Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Slitnaði upp úr viðræðum LSS og Launanefndar

23.2.2006

Í dag slitnaði upp úr viðræðum samninganefnda Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. LSS segir að tilboð LN til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafi verið óásættanlegt.

Á heimasíðu LSS segir m.a.:

"Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa sýnt mikla biðlund og þolinmæði. Þrátt fyrir ákveðin fyrirheit LN um skilning, kom það klárlega í ljós á fundinum í dag að slíkur vilji er í hundslíki og ábyrgð af því algerlega hjá Launanefnd sveitarfélaga.

Í viðræðum okkar við samninganefnd LN hefur komið fram ósk þeirra um að fá ráðrúm til að leita leiða til að leiðrétta laun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hefur þeim verið veitt það í ríku mæli.

Fyrir fundinn í dag var búið að gefa ákveðin fyrirheit um leiðréttingu eftir ákveðnum leiðum. Þegar sest var við samningaborðið kom það eins og köld vatnsgusa framan í okkur að allt slíkt væri ekki lengur upp á borði og það sem boðið var það sama og var í umræðunni tæpum tveim vikum áður.

Þessi framkoma samninganefndar LN er með öllu ólíðandi og upp kominn ákveðinn trúnaðarbrestur sem er mjög miður.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður sem hefur fjögurra ára framhaldsnám, um 1.100 stundir í starfsnámi sem meðal annars inniheldur atvinnuslökkviliðsmannanám og framhaldsnám í sjúkraflutningum (Neyðarbílsréttindi) fær í dag rétt um 135.000 krónur í mánaðarlaun fyrir vinnu sem ógnar lifi, limum og heilsu okkar á hverjum degi.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn segja hingað og ekki lengra. Við ætlum ekki lengur að vinna á skítalaunum í starfi og starfsumhverfi sem er afar fjandsamlegt okkur hvernig sem á það er litið."

Sjá heimasíðu LSS


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta