Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Samið við borgina

6.7.2009

strvsamn2009stor
Kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var undirritaður á áttunda tímanum í kvöld, 6. júlí. Líkt og samningur aðildarfélaga BSRB við ríkið er áhersla lögð á að hækka lægstu laun félagsmanna. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar.

Árið 2010 munu laun upp að 225 þúsund krónum hækka. Laun fyrir ofan það munu ekki breytast. Einnig var samið um lágmarkslaun. Kjarasamningurinn verður kynntur fljótlega. Atkvæðagreiðsla verður rafræn, en henni þarf að vera lokið fyrir 14. ágúst.

Sjá kjarasamning Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Enn er ósamið við Launanefnd sveitarfélaga.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta