Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Sjávarútvegur og iðnaður hjá ESB

20.3.2009

fyrirlesararstor
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu  ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

Aðalsteinn rakti sögu sjávarútvegsstefnu ESB og markmið hennar. Síðan fjallaði hann um hvernig til hefði tekist og var niðurstaðan sú að stefnan hefði ekki virkað. Afleiðing hennar væri m.a. ofveiði, atvinnuleysi í greininni og vandræði með eftirlit. Þessi lýsing á þó ekki við í öllum löndum ESB og á undanförnum árum hefur þokast í rétta átt. Hann fór síðan yfir það sem hann kallaði algengar ranghugmyndir hér á landi um stefnu ESB í sjávarútvegi, eins og það að ef Ísland gengi í sambandið fengju önnur ríki frjálsan aðgang að  miðunum hér. Niðurstaða hans var sú að viðræður um sjávarútvegsmál yrðu erfiðar í aðildasamningum við ESB en það væri alls ekki ómögulegt að fyrir Íslendinga að ná hagstæðri niðurstöðu.

Bjarni Már fjallaði um hlut iðnaðar í efnahagslífi Íslendinga og vægi hans í öflun gjaldeyris. Hann fór síðan yfir hvaða hagsmunir ættu að vega þyngst að hans mati í afstöðunni til aðildarviðræðna. Síðan greindi hann stefnu ESB gagnvart iðnaði og rakti að síðustu niðurstöður skoðanakannana hér á landi til aðildar að ESB og að evra væri tekin upp í stað krónu.

Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum var opnað fyrir spurningar úr sal.

Sjá glærur Aðalsteins

Sjá glærur Bjarna Más

salur2003


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta