Fréttir
Áramótapistill formanns BSRB
29.12.2011
Um áramót er við hæfi að líta yfir farinn veg og hugleiða framtíðina. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá BSRB og vil ég þakka öllum þeim sem hafa komið að störfum bandalagsins hjartanlega fyrir þeirra framlag. Árið hefur um margt verið erfitt fyrir aðildarfélög bandalagsins og félagsmenn þeirra - enn eitt ár niðurskurðar og sparnaðar. Þótt hollt sé að líta um öxl tel ég þó mikilvægara að horfa til framtíðar.
Tekjuskerđingarmörk vegna húsaleigubóta hćkka
29.12.2011
Velferðarráðherra hefur ákveðið að hækka skerðingarmörk húsaleigubóta vegna fjölskyldutekna um 12,5%, úr 2,0 milljónum króna í 2,25 milljónir króna árið 2012. Þetta er í samræmi við það sem BSRB hefur lagt til þótt skerðingamörkin hefðu vissulega mátt vera enn hærri að mati bandalagsins.
Breytingar á séreignarsparnađi um áramót
28.12.2011
Frá og með næstu áramótum lækkar frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissparnað úr 4% í 2% af heildarlaunum. Launþegar þurfa ekki að breyta núgildandi samningum um séreignarsparnað heldur ber launagreiðendum að tryggja að iðgjaldið lækki niður í 2%.
BSRB krefst sambćrilega leiđréttinga á launum
23.12.2011
BSRB telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB. Í kjölfar efnahagshrunsins missti fjöldi félagsmanna bandalagsins vinnuna og aðrir þurftu að taka á sig tímabundnar launalækkanir og skert starfshlutfall. Nú hefur kjararáð riðið á vaðið og leiðrétt þessar tímabundnu launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra starfsmanna og krefst BSRB þess að leiðréttingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni einnig koma til framkvæmda hið fyrsta. Mun BSRB í kjölfarið fara fram á viðræður við fjármálaráðherra um hvernig staðið verði að þeim leiðréttingum.
Gleđilega hátíđ
23.12.2011
Formađur BSRB: Vantar fjölbreyttari úrrćđi í húsnćđismálum
21.12.2011
Ný skýrsla sem ber nafnið „Staða, horfur og möguleikar á húsnæðismarkaði árið 2011" sem Capacent hefur unnið fyrir Reykjavíkurborg sýnir m.a. 70% fleiri Íslendingar vilja leigja íbúð en gera það í dag. um leið þyrfti að fjölga leiguíbúðum um 13 þúsund á höfuðborgarsvæðinu og 16 þúsund á landinu öllu. „Þetta staðfestir margt af því sem BSRB hefur haldið fram síðustu mánuði þótt okkur hafi ekki grunað að þörfin fyrir leiguhúsnæði væri svona gríðarlega mikil," segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB.
Meira um rýrnun barnabóta: Hilmar í Morgunblađinu í dag
20.12.2011
Morgunblaðið birtir í dag viðtal við Hilmar Ögmundsson, hagfræðing BSRB, þar sem hann fjallar um skerðingu barnabóta. Á sunnudagskvöld var Hilmar í viðtali í kvöldfréttum sjónvarps út af sama málefni. Hilmar hefur bent á þá miklu rýrnum sem hefur orðið á barnabótum síðust ár miðað við verðlag.
Borgin kannar leiđir til ađ koma á fjölbreyttari húsnćđisstefnu
19.12.2011
Nýverið bárust fréttir af því að 300 nýjar íbúðir séu nú í byggingu miðsvæðis í Reykjavík og allt að 500 til viðbótar gætu farið í byggingu á næsta ári. Reykjavíkurborg samþykkti síðasta haust nýja húsnæðisstefnu sem er að hluta í samræmi við þær tillögur sem BSRB hefur boðað undanfarin misseri.
Hagfrćđingur BSRB á Rúv: Barnabćtur hafa rýrnađ um 20%
19.12.2011
Ađgerđir til ađ vinna gegn langtímaatvinnuleysi
16.12.2011
Samráðshópur stjórnvalda, stjórnmálaflokkanna og aðila vinnumarkaðarins um menntun og vinnumarkaðsúrræði skilaði 31. mars 2011 tillögum sínum til ríkisstjórnarinnar um átak til þriggja ára. Fyrr í dag var svo skrifað undir tillögur að átakinu og fjármögnun þeirra í Ráðhúsi Reykjavíkur.
BSRB styrkir Mćđrastyrksnefnd
15.12.2011
Sú ákvörðun var tekin á síðasta stjórnarfundi BSRB að veita Mæðrastyrksnefnd styrk fyrir þessi jól að upphæð 500 þúsund krónur.
Breytingar á almennum tekjuskatti skila óverulegum hćkkunum ráđstöfunartekna
13.12.2011
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2012 áttu öll tekjuþrep í almennum tekjuskatti að hækka um 3,5% og persónuafsláttur um 5,1% frá 1. janúar 2012. En samkvæmt breytingartillögu fjárlaganefndar Alþingis er nú lagt til að mörkin á milli fyrsta og annars tekjuþreps í almennum tekjuskatti hækki í 230.000 krónur, eða rúm 9,8%. Hækkun annars og þriðja tekjuþreps mun hins vegar haldast óbreytt í 3,5%.
Dómur Hćstaréttar í máli félagsmanns BSRB varđandi lögmćti uppsagnar
8.12.2011
Í dag féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns BSRB gegn Isavia ohf. en Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011. Dómurinn er fordæmisgefandi og hefur mikla þýðingu fyrir félagsmenn bandalagsins varðandi réttarstöðu þeirra við aðilaskipti að fyrirtækjum.
Mannréttindamál í Hörpunni á föstudag
7.12.2011
Fyrsti fundur í fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál verður haldinn í Hörpunni í Reykjavík föstudaginn 9. desember klukkan 11.30 til 14.15. Tilefni þessa fyrsta fundar er Alþjóðlegi mannréttindadagurinn, 10. desember, en Sameinuðu þjóðirnar hvetja aðildarlönd sín til að taka mannréttindamál til sérstakrar umfjöllunar þann dag.
Opinn fundur um frumvarp stjórnlagaráđs
6.12.2011
Opinn fundur um frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár verður haldin annað kvöld, miðvikudaginn 7. desember, kl. 20:00 á vegum Lýðræðisfélagsins Öldu, Stjórnarskrárfélagsins, Hreyfingarinnar og Borgarahreyfingarinnar
Ályktun stjórnar BSRB
2.12.2011
Stjórn BSRB samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem hið opinbera var hvatt til frekari eftirgjafar í niðurskurðarkröfum á heilbrigðisstofnanir, nýjum fjársýsluskatti á lífeyrissjóði var mótmælt og breytingum á séreignarlífeyriskerfinu var harðlega mótmælt. Ályktunina í heild sinni má nálgast hér að neðan.
Ný skýrsla um félagsţjónustu sveitarfélaga
1.12.2011
Ađalfundur Starfsmannafélags Garđabćjar
1.12.2011
Á aðalfundi STAG sem haldinn var um miðjan síðasta mánuð var lögum félagsins breytt þannig að nú eru 5 aðalmenn í stjórn félagsins. Einnig verður kosið sérstaklega um formann og ritara.
Um BSRB
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























