Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

Hagfrćđingur BSRB um skýrslu vinnuhóps um nýtt húsnćđisbótakerfi

21.5.2012

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBVinnuhópur á vegum velferðarráðherra leggur til að tekið verði upp nýtt og gjörbreytt húsnæðisbótakerfi sem tryggir öllum sama rétt til fjárhagsstuðnings hins opinbera.„Með tillögum hópsins næst það fram sem BSRB hefur verið að berjast fyrir undanfarin ár - að jafna bótagreiðslur á milli ólíkra búsetuforma," segir Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, um nýja skýrslu vinnuhóps um húsnæðisbætur sem kynnt var í dag.

Menningarhátíđ BSRB í Munađarnesi

21.5.2012

ElliÁrleg menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi fer fram á laugardaginn kemur, þann 26. maí kl. 14:00. Opnuð verður sýning á verkum listamannsins Ella, Sigríður Thorlacius flytur nokkur lög við undirleik Guðmundar Óskars Guðmundssonar og Rannveig Thoroddsen líffræðingur fjallar um gróður og flóru í Munaðarnesi og nágrenni.

Kynningarfundir fyrir sjóđfélaga LSR

20.5.2012

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsKynningarfundir fyrir sjóðfélaga LSR verða haldnir nú á fimmtudag, þann 24. maí. Um er að ræða kynningarfundi fyrir sjóðfélaga LSR sem vilja fræðast um lífeyrismál almennt, um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Morgunfundur um stöđu mála hjá VIRK

16.5.2012

VIRKVIRK-starfsendurhæfingarsjóður býður til morgunfundar þriðjudaginn 22. maí kl. 8:00 á 1. hæð BSRB-hússins, Grettisgötu 89. Þar verður fjallað um starf VIRK og stöðuna hjá VIRK-ráðgjöfum BSRB félaganna.

Ársfundur LSR og LH

16.5.2012

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdstjóri LSRÁrsfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 22. maí, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 15:00.

Ályktanir 21. fulltrúaţings SLFÍ

14.5.2012

Sjúkraliðafélag ÍslandsSjúkraliðafélag Íslands hélt 21. fulltrúaþing sitt þann 10. maí síðastliðinn. Nokkrar ályktanir voru samþykktar á fulltrúaþinginu sem m.a. fjölluðu um jafnréttis og kjaramál, velferðarmál og ný lög um heilbrigðisstarfsmenn. Ályktanirnar í heild sinni má sjá hér að neðan.

Vinningshafar í happdrćtti vegna könnunar BSRB

14.5.2012

BSRBKjara og viðhorfskönnun BSRB er nú lokið og vill bandalagið þakka þeim félagsmönnum sem gáfu sér tíma til þess að svara henni. Úrvinnsla gagna er nú hafin og munu niðurstöður birtast næstkomandi haust. Dregið hefur verið í happadrætti innsendra svara og má finna vinningsnúmerin hér að neðan.

Stofnun ársins kynnt í dag

11.5.2012

Fyrirmyndaarstofnun 2012 - SFRFyrirmyndaarstofnun 2012 - St.RvNiðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins - borg og bær verða birtar síðar í dag. Könnunin er samstarfsverkefni VR, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu með þátttöku ríkisins og verða úrslitin gerð ljós seinnipartinn í dag og munu niðurstöðurnar birtast á vef félaganna http://www.sfr.is/ og http://www.strv.is/.

Félags- og skemmtikvöld STH

10.5.2012

STH - Starfsmannafélag HafnarfjarðarStarfsmannafélag Hafnarfjarðar ætlar að vera með félags- og skemmtifund í kvöld frá kl. 20-22 í nýjum matsal bæjarstarfsmanna við Strandgötuna. Þar verður samblanda af sæmilega alvarlegum erindum og gamanmálum.

Opinberir starfsmenn í Bretlandi í sólarhrings verkfall

10.5.2012

PCS í Bretlandi eru meðal þeirra sem leggja niður störf í dagTalið er að um 400 þúsund opinberir starfsmenn á Bretlandseyjum taki á þessari stundu þátt í sólarhrings verkfalli. Þar er fyrst og fremst verið að mótmæla niðurskurði ríkisstjórnarinnar og skerðingu á eftirlaunaréttindum.

Alţjóđaráđstefna um lýđrćđi

9.5.2012

Háskóli ÍslandsIn/Equalities, Democracy and the Politics of Transition - Alþjóðaráðstefna um lýðræði, samfélagsáföll og pólitísk umbreytingaskeið hefst í dag í Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er lýðræði og íslenska stjórnlagaráðið/þingið; ó/jafnrétti og velferð; og pólitískar, samfélagslegar og menningarlegar tilraunir til að glíma við afleiðingar hrunsins og kreppunnar á Íslandi og í Evrópu.

Siđareglur Stjórnarráđsins kynntar

8.5.2012

StjórnarráðshúsiðSkýrsla Samhæfingarnefndar um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna var kynnt í gær. Í skýrslunni er farið yfir starf nefndarinnar frá því hún var skipuð haustið 2010 en megináherslan hefur verið á að stuðla að setningu siðareglna og kynningu þeirra og innleiðingu.

Ný heildarlöggjöf um allar heilbrigđisstéttir

4.5.2012

Guðbjartur HannessonFrumvarp velferðarráðherra til laga um heilbrigðisstarfsmenn var samþykkt á Alþingi í vikunni. Lögin fjalla um réttindi og skyldur þeirra 33. löggiltu heilbrigðisstétta sem starfa í landinu og leysa af hólmi fimmtán lög sem nú gilda um störf þeirra. Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn taka gildi 1. janúar 2013.

Elín Björg á Rúv: Launamunur ađ aukast á ný

3.5.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB á 1. maíElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í gærmorgun. Þar fjallaði hún um verkalýðsbaráttuna þann 1. maí auk þess sem hún var spurð um kynbundin launamun. Elín Björg m.a. sagði frá niðurstöðum kjarakönnunar St.Rv og SFR sem hafa leitt í ljós að kynbundinn launamunur sé enn töluverður.

Kynjabókhald BSRB

2.5.2012

JafnréttiÁrlegt kynjabókhald BSRB er nú gefið út í þriðja sinn en það kom fyrst út árið 2010. Tilurð þess er að rekja til jafnréttisnefndar BSRB sem ákvað að greina skyldi helstu lykiltölur á öllum helstu sviðum í starfsemi bandalagsins og aðildarfélaga þess. Í kynjabókhaldinu er að finna upplýsingar um hin ýmsu kynjahlutföll innan BSRB sem aflað var í febrúar til apríl á þessu ári.

1. maí rćđa formanns BSRB

1.5.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBElín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var aðalræðumaður á 1. maí hátíðarhöldunum á Húsavík í dag. „Niðurskurður, uppsagnir og kjaraskerðingar hafa einkennt þessi ár eftir efnahagshrunið. Velferðarkerfið eins og það leggur sig er í hættu og því megum við aldrei fórna," var á meðal þess sem Elín Björg sagði í ræðu sinni en hana má nálgast í heild sinni hér að neðan.

Rćđa formanns Póstmannafélagsins sem flutt var í Reykjavík í dag

1.5.2012

Þuríður Einarsdóttir, formaður Póstmannafélags Íslands, var einn ræðumanna á 1. maí hátíðarhöldunum í Reykjavík í dag. „Nú er kominn tími til að horfa til framtíðar og byggja upp réttlátt þjóðfélag. Þjóðfélag jöfnuðar og almennrar velferðar. Til þess þurfum við fyrst og síðast að sýna samstöðu," var á meðal þess sem Þuríður sagði í ræðu sinni á Ingólfstorgi í dag. Ræðuna má sjá í heild sinni hér að neðan.

Til hamingju međ daginn

30.4.2012

1. maí BSRB óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum hjartanlega til hamingju með baráttudag verkalýðsins. Víða um land fara fram hátíðarhöld í tilefni dagsins og hvetur BSRB sem flesta til að taka þátt í þeim. Hér að neðan má sjá lista yfir helstu viðburði dagsins.

Dagskrá 1. maí hátíđarhaldanna

27.4.2012

1. maí 2012BSRB hvetur alla félagsmenn til að mæta á baráttufund þann 1. maí. Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram að Ingólfstorgi en safnast verður saman við Hlemm kl. 13 og þaðan verður gengið niður Laugaveg að Ingólfstorgi þar sem útifundurinn hefst kl. 14:10.

Kjara- og viđhorfskönnun BSRB

25.4.2012

BSRB-logoVið minnum félagsmenn BSRB á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir bandalagið er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.

Ársfundur LSS

23.4.2012

LSSÁrsfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 16.00, í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30, Reykjavík.

Barnabćtur: Hćkkun ţarf ađ vera rífleg til ađ vega upp kaupmáttarrýrnun

20.4.2012

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBUndanfarið hefur verið fjallað um mögulegar hækkanir barnabóta til að bregðast við þeim skuldavanda sem barnafjölskyldur standa frammi fyrir. BSRB hefur ítrekað bent stjórnvöldum á mikla rýrnum kaupmáttar barnabóta á síðustu árum og stutt þá með útreikningum Hilmar Ögmundssonar, hagfræðings BSRB.

Guđbjartur Hannesson ávarpađi ársfund VIRK

18.4.2012

Guðbjartur í BSRBGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra ávarpaði ársfund VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs fyrir síðustu helgi og ræddi þar meðal annars um frumvarp til laga um starfsendurhæfingu sem nú liggur fyrir Alþingi. Ráðherra sagði til mikils að vinna að forða sem flestum frá örorku og stuðla að virkni fólks eins og kostur er á öllum æviskeiðum.

50 ár frá samningsrétti opinberra starfsmanna

17.4.2012

Sigurður Thorlacius, fyrsti formaður BSRB50 ár eru í dag liðin frá því BSRB fékk samningsrétt fyrir alla opinbera starfsmenn. Allt til ársins 1962 var kveðið á um laun starfsmanna ríkisins í sérstökum lögum. Þann 17. apríl 1962 voru sett lög nr. 55, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Lögin fólu í sér þá gagngeru breytingu að eftirleiðis skyldu launakjör þorra allra ríkisstarfsmanna ákveðin með kjarasamningum.

Alţjóđleg ráđstefna: Konur, kynjajafnrétti og efnahagskreppan

16.4.2012

EDDA – Center of ExcellenceAlþjóðleg ráðstefna um konur, kynjajafnrétti og kreppuna fer fram við Háskóla Íslands 21. og 22. apríl 2012. Þar verður mörgum spurningum velt upp s.s. hver staða íslenskra kvenna sé í kreppunni og hvernig er hún í samanburði við stöðu kvenna í öðrum löndum? Á ráðstefnunni koma saman margir helstu sérfræðingar heims á sviði kynja- og vinnumarkaðsmála.

Bréf til alţingismanna frá Norrćna verkalýđssambandinu

12.4.2012

NFS, Nordens Fackliga Samorganisation„Stjórnsýsluhindrunum fylgir óöryggi, þær draga úr tækifærum fólks og þær geta verið kostnaðarsamar. Nú er kominn tími til að takast á við stjórnsýsluhindranir," er meðal þess sem stendur í bréfi sem Norræna verkalýðssambandið, NFS, hefur ritað alþingismönnum á Íslandi. Þar er m.a. fjallað um mikilvægi atvinnuleysistrygginga, endurhæfingar og starfsþjálfunar á vinnumarkaði.

Ársfundur Virk starfsendurhćfingarsjóđs

11.4.2012

Guðbjartur HannessonÁrsfundur VIRK verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 8:00 til 12:00 í Hörpu í Norðurljósasalnum. Dagskráin er tvískipt. Fyrri hluti fundarins inniheldur fræðandi erindi og hefst hann með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kl. 8:15.

Málstofa um einelti

11.4.2012

Í þínum sporum - stöndum saman gegn eineltiRannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum og Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti standa að málstofu um einelti þann 12. apríl kl. 14 -16:30 í stofu H 207 í húsnæði Menntasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Aðgangur öllum opinn og er ókeypis.

Formađur BSRB í fréttum Rúv: Ekki nóg ađ hćkka bćturnar

10.4.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB„Við verðum að tryggja það að fólk sem er með meðaltekjur og þar fyrir neðan að það lendi ekki í skerðingu, það fái fullar barnabætur," sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB í viðtali við Fréttastofu Rúv í gærkvöldi. Unnið er að nýrri skýrslu um stöðu heimilanna fyrir stjórnvöld og leggur BSRB mikla áherslu á að ráðist verði í úrbætur á barnabóta- og vaxtabótakerfunum.

Gleđilega páska

4.4.2012

BSRB-logoSkrifstofa BSRB óskar félagsmönnum sínum sem og öðrum landsmönnum gleðilegra páska. Skrifstofa BSRB verður lokuð yfir páskahátíðina en opnar aftur þriðjudaginn 10. apríl kl. 9:00.

Námskeiđ Starfsmenntar í samskiptafćrni

3.4.2012

Starfsmennt - logoNú eru síðustu forvöð að skrá sig til þátttöku á námskeiðið Framrás 1 - Ég og starfið hjá Starfsmenn en námskeiðið hefst mánudaginn 16. apríl. Um er að ræða námskeið þar sem lögð er áhersla á samskipti og samskiptafærni.

Fyrirlestur í HÍ: Ávöxtun og ávöxtunarviđmiđ íslenskra lífeyrissjóđa

3.4.2012

Gylfi MagnússonGylfi Magnússon, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, verður með erindi á málstofu Viðskiptafræðideildar undir yfirskriftinni Ávöxtun og ávöxtunarviðmið íslenskra lífeyrissjóða í hádeginu í dag, þriðjudaginn 3. apríl.

Grćnn apríl farinn af stađ

2.4.2012

Grænn aprílUmhverfisátkaði Grænn apríl hófst í gær og stendur út mánuðinn. Með því á að stuðla að vitundarvakningu og auka umræðu um umhverfismál. Fyrirtæki, einstaklingar, félagasamtök og sveitarfélög taka þátt í átakinu á ýmsan hátt meðal annars með því að kynna grænar vörur, þekkingu og þjónustu.

Ný launarannsókn Hagstofu Íslands sýnir fram á mikinn launamun kynjanna

30.3.2012

Hagtíðindi Hagstofu ÍslandsNiðurstöður nýrrar launarannsóknar Hagstofunnar á almennum vinnumarkaði sýna að launamunur kynjanna er enn mjög mikill. Þetta er í samræmi við niðurstöður síðustu launakönnunar SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Allsherjarverkfall á Spáni

29.3.2012

Allsherjarverkfall á SpániVerkalýðssamtök á Spáni boðuðu allsherjarverkfall á Spáni í dag til að mótmæla miklu atvinnuleysi, niðurskurði og breytingum á vinnulöggjöf landsins sem margir telja mikla afturför í réttindum launafólks þar í landi.

Lúđrasveit verkalýđsins međ árlega vortónleika

28.3.2012

Lúðrasveit verkalýðsinsLúðrasveit verkalýðsins heldur sína árlegu vortónleika þann 31. mars kl. 14 í Fella og Hólakirkju. Þema tónleikanna að þessu sinni er suðrænt og seiðandi þar sem mambo, salsa og fleiria skemmtilegt verður leikið fyrir gesti. Lúðrasveitin hvetur alla til að mæta en ókeypis er á tónleikana.

Tvćr milljónir opinberra starfsmanna í Ţýskalandi í verkfall

27.3.2012

Verkfall opinberra starfsmanna í ÞýskalandiMeira en tvær milljónir opinberra starfsmanna í Þýskalandi lögðu í dag niður störf til að krefjast hærri launa. Starfsmennirnir krefjast 6,5% launahækkunar.

Ađalfundur SFR sendir frá sér ályktanir

26.3.2012

Frá aðalfundi SFR 2012Aðalfundur SFR var haldinn þann 22. mars og þar voru m.a. samþykktar ályktanir um lífeyrismál, kjara- og efnahagsmál, jafnréttismál og skattamál. Fundurinn lýsti yfir þungum áhyggjum af stöðu opinberra starfsmanna, en laun þeirra hafa dregist aftur úr launum á almennum markaði og ráðstöfunartekjur rýrnað.

Framkvćmdanefnd BSRB fundađi međ Hreyfingunni

22.3.2012

Elín Björg formaður BSRB ásamt þingmönnum HreyfingarinnarFramkvæmdanefnd BSRB fundaði fyrr í vikunni ásamt þingmönnum Hreyfingarinnar. Þar kynnti BSRB fyrir þingmönnunum starfsemi bandalagsins og rætt var um hin ýmsu baráttumál og hagsmunamál.

Vornámsskeiđ Starfsmenntar

20.3.2012

Starfsmennt - logoÞótt sumarið sé handan við hornið er enn nóg um að vera hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt og þar er er enn fjöldi námskeiða í boði. Að venju er allt nám félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu og í flestum tilfellum opið öðrum gegn gjaldi.

Kaupmáttur barnabóta rýrnađ um allt ađ 30% á ţremur árum

16.3.2012

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBSamkvæmt svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, drógust útgjöld ríkisins vegna barnabóta saman um 1,7 milljarð króna á síðasta ári. Þetta er í samræmi við það sem BSRB hefur sagt en bandalagið hefur einnig bent á hina miklu kaupmáttarrýrnun sem orðið hefur á barnabótum síðustu þrjú ár, sem er allt að 30%.

Sjóđfélagafundur LSR á Akureyri

15.3.2012

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsLSR mun halda sjóðfélagafund á Akureyri fimmtudaginn 22.mars í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Fundađ međ forystumönnum Framsóknar

14.3.2012

Birkir Jón, Elín Björg formaður BSRB og Sigmundur DavíðFramkvæmdanefnd BSRB fundaði fyrir skemmstu með formanni og varaformanni Framsóknarflokksins í húsnæði BSRB að Grettisgötu. Þar kynnti framkvæmdanefndin fyrir þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Birki Jóni Jónssyni helstu málin sem BSRB hefur verið að vinna að síðustu misserin og framundan eru.

Nýr bćklingur fyrir vinnustađi um kynferđislega áreitni

13.3.2012

Kynferðisleg áreitni - bæklingur

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og MARK - miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna við Háskóla Íslands hafa gefið út bækling sem nefnist Klámvæðing er kynferðisleg áreitni. Bæklingurinn varpar ljósi á það hvernig konur upplifa klám á vinnustöðum og umræðu um útlit sitt í stað frammistöðu.

Ályktanir ađalfundar StRv

12.3.2012

Garðar Hilmarsson, formaður StRvAðalfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn nýverið. Þar fór Garðar Hilmarsson, formaður félagsins, yfir skýrslu stjórnar sem var birt í fréttabréfi sem félagsmenn hafa fengið sent. Einnig má nálgast skýrsluna á vef félagsins. Þá voru ályktanir sendar út að loknum fundi þar sem m.a. var fjallað um kjaraskerðingar, aukið álag, launamun og húsnæðismál.

Laun opinberra starfsmanna dragast aftur úr í launaskriđinu

9.3.2012

Umsamin launakjör í kjarasamningum opinberra starfsmanna árið 2011 voru sambærileg og í kjara­samningum á almennum vinnumarkaði. Þrátt fyrir þetta hafa laun starfsmanna á almennum vinnu­markaði hækkað að meðaltali umfram laun opinberra starfsmanna. Það bendir til þess að umsvif á almennum vinnumarkaði séu að aukast, þar sem þessar launahækkanir eru langt umfram kjara­samnings­bundnar hækkanir.

Sjóđfélagafundur LSR

9.3.2012

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsÍ tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til fundar með sjóðfélögum.

Alţjóđlegur baráttudagur kvenna í dag

8.3.2012

Alþjóðlegur baráttudagur kvennaAlþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars. Víða verður boðið upp á alls kyns viðburði í tilefni dagsins. BSRB mun ásamt öðrum verkalýðsfélögum og samtökum launafólks standa að málþingi á Grand hótel þennan dag. Hér að neðan má sjá dagskrá málþingsins og annarra uppákoma í dag.

Atvinnumessa í Laugardalshöll

7.3.2012

Sameiginlegu átaksverkefni atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda, Vinnandi vegur, verður kynnt rækilega með sérstakri atvinnumessu í Laugardalshöll fimmtudaginn 8. mars frá kl. 10-16. Stefnt er að því að skapa 1500 störf og starfstengd úrræði og kynna þau á atvinnumessunni.

Opinn sjóđfélagafundur hjá LSS

6.3.2012

LSSLífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóðir í hans rekstri boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17.00.Farið verður yfir rekstur og afkomu lífeyrissjóðanna í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Alţjóđlegur baráttudagur kvenna 8. mars

5.3.2012

Auglýsing vegna 8. mars 2012-1Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fer venju samkvæmt fram þann 8. mars. BSRB mun ásamt öðrum verkalýðsfélögum og samtökum launafólks standa að málþingi á Grand hótel þennan dag. Yfirskrift málþingsins að þessu sinni er „Starfslok - endastöð eða nýtt upphaf? - konur á barmi starfsloka".

Íslandsmót iđn- og verkgreina

2.3.2012

SLFÍÍslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í Háskólanum í Reykjavík 9. - 10. mars. Mótið hefst kl. 9.30 föstudaginn 9. mars og lýkur kl. 16.00 næsta dag. Meðal þeirra sem þar taka þátt eru félagar í Sjúkraliðafélaginu.

Íslensk stjórnvöld svara ábendingum mannréttindaráđs SŢ

1.3.2012

Íslensk stjórnvöld hafa skilað lokaafstöðu sinni vegna tilmæla sem fram komu á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í reglubundnu eftirliti með mannréttindum á Íslandi sem fram fór í Genf 10. október síðastliðinn. Helsta gagnrýnin sem kom fram varðandi mannréttindi á Íslandi varða fangelsismál, málefni erlendra ríkisborgara, , launamun kynjanna, ofbeldi gegn konum og börnum.

Alţjóđlegur ađgerđadagur Evrópusambands verkalýđsfélaga

29.2.2012

ETUC Action Day 2012Víða hefur verið efnt til mótmæla í dag til að vekja æðstu ráðamenn í löndum Evrópu til umhugsunar. Leiðtogar Evrópuríkja munu á morgun hittast í Brussel til að ræða m.a. um aðgerðir vegna fjárhagsvanda Evrópu. Bernadette Ségol aðalritari ETUC, Evrópusambands verkalýðsfélaga, hvatti fólk til að sýna samstöðu í dag og benti á að uppsagnir og niðurskurður á velferð leystu ekki vanda heldur myndu þvert á móti auka hann.

Upplýsingar um leiguverđ íbúđarhúsnćđis loksins ađgengilegar

28.2.2012

ÍbúðarlánasjóðurÞað mikilvæga skref var stigið fyrir helgi að birta í fyrsta sinn upplýsingar um leiguverð eftir svæðum og stærðum fasteigna á heimasíðu Þjóðskrár. Um er að ræða verðupplýsingar sem unnar eru úr þinglýstum leigusamningum en BSRB hefur lengi talað fyrir því að slíkar upplýsingar, unnar af opinberum aðila, yrðu aðgengilegar fyrir almenning.

Tillögur um bćtta öflun og miđlun upplýsinga um húsnćđismál

24.2.2012

Vinnuhópur um húsnæðisupplýsingar ásamt velferðarráðherraVinnuhópur sem fjallað hefur um leiðir til að efla og samræma öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál skilaði velferðarráðherra tillögum sínum í dag. Tillögur hópsins eru liður í stærra verkefni sem miðar að því að móta heildstæða húsnæðisstefnu á Íslandi. BSRB fagnar því að verið sé að taka á þessum málaflokki enda hefur bandalagið ítrekað talað fyrir að brýn þörf sé á fjölbreyttari úrræðum í húsnæðismálum landsmanna.

Framkvćmdanefnd BSRB fundađi međ forsćtis-, fjármála- og velferđarráđherra

23.2.2012

Framkvæmdanefnd á fundi í stjórnarráðinuFramkvæmdanefnd BSRB fundaði í gærmorgun með forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra. Tilefni fundarins voru ýmis mál er varða kjaramál opinberra starfsmanna.

Skýrsla um félagsvísa lögđ fyrir ríkisstjórn

22.2.2012

Velferðarvaktin ásamt Guðbjarti HannessyniVelferðarráðherra lagði skýrsluna um félagsvísa fram í ríkisstjórn á föstudaginn sl. Í minnisblaði sem fylgdi með var lagt til að ríkisstjórnin feli Hagstofu Íslands að taka við verkefninu.

Vinnandi vegur - nýtt átak fyrir atvinnuleitendur og atvinnurekendur

21.2.2012

Vinnandi vegur.Vinnandi vegur er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Með átakingu gefst atvinnurekendum kostur á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.

Dómur varđandi kynferđislega áreitni á vinnustađ

17.2.2012

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær í máli félagsmanns BSRB vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað. Málsatvik voru þau að yfirmaður og tveir starfsmenn fóru í vinnuferð í sumarbústað vegna fyrirhugaðra breytinga á starfssviði konunnar sem áttu að fela í sér umfangsmeiri verkefni og aukna ábyrgð. Taldi konan sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnuferðinni og kvartaði þar um til starfsmannahalds síns atvinnurekanda. Fljótlega fór að draga úr verkefnum hennar í vinnu og taldi konan brotið á sér. Eftir árangurslausar sáttaumleitanir lagði hún málið fyrir dóm.

 

Hvađ verđur eftir í launaumslaginu?

16.2.2012

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBHilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB hélt erindi á trúnaðarmannaráðsfundi SFR í síðustu viku þar sem hann fjallaði um þróun launa og ráðstöfunartekna. Þar rakti hann m.a. rýrnun kaupmáttar og mismunandi kaupmátt ákveðinna hópa.

70 ár frá stofnun BSRB

14.2.2012

BSRB-logoBSRB fagnar í dag 70 ára afmæli en samtökin voru formlega stofnuð í Reykjavík þann 14. febrúar árið 1942. Í dag eru BSRB stærstu hagsmunasamtök opinberra starfsmanna á Íslandi með meira en 20 þúsund skráða félagsmenn.

Kjara- og viđhorfskönnun BSRB

14.2.2012

BSRB hefur samið við Capacent Gallup um kjara- og viðhorfskönnun meðal allra aðildarfélaga bandalagsins.  Hún mun verða ein af stærstu og veigamestu launa- og vinnumarkaðskönnunum landsins.  Félagsmenn BSRB mega eiga von á hringingu á næstu dögum og vikum þar sem þeim verður boðin þátttaka í könnuninni. Sjálf könnunin verður svo send rafrænt út í mars og mun gagnaöflun fara fram þann mánuðinn. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt til að niðurstöðurnar nýtist félagsmönnum í baráttunni um betri kaup og kjör. BSRB hvetur því alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni.

Ekki víst ađ hćkka ţurfi lífeyrisaldur á Íslandi

13.2.2012

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla ÍslandsMikið hefur verið fjallað um lífeyrismál á Íslandi undanfarið. Svíar hafa einnig verið að fjalla um þennan málaflokk, sérstaklega eftir að Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, viðraði þær hugmyndir að hækka eftirlaunaaldur um tíu ár. Á vefritinu Smugan.is er formaður BSRB spurður út í þessar hugmyndir auk þess sem Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, stendur fyrir svörum.

Trúnađarmannaráđ SFR ályktar um LSR

9.2.2012

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdstjóri LSRHaukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, mætti á fund trúnaðarmanna SFR í gærdag. Í erindi sínu leitaðist hann við að útskýra úttektarskýrslu lífeyrissjóðanna og tap lífeyrissjóðanna en miklar umræður sköpuðust á fundinum. Trúnaðarmannaráð SFR sendi í kjölfarið frá sér ályktun um málið.

Trúnađarmannanám um allt land á nćstu mánuđum

8.2.2012

Félagsmálaskóli Alþýðu2Félagsmálaskóli Alþýðu minnir á að á næstu misserum verður farið um landið til að kenna trúnaðarmannanámskeið. Dagana 20.- 22. febrúar er komið að Norðurlandi eystra en kennt verður að Löngumýri. Um er að ræða þrep 1 úr námsskránni, Trúnaðarmannanámskeið I.

Mikil ađsókn í starfslokanámskeiđ BSRB

7.2.2012

Fullt var út úr dyrum á starfslokanámskeiði BSRB í síðustu vikuStarfslokanámskeið BSRB fór fram í síðustu viku en námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Félagsmenn BSRB og makar þeirra fjölmenntu á námskeiðið sem var yfirfullt og rúmlega það.

Ísland ćtlar ekki ađ innleiđa ţjónustutilskipun EES um póstinn

3.2.2012

Póstmannafélag ÍslandsInnanríkisráðherra tilkynni á Alþingi í gær að hann hafi ákveðið að fara að fordæmi Norðmanna varðandi þjónustutilskipun EES um málefni póstsins. Það þýðir að Ísland mun ekki innleiða þjónustutilskipun EES um póstinn og þannig setja sig upp á móti frekari einkavæðingu póstþjónustu á Íslandi.

Samningur um almenningssamgöngur á Suđurnesjum

2.2.2012

StrætisvagnSamband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Vegagerðin undirrituðu nýverið samning um skipulagningu almenningssamgangna milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. BSRB fagnar því að auka eigi hlut almenningssamgangna enda er það í samræmi við ályktun 42. þings bandalagsins.

Eingreiđsla til starfsmanna sveitarfélaga ţann 1. febrúar

1.2.2012

PeningarBSRB vekur athygli starfsmanna sveitarfélaga og stofnanna þeirra á því að samkvæmt kjarasamningum ber þeim að fá sérstaka eingreiðslu þann 1. febrúar 2012.

Forystufrćđsla fyrir stjórnir og starfsmenn stéttarfélaga

31.1.2012

Starfsmennt - logoFræðsluaðilar og stéttarfélög innan BSRB og ASÍ hafa sammælst um heildstætt nám fyrir starfsfólk og stjórnarmenn til að styrkja fagmennsku, lýðræðislega virkni og nýjungar í þjónustu við félagsmenn. Um er að ræða 173 klukkustunda námsleið sem samanstendur af 26 sjálfstæðum námskeiðum sem þátttakendur geta valið úr út frá eigin fræðsluþörfum.

Framkvćmdanefnd fundađi međ forystufólki Sjálfstćđisflokksins

27.1.2012

Bjarni Benediktsson og Ólöf Norðdal á fundi hjá BSRBFramkvæmdanefnd BSRB fundaði í dag með formanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins í húsnæði BSRB að Grettisgötu. Þar kynnti framkvæmdanefndin fyrir þeim Bjarna Benediktssyni og Ólöfu Norðdal helstu málin sem BSRB hefur verið að vinna að síðustu misserin og framundan eru.

Ólga međal starfsmanna Vinnumálastofnunar

26.1.2012

VinnumálastofnunÁ félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar kom fram mikil óánægja meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga. Starfsmenn hafa þungar áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd og segja m.a. í ályktun sem fundurinn sendi frá sér með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að setja aukafjármuni upp á 300 milljónir í slíkt tilraunaverkefni í stað þess að efla starf stofnunarinnar og starfsfólk hennar.

Ráđstefna um starfsmenntun á Íslandi

26.1.2012

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðheFjallað verður um starfsmenntun á Íslandi, þróun hennar og framtíðarhorfur á ráðstefnu Iðnmenntar sem fram fer í næstu viku. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun ræða stefnu stjórnvalda í starfsmenntun, skólameistararnir Baldur Gíslason og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir verða með erindi auk aðila vinnumarkaðarins.

Málflutningur Ögmundar ómaklegur

25.1.2012

Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRBÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra lýsti áhyggjum sínum á Alþingi í gær af því að embættismenn og ríkisstofnanir væru að ánetjast utanlandsferðum í tengslum við aðildarviðræðurnar við ESB. Framkvæmdastjóri BSRB segir málflutninginn ómaklegan og ekki sæmandi manni í hans stöðu.

Fjallađ um tilfćrslu á málefnum atvinnuleitenda í fjölmiđlum

24.1.2012

Gissur Pétursson, forstjóri VinnumálastofnunarTilraunaverkefni nokkurra stéttarfélaga innan ASÍ um tilfærslu á þjónustu við atvinnuleitendur verður undirritað síðar í vikunni ef allt gengur eftir. Formaður BSRB hefur undanfarið lýst andstöðu við þetta fyrirkomulag og í gær tók formaður SFR opinberlega undir þá gagnrýni. Fjallað var um málið í fjölmiðlum bæði í dag og í gær.

Tilraunaverkefni SA og ASÍ kostađ af Atvinnuleysistryggingasjóđi

23.1.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBBSRB hefur áður lýst andstöðu sinni á tilfærslu á þjónustu við atvinnuleitendur frá Vinnumálastofnun til stéttarfélaga. Nú liggur hins vegar ljóst fyrir að velferðarráðuneytið hefur samþykkt að tiltekin stéttarfélög innan Alþýðusambandsins munu taka þátt í svokölluðu tilraunaverkefni þar sem stéttarfélögin í samstarfi við atvinnurekendur koma í ríkara mæli að þjónustu við atvinnuleitendur. Til verkefnisins á að leggja árlega 113 milljónir næstu þrjú árin og munu þeir fjármunir koma úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Rúmlega 400 manns á málţingi um lífeyrismál

20.1.2012

Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, talar fyrir fullum sal á málþingi um lífeyrismálMálþing BSRB, KÍ og BHM fór fram á Grand hótel í gær fyrir fullum sal en alls mættu rúmlega 400 manns til að hlíða á þau erindi sem þar voru flutt.

Benedikt: "Munurinn á lífeyrisgreiđslum minni en munurinn á lífeyrisréttindum gefur til kynna"

19.1.2012

Benedikt Jóhannesson, á málþingi BSRB, KÍ og BHM í dag."Almennt eru greiðslur úr almennu lífeyrissjóðunum til ellilífeyris talsvert lægri en úr þeim opinberu. Hins vegar jafnast bilið mjög þegar tekið er tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins. Þær stuðla að því að allir ná ákveðu lágmarki ráðstöfunartekna. Greiðslurnar frá TR eru skertar eftir því sem meira er greitt úr lífeyrissjóðum. Skattgreiðslur minnka einnig muninn því að þeir sem meiri tekjur fá eru jafnframt meiri tekjustofn fyrir ríkið," er meðal þess sem stendur í skýrslu Benedikts Jóhannessonar sem hann vann fyrir BSRB, KÍ og BHM og kynnt var á málþinginu „Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíð" fyrr í dag.

Málţing BSRB, KÍ og BHM: Vefútsending á ađ vera komin í lag

19.1.2012

Lífeyrismál - málþingMálþingið „Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíð" fer fram á Grand hótel Reykjavík í dag á vegum BSRB, BHM og KÍ. Smávægileg bilun kom upp á vefútsendingu til að byrja með en það á nú að vera komið í lag.

SFR krefst skýringa á uppsögnum

19.1.2012

Árni Stefán Jónsson, formaður SFRSFR stéttarfélag hefur boðið forsvarsmenn ÁTVR á sinn fund í næstu viku vegna óánægju félagsmanna með uppsagnir hjá fyrirtækinu. Fjórir starfsmenn vínbúðarinnar á Akureyri hafa leitað til félagsins vegna uppsagnanna en öllum var þeim sagt upp í síðustu viku án skýringa.

Grein frá formönnum BSRB, KÍ og BHM

18.1.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBFormenn BSRB, KÍ og BHM rita sameiginlega grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni „Munur lífeyrisréttinda minni en margir telja". Greinin setur tóninn fyrir málþing bandalaganna þriggja sem fram fer á morgun þar sem ný skýrsla um samspil lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga verður kynnt til sögunnar.

Samspil lífeyris og almannatrygginga - ţín framtíđ

17.1.2012

Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíðMálþing BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyris og almannatrygginga verður haldið á Grand hótel Reykjavík
þann 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00.

Framkvćmdanefnd BSRB fundađi međ fjármálaráđherra

16.1.2012

Oddný Harðardóttir og Elín Björg Jónsdóttir á fundinum í síðustu vikuFramkvæmdanefnd BSRB átti í síðustu viku fund með Oddnýju Harðardóttur fjármálaráðherra. Þar var m.a. rætt um þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum sem BSRB telur vera fordæmisgefandi fyrir sína félagsmenn.

Fulltrúaráđ St.Rv krefst leiđréttingar launa

14.1.2012

Garðar Hilmarsson, formaður St. RvFulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sendi frá sér eftirfarandi ályktun í kjölfar fundar sem haldinn var í vikunni þar sem krafist er leiðréttingar á launum.

Hagfrćđingur BSRB: Kaupmáttur barnabóta rýrnađ um 30% á ţremur árum

13.1.2012

Hilmar Ögmundssson, hagfræðingur BSRBKaupmáttur barnabóta hefur rýrnað um 30 prósent síðastliðin þrjú ár hjá hjónum sem eru á lágmarkslaunum og eiga tvö börn samkvæmt útreikningum Hilmars Ögmundssonar, hagfræðings BSRB. Hann fjallaði um málið í hádegisfréttum Rúv í dag og þá birtir vefmiðilinn Eyjan ítarlega útekt á málinu.

Vesturlandsdeild SLFÍ afhendir velferđarráđherra ályktun

13.1.2012

Velferðarráðherra fær ályktunina í hendurnarGuðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, var fyrr í vikunni afhent ályktun að loknum fundi sem haldinn var með honum og stjórn Vesturlandsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands. Þar var fækkun rýma á Sjúkrahúsi Akraness mótmælt.

BSRB, KÍ og BHM vara viđ tilfćrslu á málefnum atvinnuleitenda

12.1.2012

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBStjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.

Fjárhagslegur ávinningur af á starfsendurhćfingu

12.1.2012

VIRKRáðgjafafyrirtækið Talnakönnun hefur tekið saman fyrir VIRK nokkur einföld dæmi um fjárhagslegan ávinning þess þegar starfsendurhæfing skilar þeim árangri að einstaklingur tekur fullan þátt á vinnumarkaði í stað þess að fara á örorkulífeyri.

BSRB, KÍ og BHM efna til málţings um lífeyrismál

10.1.2012

LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisinsMálþing um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnunar ríkisins fer fram á Grand hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 19. janúar. BSRB, KÍ og BHM standa sameiginlega að málþinginu þar sem Benedikt Jóhannesson mun kynna efni nýrrar skýrslu sem hann hefur unnið um ofangreint málefni með sérstaka áherslu á lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.

Styrkir til vinnustađanáms eđa starfsţjálfunar voriđ 2012

9.1.2012

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðheMennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að gera fleiri nemendum sem taka starfsþjálfun sem hluta af starfsnámi á framhaldsskólastigi kleift að ljúka tilskilinni þjálfun á vinnustað.

Forystufrćđsla BSRB

6.1.2012

StarfsmenntBSRB og Fræðslusetrið Starfsmennt hafa hannað 170 stunda heildstæða námsleið um forystufræðslu fyrir starfsfólk, stjórnendur og stjórnarmenn stéttarfélaga innan BSRB. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku þátttakenda um leið og lýðræðisleg virkni, upplýsingamiðlun og liðsheild samtakanna er efld.

Trúnađarmannanámsskeiđ á landsbyggđinni

5.1.2012

Félagsmálaskóli Alþýðu2Fljótlega verður boðið upp á sameiginleg trúnaðarmannanámskeið fyrir öll stéttarfélög innan ASÍ og BSRB á landsbyggðinni. Mikilvægt er að félagsleg fræðsla trúnaðarmanna sé sem allra best og allir trúnaðarmenn fái tækifæri til að sækja trúnaðarmannanámskeið og því hefur verið ákveðið að fara hringinn í kringum landið.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


almannaţjónusta

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta