2011
Jafnréttisstofa hefur gefið út dagatal til að vekja athygli á nauðsyn þess að rjúfa staðalmyndir kynjanna á vinnumarkaði en kynbundið starfsval er samfélagslegt vandamál sem hindrar bestu nýtingu mannauðsins og dregur úr fjölbreytni og sveigjanleika vinnumarkaðarins. Í frétt á heimasíðu Jafnréttisstofu segir að ýmsar rannsóknir bendi til að kynjaskiptur vinnumarkaður sé hindrun í vegi fyrir jafnri stöðu karla og kvenna þar sem hann viðheldur m.a. launamun kynjanna en í ár eru 50 ár frá gildistöku laga um launajöfnuð kvenna og karla á Íslandi.
Gengiđ á fund forsvarsmanna ríkisstjórnar
25.1.2011
Skýrsla um ađgerđir gegn einelti
24.1.2011
Félagsmálaskólinn međ 42 námskeiđ
24.1.2011
Félagsmálaskóli alþýðu hefur gefið út bækling með yfirliti yfir öll þau námskeið sem skólinn býður upp á. Alls eru það 42 námskeið. Sú breyting hefur orðið á að ekki verða haldin námskeið á fyrirfram ákveðnum dögum, heldur þarf að panta þau. Reynslan hefur sýnt að meiri aðsókn er á þau námskeið sem félögin panta sérstaklega.
Sjúkraliđar í Reykjavík krefjast kjarasamninga
21.1.2011
Sjúkraliðar hjá Reykjavíkurborg hafa dregist verulega aftur úr í launum miðað við sjúkraliða hjá ríki og sjálfseignarstofnunum. Þetta kemur fram í ályktun sem fjölmennur kjarafundur Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti á miðvikudag. Þar var þess krafist af stjórn Reykjavíkurborgar að ganga nú þegar til kjarasamninga við Sjúkraliðafélagið. Liðnir eru 18 mánuðir síðan samningur við félagið rann út og þrír mánuðir síðan samið var við sjúkraliða sem starfa hjá ríki og sjálfseignarstofnunum með afturvirkni fyrir þá mánuði sem samningar voru lausir.
Grein Helgu í Fréttablađinu
21.1.2011
Nauðsynlegt er að bæta samhæfingu og reglufestu í stjórnsýslunni, að því er kemur fram í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Helga Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri BSRB, bendir á þessa staðreynd í grein í Fréttablaðinu í dag og segir að afnám á formfestunni séu kolröng viðbrögð við skýrslu rannarsóknarnefndar Alþingis um það sem leiddi þjóðina í þær ógöngur sem hún er í. Grein Helgu er viðbrögð við ályktun Ríkisendurskoðunar um að einfalda þurfi uppsagnarferli opinberra starfsmanna.
Opinberir stjórnendur nýta ekki stjórnunartćki
19.1.2011
Í heimsókn hjá Kili
19.1.2011
Elín Björg Jónsdóttir formaður og Helga Jónsdóttir framkvæmdarstjóra halda áfram yfirreið sinni yfir landið og heimsóknum til aðildarfélaga BSRB. Á föstudag sóttu þær Kjöl - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu heim, í höfuðsstöðvar félagsins á Akureyri. Þar sátu þær stjórnarfund og kynntust starfinu. Þetta er liður í átaki til að styrkja tengslin milli aðildarfélaganna og skrifstofu BSRB og kynnast starfsemi einstakra félaga. Vonir standa til að hægt verði að heimsækja öll aðildarfélögin innan tíðar.
Grein Elínar í Fréttablađinu
19.1.2011
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, telur lag að ná kjarasamningum sem séu íslensku þjóðinni til heilla. Þetta kemur fram í grein sem hún birti í Fréttablaðinu á mánudag. Elín telur þó mikilvægt að semja sem fyrst. "Í því árferði sem við búum við er mikilvægt að semja sem fyrst svo að heimilin í landinu sjái hver launaþróunin verður. Það er á ábyrgð okkar í verkalýðshreyfingunni og viðsemjenda okkar að eyða þeirri óvissu eins fljótt og hægt er og stuðla að því að leiðrétta þá kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin ár."
Enn laust á trúnađarmannanámskeiđ
14.1.2011
Nýr námsvísir Starfsmenntar
13.1.2011
Nýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út og er þar að finna þær námsleiðir sem í boði eru vorið 2011. Þar er að finna fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða og margskonar mannauðsþjónustu fyrir opinbera starfsmenn. Starfsmennt er afsprengi þeirrar auknu áherslu sem fram hefur komið í endur- og símenntun starfsmanna ríkisins. Setrið byggir á þeirri hugmyndafræði að það sé æskilegt að þjálfa, viðhalda og auka þekkingu starfsmanna til að auka gæði starfseminnar og starfsánægju þeirra.
BSRB vill fjöskylduvćnna samfélag
13.1.2011
BSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi. Þetta er á meðal þeirra verkefna sem aðildarfélögin hafa falið bandalaginu að berjast fyrir, ásamt með lífeyrismálum, því að tryggja framlög í Mannauðspott og að réttur til hlutveikinda verði viðurkenndur, svo eitthvað sé nefnt. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við Fréttablaðið að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag.
Kröfur kynntar samningsađilum
12.1.2011
Semja á um fyrst um innihald
11.1.2011
Elín Björg Jónsdóttir segir að undarlegt sé að ræða lengd kjarasamninga áður en fyrir liggi hvað í samningunum sjálfum sé. Þetta kemur fram í samtali við Eyjuna en þar er Elín spurð út í ummæli Vilhjálms Egilssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, þess efnis að ekki sé vænlegt að semja til skemmri tíma en þriggja ára.
Unniđ gegn víxlverkun bóta og almannatrygginga
10.1.2011
Fundin verður lausn til framtíðar á víxlverkun bóta almannatrygginga og lífeyrissjóðanna og samstarf Tryggingarstofnunar ríkisins og lífeyrissjóðanna verður eflt til einföldunar og hagsbóta fyrir lílfeyrisþega. Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í samkomulagi ríkisstjórnar Íslands og Landssambands lífeyrissjóða varðandi víxlverkun bóta. Þetta er þetta í fullu í samræmi við baráttumál BSRB, sem meðal annars má sjá stað í samþykktum 42. þings bandalagsins.
Ráđherranefnd í atvinnumálum
10.1.2011
Genfarskólinn 2011
6.1.2011
Starsflokanámskeiđ Félagsmálaskóla BSRB
5.1.2011
Félagsmálaskóli BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði á höfuðborgarsvæðinu dagana 31. janúar til 2. febrúar 2011. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í aðildarfélögum BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 26. janúar á skrifstofu BSRB, í síma 525-8300, eða á netfangið bsrb@bsrb.is Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























