Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Lagt til að Árni Stefán Jónsson verði næsti formaður SFR

27.2.2006

Trúnaðarmannaráðsfundur SFR samþykkti tillögur uppstillingarnefndar um stjórn SFR sem kjörin verður á aðalfundi félagsins 25. mars nk. Jens Andrésson formaður SFR hættir formennsku en uppstillinganefnd lagði til að Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri félagsins verði formaður. Ríkti almennur einhugur um tillögur nefndarinnar hjá trúnaðarmönnum, nema hvað hlutur ungra félagsmanna kom til umræðu sem leiddi til breytinga.
Endanleg afgreiðsla á tillögunum verður síðan gerð á aðalfundi félagsins þann 25. mars nk. Aðrar tillögur til stjórnar SFR verða að koma fram 25 dögum fyrir aðalfund, en ef svo verður ekki, þá eru tillögur ráðsins sjálfkjörnar.

Tillaga uppstillinganefndar til trúnaðarmannaráðs SFR um fulltrúa í stjórnir og formann SFR - 23. febrúar 2006

Formaður
Árni Stefán Jónsson
Stjórn
Guðlaug Þóra Marínósdóttir
Guðmundur Garðar Guðmundsson
Guðrún Bjarnadóttir
Halldóra Guðmundsdóttir
Ína H. Jónasdóttir
Katrín G. Einarsdóttir
Kolbrún Kristinsdóttir
Páll Svavarsson
Svala Norðdahl
Valdimar L. Friðriksson

Sjá frétt á heimasíðu SFR


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta