Fréttir
Útifundur á Selfossi í hádeginu
18.12.2008
Grasrótarhreyfing óánægðra íbúa á Suðurlandi stendur fyrir útifundi við Landsbankann á Selfossi í hádeginu í dag kl 12:30. Frummælendur eru Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi og varaformaður BSRB, Bjarni Harðarson bóksali og Sigríður Jónsdóttir kennari og ljóðskáld.
Tilgangur fundarins er að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda, siðleysi útrásarvíkinganna og skuldabyrðum sem eru vegna þessa lagðar á herðar almennings.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























