Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Formaður samninganefndar Íslands við ESB á fundi með BSRB

30.9.2011

Stefán Haukur Jóhannesson, formaður SamningarnefndStefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands við ESB, og Auðunn Atlason, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu, mættu til fundar í BSRB-húsinu í vikunni. Þar var farið yfir samningaferlið, gang viðræðnanna og gestum gafst tækifæri til að spyrja út í einstök atriði.

Aðalfundir FOS-Vest og FOSS

30.9.2011

Ásbjörn Sigurðsson, formaður Félags opinberra starfsmanna á SuðurlandiAðalfundur FOSS, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, var haldinn fyrir skemmstu á Hótel Selfossi. Engar breytingar urðu á stjórn FOSS á fundinum. Aðalfundur Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum var svo haldinn í skömmu fyrir helgi og þar hélst stjórnin líka óbreytt.

Mannauðssjóður KSG stofnaður

30.9.2011

Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, en umsýsla með sjóðnum verður hjá Starfsmannafélagi Kópavogs.Stofnfundur Mannauðssjóðs KSG var haldinn í gær 29. september 2011. Í nýgerðum kjarasamningum Starfsmannafélags Kópavogs, Starfsmannafélags Suðurnesja og Starfsmannafélags Garðabæjar við Samband íslenskra sveitarfélaga var kveðið á um stofnun Mannauðssjóðs KSG. Sjóðurinn er símenntunar- og mannauðssjóður þessara þriggja starfsmannfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Trúnaðarmannanámskeið - 2. þrep hefst á mánudag

29.9.2011

BSRBNæstkomandi mánudag heldur Trúnaðarmannanámskeið BSRB áfram. Kennt verður mánudag og þriðjudag á jarðhæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89. Skráning stendur yfir á heimasíðu BSRB.

Jafnlaunastaðall mikilvægt verkfæri í baráttunni við óútskýrðan launamun

29.9.2011

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var í viðtali í Fréttablaðinu í gær þar sem m.a. var fjallað um sérstakan starfshóp sem ríkisstjórnin mun skipa í samráði við heildarsamtök ríkisstarfsmanna í kjölfar útgáfu jafnlaunastaðals. Þessi starfshópur á að fylgja eftir áherslum um að uppræta kynbundinn launamun meðal ríkisstarfsmanna.

Ályktun fundar stjórnar og formanna svæðisdeilda LL

28.9.2011

LögreglanFundur stjórnar og formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna var haldinn í gær, þann 27. september 2011. Að fundi loknum var lýst yfir megnri óánægju og reiði með niðurstöðu gerðardóms sem að sögn fundarmanna var þvinguð var fram í kjaradeilu LL við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sl. föstudag gegn mótatkvæði fulltrúa LL.

Ný skýrsla um úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda á Norðurlöndunum

27.9.2011

Guðbjartur í BSRBÚt er komin ný skýrsla á vegum velferðarráðuneytisins um úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda. Þar má finna samanburð á greiðsluúrræðum á öllum Norðurlöndunum en þær eru nokkuð mismunandi í hverju landi fyrir sig. Skýrslan var gerð að beiðni nokkurra þingmanna og hana má nálgast í heild sinni hér að neðan.

Gerðardómur: fulltrúi LL greiddi nei-yrði

26.9.2011

Lögreglan fyrir utan BSRBNiðurstaða gerðardóms um kjör lögreglumanna var kynnt á föstudaginn var. Tveir dómenda, formaður dómsins og fulltrúi ríkisvaldsins greiddu já-yrði sitt við dómnum, en fulltrúi LL nei. Niðurstaðan felur í sér 4,25% hækkun á launum og að sérstök álagsgreiðsla hækkar um 13 þúsund krónur. Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum um helgina eru lögreglumenn allt annað en sáttir við þessa niðurstöðu.

Eftirlitsnefnd gagnrýnir útfærslu 110% leiðarinnar

23.9.2011

Efnahags- og viðskiptaráðuneytiðEftirlitsnefnd vegna aðgerða í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins hefur skilað efnahags- og viðskiptaráðherra þriðju skýrslu sinni. Þar fjallar nefndin m.a. um þau úrræði sem fjármálafyrirtæki hafa boðið skuldsettum heimilum og metur hvernig til hefur tekist og hvað hefði mátt betur fara.

Félagsmaður FFR vinnur mál gegn íslenska ríkinu

21.9.2011

Félag flugmálastarfsmanna ríkisinsDómur féll við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær í máli félagsmanns gegn íslenska ríkinu varðandi efndir starfslokasamnings. Í málinu greindi aðila á um hvort samningur V og Lögreglustjórans á Suðurnesjum um uppgjör vegna áunnins leyfis frá störfum og starfslok hafi verið skuldbindandi fyrir íslenska ríkið og hvort kröfum samkvæmt samkomulaginu hafi verið beint að réttum aðila. Niðurstaðan var að íslenska ríkið var dæmt til að greiða eftirstöðvar greiðslna samkvæmt samkomulaginu.

Grein Hilmars í Fréttablaðinu í dag

21.9.2011

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBHilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni: „Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna?" Greinina í heild sinni má finna hér að neðan.

Velferðarráðherra heimsótti BSRB

20.9.2011

Velferðarráðherra ásamt framkvæmdanefnd BSRB og starfsmönnumGuðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, kom á fund framkvæmdanefndar BSRB í gær ásamt aðstoðarkonu sinni, Önnu Sigrúnu Baldursdóttur. Á fundinum var m.a. rætt um um kynbundin launamun, fæðingarorlof, velferðarkerfið og fjárlagagerðina sem framundan er.

Skrifstofuskólinn - nýtt nám hjá Framvegis

20.9.2011

FramvegisFramvegis kynnir nú nýja námsleið sem er í boði fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur hug á að styrkja stöðu sína í almennum skrifstofustörfum. Námið hentar fyrir þá sem hafa starfað við skrifstofustörf og sækjast eftir fjölbreyttari þjálfun og auknu sjálfsöryggi í starfi, sem og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í skrifstofustörfum.

Launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu

19.9.2011

Blað SFR & STRVSFR stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hafa nú birt helstu niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun VR. Könnunin sýnir m.a. fram á að yfir 60% starfsmanna eru óánægðir með laun sín, launamunur kynjanna eykst, laun starfsfólks á almennum markaði hækka meir en opinberra starfsmanna auk þess sem fjárhagsleg staða heimila þeirra síðarnefndu er mun lakari en annarra.

Velferðarvaktin fundaði með ráðherra

15.9.2011

Velferðarvaktin ásamt Guðbjarti HannessyniVelferðarvaktin hefur nú verið starfandi í um tvö ár og hefur hún þegar sannað sig sem mikilvægur álitsgjafi stjórnvalda. Velferðarvaktin fundaði í gær með Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, til að fara yfir tillögur hennar og ábendingar um mikilvæg verkefni í velferðarmálum.

Trúnaðarmannanámskeið BSRB

13.9.2011

Fyrsta trúnaðarmannanámskeið vetrarins verður haldið í næstu viku, dagana 21. - 23. september. Námskeiðið er haldið af Félagsmálaskóla alþýðu fyrir alla talsmenn stéttarfélaga og hvetur BSRB sem flesta til að nýta sér námskeiðið.

Forystufræðsla BSRB

13.9.2011

BSRB minnir aftur á Forystufræðslu Bandalagsins í samvinnu við fræðslusetrið Starfsmennt sem hefst í næsta mánuði en skráning í námskeiðið er þegar hafin. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku þátttakenda en áhersla er lögð á lýðræðisleg virkni, upplýsingamiðlun og liðsheild. Ætlunin er að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni til að geta mætt fjölbreyttum verkefnum og nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn.

Skrifað undir átakið „Nám er vinnandi vegur"

6.9.2011

Nám er vinnandi vegurRáðherrar velferðar- og menntamála ásamt fulltrúum háskóla og Vinnumálastofnunar skrifuðu í dag undir samkomulag um átakið „Nám er vinnandi vegur" við formlega athöfn í Háskóla Íslands. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga síðastliðið vor.

Kjarasamningur SLFÍ við Reykjavíkurborg samþykktur

5.9.2011

Sjúkraliðafélag ÍslandsKjarasamningur Sjúkraliðafélags Íslands við Reykjavíkurborg var samþykktur í nýafstaðinni atkvæðagreiðslu.

Halldór fundaði með framkvæmdanefnd

2.9.2011

Halldór Halldórsson á fundi framkvæmdanefndar BSRBHalldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var gestur á fundi framkvæmdanefndar BSRB í morgun þar sem meðal annars var rætt um nærþjónustu sveitarfélaganna, stöðu starfsmanna sveitarfélaganna og stöðu sveitarstjórnarstigsins almennt.

Námskeið um kynjasamþættingu

1.9.2011

Jöfnum leikinn - JafnréttisstofaJafnréttisstofa býður til námskeiðs um kynjasamþættingu þátttakendum að kostnaðarlausu. Á námskeiðinu verður fjallað um stöðu jafnréttismála á Íslandi í dag, hvað kynjasamþætting er og hvernig er hægt að nota hana til að efla það starf sem þegar er unnið.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta