Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Hálfur sigur – hálft tap

16.2.2006

Mótsagankenndar og nokkuð misvísandi yfirlýsingar hafa borist í dag um málalyktir á Evrópuþinginu þar sem atkvæðagreiðsla fór fram um þjónustutilskipunina, sem svo er nefnd. Svo er að sjá að sú málamiðlun sem náðist milli hinna stóru flokkablokka hægri manna og sósíaldemókrata á Evrópuþinginu um þjónustutilskipunina, skili verkalýðshreyfingunni ekki þeim árangri sem vonast hafði verið til. Þjónustutilskipunin eins og hún var upphaflega sett fram af Bolkestein var hrein árás á verkalýðshreyfinguna og velferðarkerfi Evrópu og því höfðu markaðssinnar úr talsverðu að moða þegar kom að því "að gefa eftir" og mæta kröfum verkalýðshreyfingar Evrópu. Þeir sigrar sem að ETUC fagnar í dag eru því í besta falli varnarsigrar – hálfir sigrar þar sem tókst að koma í veg fyrir sundurlimum evrópskrar verkalýðshreyfingar og að kjör launafólks myndu steypast stjórnlaust niður á við, undir upprunalandsreglunni. Það tókst að fá Evrópuþingið, þar sem hægri flokkar eru í miklum meirihluta, til að samþykkja að lög um lágmarkslaun, þar sem slíkt er við lýði, skuli virt. Svo virðist sem tilskipunin um útsent launafólk – (Posting of workers) eigi að gilda, en þar er kveðið á um að aðkomuverkamenn skuli ekki fá undir lágmarkslaunum í því landi þar sem þeir starfa. Hins vegar er þetta óljóst og kemur til með að verða háð túlkunum. Það virðist eiga að verða hlutverk Evrópudómstólsins að kveða upp úrskurði, þar sem annars hefði reynt á ákvæði upprunalandsreglunnar.

Þá er þess að geta að ýmsir hörðustu talsmenn markaðshyggju á Evrópuþinginu, eins og t.d. Malcolm Harbour, gleðjast nú mjög yfir niðurstöðu kosninganna í dag. Hann fagnar sigri og segir t.d. að upprunareglan haldi áfram að gilda, jafnvel þó hún hafi fengið nýtt heiti eða "Frelsi til að veita þjónustu". (" The country of origin principle … still continues to apply." sjá: http://www.epp-ed.org/Press/showpr.asp?PRControlDocTypeID=1&PRControlID=4559&PRContentID=8267&PRContentLG=en ) Harbour segir ennfremur að það hafi tekist að halda þeim hluta almannaþjónustu sem kölluð hefur verið Services of general economic interest undir þjónustutilskipuninni og að sá hluti sé nú opinn fyrir markaðsöflunum. "Þrýstingur til að opna markaðinn hefur nú aukist umtalsvert", segir Harbour. Þá hælist hann um vegna þess að komið hafi verið í veg fyrir að ýmis mál sem snerta stefnu í velferðarmálum og neytendamálum, yrðu undanskilin þjónustutilskipuninni. Það hafi verið forsenda þess að hægri flokkarnir (EPP-ED) hafi fallist á málmiðlunina. (sjá: http://www.epp-ed.org/Activities/pday06/day022_en.asp )

Innan EPSU, Samtaka launafólks í almannaþjónustu, hefur margoft verið bent á að markaðssinnar setji traust sitt á að dómstólar komi til með að túlka óljósan lagabókstaf markaðsöflunum í hag og undir það sjónarmið er í dag tekið af vinstrabandalaginu á Evrópuþinginu (GUE/NGL) en það lýsir mikilli óánægju með niðurstöður kosninganna.

Í yfirlýsingum EPSU, segir að grunn- og velferðarþjónustu stafi enn hætta af tilskipuninni. Samtökin reyndu að knýja á um að velferðar- og grunnþjónustugeirinn yrði algerlega aðskilinn markaðsstarfsemi. Niðurstaðan er hins vegar sú að áfram verður þessi starfsemi á vinnsluborðinu í tengslum við þjónustutilskipun ESB.

Eins og hér greinir frá eru viðbrögðin við atkvæðagreiðslunni á Evrópuþinginu í dag um þjónustutilskipun ESB misvísandi. Hitt virðist ljóst að sigrar verkalýðshreyfingarinnar eru í besta falli varnarsigrar því þegar á heildina er litið er verið að þrengja að henni og lýðræðissamfélaginu. Ljóst er að áhrifa markaðarins kemur til með að gæta í ríkari mæli en verið hefur, bæði í samfélaginu í heild sinni og í daglegu lífi fólks.

 


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta