Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Kosning formanns upp úr hádegi

23.10.2009

BSRB---frambjodendur
Kosning formanns BSRB fer fram upp úr hádegi í dag á þingi bandalagsins. Eins og kunnugt er hefur Ögmundur Jónasson ákveðið að hætta sem formaður eftir að hafa gegnt starfinu í 21 ár. Fjórir hafa gefið kost á sér til formennsku en til þess að vera réttkjörinn formaður þarf viðkomandi að njóta stuðnings meira en helmings þingfulltrúa.

Þeir sem hafa gefið kost á sér til formanns eru Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, Árni Stefán Jónsson formaður SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu, Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi og Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta