Fréttir
LSS nýtur víðtæks stuðnings
16.2.2006
"Ég er sannfærður um að kröfur Landssambands slökkviliðsmanna njóta víðtæks stunings í þjóðfélaginu og það veit ég að innan BSRB, þar sem LSS á aðild, þykja kröfur sambandsins réttmætar og njóta ótvíræðs stuðnings," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni.
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna átti fund með LN sl. mánudag og annar fundur var boðaður í dag. Ekkert nýtt tilboð varðandi launaliðinn kom fram sl. mánudag en í frétt á heimasíðu LSS er m.a. verið að ræða núna nauðsyn á flýttum starfslokum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Eins og fram hefur komið hafnaði samninganefnd LSS tilboði LN í sl. viku. SKV því tilboði hefðu byrjunarlaun farið í 125 þúsund á mánuði eftir þrjú ár, en byrjunarlaunin eru nú 104 þúsund krónur.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























