Fréttir
Sveitarfélögin nýta heimild LN til hækkunar
8.2.2006
Sveitarfélögin hafa eitt af öðru ákveðið að nýta að fullu heimild Launanefndar svetarfélaga til hækkunar lægst launa. Þetta kemur fram á heimasíðum aðildarfélaga BSRB.
Meðal sveitarfélaga sem þegar hafa samþykkt að nýta heimildina eru Ísafjörður, Hveragerði, Akureyri, Borgarbyggð og Dalvíkurbyggð. Hafnfirðingar eru enn að skoða útfærslu á þessu og kemur fram á heimasíðu Starfsmannafélagsins að lausnir liggi á borðinu fyrir stóran hluta félagsmanna og í raun ekkert að vanbúnaði að klára þær leiðréttingar. Það sem standi út af borðinu sé að beðið sé eftir úttekt og samanburði frá hagfræðingum BSRB almennt sem og á nokkrum störfum sem þarf að kíkja sérstaklega á og athuga hvernig þau passa inn í fyrirliggjandi ramma.
Hér er ekki um að ræða tæmandi úttekt og kunna fleiri sveitarfélög að hafa nýtt heimildina nú þegar.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























