Fréttir
Skilyrði AGS verði endurskoðuð
23.10.2009
BSRB krefst þess að skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir lánveitingum verði endurskoðuð í ályktun sem 42. þing bandalagsins hefur samþykkt.
Ályktunin fer hér á eftir:
BSRB mótmælir kröfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) þess efnis að skilyrði fyrir lánveitingum sjóðsins sé að jafnvægi verði náð í ríkisfjármálum á næstu þremur árum. Telur bandalagið kröfuna aðför að almannaþjónustunni og velferðarþjóðfélaginu. Óbætanlegt tjón mun hljótast af niðurskurði velferðarsamfélagsins. BSRB krefst þess að skilyrðin verði endurskoðuð og ekki gengið svo hart fram að skaði hljótist af.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























