Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Garðar Hilmarsson næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

2.2.2006

Garðar Hilmarsson verður næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins 4. mars nk. Uppstillinganefnd Starfsmannafélagsins gerði tillögu um Garðar sem formann og rann frestur til að koma með mótframboð út í gær þannig að Garðar verður sjálfkjörinn á fundinum.

Garðar Hilmarsson hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2000. Hann hefur undanfarið verið formaður B-hluta félagsins en það er deild starfsmanna hlutafélaga í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Hann starfaði áður hjá SKÝRR en undanfarin ár hefur hann verið starfsmaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Sjöfn Ingólfsdóttir sem verið hefur formaður félagsins frá 1991 ákvað að gefa ekki kost á sér til starfans lengur. Hún er jafnframt 1. varaformaður BSRB og gegnir því embætti áfram.

Tveir nýir koma inn í stjórn Starfsmannafélagsins á aðalfundinum en þar eru Guðríður Sigurbjörnsdóttir og Hallgerður Inga Gestsdóttir en þær hafa báðar setið í fulltrúaráði félagsins í talsverðan tíma.

Sjá tilkynningu um uppstillingu á heimasíðu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta