Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Fróðlegur fundur um Ísland og ESB

20.2.2009

EURO-_-GESTIR-1
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

BALDUR-og-SIG-J
Baldur Þórhallsson                                                      Sigurður Jóhannesson

Baldur færði rök fyrir því að það væri misskilningur að horfa eingöngu til atkvæðafjölda ríkja á Evrópusambandsþinginu til að meta áhrif þeirra innan ESB. Taldi hann áhrif smáríkja á mótun stefnu og regluverks ESB mun meiri en atkvæðavægi þeirra segði til um.

Sigurður bar saman styrkjakerfi íslensks landbúnaðar og þess sem greinin gæti vænst ef landið gengi í ESB. Þar tók hann samninga Finna sem dæmi og taldi Íslendinga geta náð svipuðum samningum.

Euro-gestir-2

Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum var opnað fyrir spurningar úr sal.

Sjá glærur Sigurðar frá fundinum.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta