Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Alþjóðlegur aðgerðadagur Evrópusambands verkalýðsfélaga

29.2.2012

ETUC Action Day 2012Víða hefur verið efnt til mótmæla í dag til að vekja æðstu ráðamenn í löndum Evrópu til umhugsunar. Leiðtogar Evrópuríkja munu á morgun hittast í Brussel til að ræða m.a. um aðgerðir vegna fjárhagsvanda Evrópu. Bernadette Ségol aðalritari ETUC, Evrópusambands verkalýðsfélaga, hvatti fólk til að sýna samstöðu í dag og benti á að uppsagnir og niðurskurður á velferð leystu ekki vanda heldur myndu þvert á móti auka hann.

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis loksins aðgengilegar

28.2.2012

ÍbúðarlánasjóðurÞað mikilvæga skref var stigið fyrir helgi að birta í fyrsta sinn upplýsingar um leiguverð eftir svæðum og stærðum fasteigna á heimasíðu Þjóðskrár. Um er að ræða verðupplýsingar sem unnar eru úr þinglýstum leigusamningum en BSRB hefur lengi talað fyrir því að slíkar upplýsingar, unnar af opinberum aðila, yrðu aðgengilegar fyrir almenning.

Tillögur um bætta öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál

24.2.2012

Vinnuhópur um húsnæðisupplýsingar ásamt velferðarráðherraVinnuhópur sem fjallað hefur um leiðir til að efla og samræma öflun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál skilaði velferðarráðherra tillögum sínum í dag. Tillögur hópsins eru liður í stærra verkefni sem miðar að því að móta heildstæða húsnæðisstefnu á Íslandi. BSRB fagnar því að verið sé að taka á þessum málaflokki enda hefur bandalagið ítrekað talað fyrir að brýn þörf sé á fjölbreyttari úrræðum í húsnæðismálum landsmanna.

Framkvæmdanefnd BSRB fundaði með forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra

23.2.2012

Framkvæmdanefnd á fundi í stjórnarráðinuFramkvæmdanefnd BSRB fundaði í gærmorgun með forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra. Tilefni fundarins voru ýmis mál er varða kjaramál opinberra starfsmanna.

Skýrsla um félagsvísa lögð fyrir ríkisstjórn

22.2.2012

Velferðarvaktin ásamt Guðbjarti HannessyniVelferðarráðherra lagði skýrsluna um félagsvísa fram í ríkisstjórn á föstudaginn sl. Í minnisblaði sem fylgdi með var lagt til að ríkisstjórnin feli Hagstofu Íslands að taka við verkefninu.

Vinnandi vegur - nýtt átak fyrir atvinnuleitendur og atvinnurekendur

21.2.2012

Vinnandi vegur.Vinnandi vegur er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Með átakingu gefst atvinnurekendum kostur á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.

Dómur varðandi kynferðislega áreitni á vinnustað

17.2.2012

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær í máli félagsmanns BSRB vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað. Málsatvik voru þau að yfirmaður og tveir starfsmenn fóru í vinnuferð í sumarbústað vegna fyrirhugaðra breytinga á starfssviði konunnar sem áttu að fela í sér umfangsmeiri verkefni og aukna ábyrgð. Taldi konan sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnuferðinni og kvartaði þar um til starfsmannahalds síns atvinnurekanda. Fljótlega fór að draga úr verkefnum hennar í vinnu og taldi konan brotið á sér. Eftir árangurslausar sáttaumleitanir lagði hún málið fyrir dóm.

 

Hvað verður eftir í launaumslaginu?

16.2.2012

Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRBHilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB hélt erindi á trúnaðarmannaráðsfundi SFR í síðustu viku þar sem hann fjallaði um þróun launa og ráðstöfunartekna. Þar rakti hann m.a. rýrnun kaupmáttar og mismunandi kaupmátt ákveðinna hópa.

70 ár frá stofnun BSRB

14.2.2012

BSRB-logoBSRB fagnar í dag 70 ára afmæli en samtökin voru formlega stofnuð í Reykjavík þann 14. febrúar árið 1942. Í dag eru BSRB stærstu hagsmunasamtök opinberra starfsmanna á Íslandi með meira en 20 þúsund skráða félagsmenn.

Kjara- og viðhorfskönnun BSRB

14.2.2012

BSRB hefur samið við Capacent Gallup um kjara- og viðhorfskönnun meðal allra aðildarfélaga bandalagsins.  Hún mun verða ein af stærstu og veigamestu launa- og vinnumarkaðskönnunum landsins.  Félagsmenn BSRB mega eiga von á hringingu á næstu dögum og vikum þar sem þeim verður boðin þátttaka í könnuninni. Sjálf könnunin verður svo send rafrænt út í mars og mun gagnaöflun fara fram þann mánuðinn. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt til að niðurstöðurnar nýtist félagsmönnum í baráttunni um betri kaup og kjör. BSRB hvetur því alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni.

Ekki víst að hækka þurfi lífeyrisaldur á Íslandi

13.2.2012

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla ÍslandsMikið hefur verið fjallað um lífeyrismál á Íslandi undanfarið. Svíar hafa einnig verið að fjalla um þennan málaflokk, sérstaklega eftir að Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, viðraði þær hugmyndir að hækka eftirlaunaaldur um tíu ár. Á vefritinu Smugan.is er formaður BSRB spurður út í þessar hugmyndir auk þess sem Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, stendur fyrir svörum.

Trúnaðarmannaráð SFR ályktar um LSR

9.2.2012

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdstjóri LSRHaukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, mætti á fund trúnaðarmanna SFR í gærdag. Í erindi sínu leitaðist hann við að útskýra úttektarskýrslu lífeyrissjóðanna og tap lífeyrissjóðanna en miklar umræður sköpuðust á fundinum. Trúnaðarmannaráð SFR sendi í kjölfarið frá sér ályktun um málið.

Trúnaðarmannanám um allt land á næstu mánuðum

8.2.2012

Félagsmálaskóli Alþýðu2Félagsmálaskóli Alþýðu minnir á að á næstu misserum verður farið um landið til að kenna trúnaðarmannanámskeið. Dagana 20.- 22. febrúar er komið að Norðurlandi eystra en kennt verður að Löngumýri. Um er að ræða þrep 1 úr námsskránni, Trúnaðarmannanámskeið I.

Mikil aðsókn í starfslokanámskeið BSRB

7.2.2012

Fullt var út úr dyrum á starfslokanámskeiði BSRB í síðustu vikuStarfslokanámskeið BSRB fór fram í síðustu viku en námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Félagsmenn BSRB og makar þeirra fjölmenntu á námskeiðið sem var yfirfullt og rúmlega það.

Ísland ætlar ekki að innleiða þjónustutilskipun EES um póstinn

3.2.2012

Póstmannafélag ÍslandsInnanríkisráðherra tilkynni á Alþingi í gær að hann hafi ákveðið að fara að fordæmi Norðmanna varðandi þjónustutilskipun EES um málefni póstsins. Það þýðir að Ísland mun ekki innleiða þjónustutilskipun EES um póstinn og þannig setja sig upp á móti frekari einkavæðingu póstþjónustu á Íslandi.

Samningur um almenningssamgöngur á Suðurnesjum

2.2.2012

StrætisvagnSamband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Vegagerðin undirrituðu nýverið samning um skipulagningu almenningssamgangna milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. BSRB fagnar því að auka eigi hlut almenningssamgangna enda er það í samræmi við ályktun 42. þings bandalagsins.

Eingreiðsla til starfsmanna sveitarfélaga þann 1. febrúar

1.2.2012

PeningarBSRB vekur athygli starfsmanna sveitarfélaga og stofnanna þeirra á því að samkvæmt kjarasamningum ber þeim að fá sérstaka eingreiðslu þann 1. febrúar 2012.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


ag

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta