Fréttir
Elín Björg Jónsdóttir er nýr formaður BSRB
23.10.2009

Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.
Þegar kjörið var ljóst ávarpaði Elín Björg þingið og sagði:
Ágætu félagar - ágætu BSRB félagar !
Kærar þakkir fyrir það mikla traust sem mér hefur verið sýnt!
Kærar þakkir til þeirra sem hvöttu mig til að bjóða mig fram - og hafa hjálpað mér við framboðið.
Ekki síður vil ég þakka meðframbjóðendum mínum sem hafa af heiðarleika háð sína baráttu - boðið fram krafta sína í lýðræðislegu kjöri.
Okkur gekk öllum það sama til - að vinna BSRB vel, aðildarfélögunum og síðast en ekki síst félagsmönnum okkar. Sem samtök erum við til þeirra vegna: Til þess að standa vörð um réttindi og kjör rúmlega tuttugu þúsund karla og kvenna - og ekki of margir of sælir af kjörum sínum um þessar mundir.
Kæru félagar.
Í kjölfar kosninga - eins og þeirra sem nú eru afstaðnar - er afar mikilvægt að við snúum bökum saman. Við verðum að vinna vel og sem einn maður - þannig mun almennum félagsmönnum, aðildarfélögunum og BSRB farnast best.
Undanfarið ár hefur verið landsmönnum afar erfitt, það hefur hrikt í stoðum samfélagsins. Framundan eru erfiðri tímar - fyrir alla - líka fyrir félagsmenn okkar í BSRB. Að starfinu framundan mun ég víkja eftir skamma stund þegar ég slít þinginu.
Mig langar hins vegar að beina orðum til fráfarandi formanns:
Félagi Ögmundur.
Ég er afar stolt af því að taka við af þér - og fylgja eftir stefnumálum BSRB.
Ég er líka ákaflega glöð - að hafa fengið að vinna með þér í stjórn BSRB í þessa tvo áratugi.
Þú ert einstakur félagi og einstakur baráttumaður.
Samskipti þín við þá sem minna mega sín hafa alltaf heillað mig - þín ósvikna virðing fyrir þeim sem standa höllum fæti og ósérhlífni þín við að rétta hlut þeirra eftir fremsta megni.
Það sýnir hversu góður maður þú ert.
Þú fylgir alltaf þinni eigin sannfæringu - og það er þess vegna sem okkur þykir svo vænt um þig.
Kæru félagar. Þetta hefur verið kröftugt þing. Ég veit að formennska í BSRB gerir miklar kröfur. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að ég fái undir þeim risið og þar með því trausti sem þið hafið nú sýnt mér.
Kærar þakkir.
Um BSRB
Á döfinni
Leit






















