Fréttir
Aðkoma ráðuneyta að eineltismálum
15.7.2009
Umboðsmaður Alþingis ákvað að taka til athugunar að eigin frumkvæði hvernig aðkomu ráðuneyta væri almennt háttað að málum þar sem fyrir liggur tiltekinn kerfisvandi í starfsemi undirstofnunar ráðuneytis. Með kerfisvanda vísar umboðsmaður til verulegra samskiptaörðugleika á milli starfsmanna ríkisstofnana eða að fram hafi komið ásakanir frá starfsmanni um einelti af hálfu annarra starfsmanna og/eða yfirmanns.
Niðurstaða umboðsmanns er að ráðuneyti geti á grundvelli stjórnunarheimilda tekið mál af þessu tagi til umfjöllunar að eigin frumkvæði. Ráðuneyti hafi ekki eingöngu heimild til slíks heldur geti einnig hvílt á þeim jákvæð athafnaskylda í ákveðnum tilvikum. Ef um viðvarandi ástand er að ræða sem brýtur í bága við lög - og ráðstafanir forstöðumanns ná ekki tilætluðum árangri - hvílir að mati umboðsmanns Alþingis sú skylda á ráðherra að grípa til virkra ráðstafana til að koma starfsemi stofnunar í lögmætt horf. Ef meint brot beinist að háttsemi forstöðumanns ríkisstofnunar gagnvart öðrum starfsmönnum, eða vanrækslu hans að bregðast við ólögmætri háttsemi í samskiptum starfsmanna, kann athafnaskylda að hvíla á hlutaðeigandi ráðherra að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að uppræta hið ólögmæta ástand. Framangreint á við undir þeim kringumstæðum þegar starfsmaður getur hvorki fengið úrlausn mála sinna með kæru til æðra stjórnvalds né sérstaks stjórnvalds sem fer með eftirlitshlutverk á umræddu málefnasviði.
Að mati umboðsmanns skal því ráðherra kanna með sjálfstæðum hætti hvort grundvöllur sé fyrir ásökunum starfsmanna ef kvörtun berst þess efnis að forstöðumaður beiti einelti eða bregðist ekki við einelti af hálfu annarra starfsmanna. Því skulu ráðuneyti með beinum og skýrum hætti taka afstöðu til þess hvort skylda hvíli á þeim til að grípa til raunhæfra og virkra úrræða á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna.
Álitið í heild sinni má nálgast hér ( http://www.umbodsmaduralthingis.is/skyrslur/skoda.asp?Lykill=1287&Skoda=Mal )
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























