Fréttir
Ögmundur svarar kennara við viðskiptaskor HÍ
7.2.2006
"Í fréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag var staðhæft að samskiptavandamál væru algengari í ríkisfyrirtækjum en í fyrirtækjum á einkamarkaði. Skýringin liggi í því að auðveldara sé að reka fólk í einkafyrirtækjum en hjá hinu opinbera vegna "ráðningarfyrirkomulags"! Einkafyrirtækin hafi ekki "efni á því" að láta vandamál danka. Svo er að skilja að öðru máli gegni um opinberar stofnanir!" Þetta er upphaf greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans þar sem hann svarar Þórði S. Óskarssyni kennara við viðskiptaskor HÍ.
Þórður S. sagði í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins að vandinn væri sá að í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sé kveðið á um að óheimilt sé að segja fólki upp störfum, án þess að um skipulagasbreytingar sé að ræða, nema að viðkomandi starfsmaður hafi verið áminntur, svo hann eigi kost á því að bæta ráð sitt eða leiðrétta hugsanlegan misskilning.
Sjá grein Ögmundar
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























