Fréttir
NFS vill breyta þjónustutilskipuninni
6.2.2006
Allir formenn heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndunum hafa skrifað undir bréf sem NFS, (Norræna verkalýðssambandið) sendi nýverið til norrænna þingfulltrúa á Evrópuþinginu, vegna atkvæðagreiðslu um þjónustutilskipunina, sem fram fer eftir um tvær vikur. Í bréfinu er hvatt til stuðnings við breytingartillögu, sem felur það í sér að hin nýja þjónustutilskipun muni ekki hafa áhrif á vinnurétt einstakra ríkja, þar með taldar heimildir til að grípa til félagslegra aðgerða og kjarasamningsréttinn. Þá kemur einnig fram að tillagan megi ekki hindra gerð kjarasamninga og eftirfylgni með þeim og lögum. Bréfið var ennfremur sent þingmannanefndum EFTA. Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ eru meðal þeirra sem skrifuðu undir bréfið.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























