Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninga lokið

17.8.2009

Aðildarfélög BSRB sem gengu frá kjarasamningum við ríki og sveitarfélög í byrjun júní hafa lokið atvæðagreiðslu um samningana. Þrjú félög felldu samningana en önnur félög hafa samþykkt þá.

Félögin sem felldu samningana voru Landssamband lögreglumanna, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Tollvarðafélag Íslands. Sjúkraliðafélag Íslands tók ekki þátt í viðræðunum um samninga í júní og er með lausa samninga.

Hjá LL fór atkvæðagreiðsla þannig að rúm 90% greiddu atkvæði gegn samningnum. LSS felldi líka samkomulagið með yfirgnæfandi fjölda atkvæða eða 85%. Tæp 55% þeirra sem greiddu atkvæði hjá TFÍ voru andvígir samkomulaginu.

Kjarasamningur SFR og ríkisins var samþykktur með tæplega 55% greiddra atkvæða.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samþykkti samkomulagið við Reykjavíkurborg með rúmlega 60% greiddra atkvæða, við LN vegna starfsmanna Akranesskaupstaðar með 63% greiddra atkvæða og við ríkið með tæplega 65% greiddra atkvæða.

Samflotið samþykkti kjarasamninginn við LN með rúmlega 77% greiddra atkvæða og við ríkið  með rúmlega 72% greiddra atkvæða.

Kjölur samþykkti kjarasamninginn við LN með 87% greiddra atkvæða og við ríkið með 81% greiddra atkvæða.

Hjá Starfsmannafélagi Garðabæjar var samningurinn við LN samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkti kjarasamninginn við LN með 83% greiddra atkvæða og við ríkið með öllum greiddum atkvæðum.

Félag starfsmanna stjórnarráðsins samþykkti kjarasamninginn við ríkið með 54% greiddra atkvæða.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


atvinnumal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta