Fréttir
Lög sem taka á skuldavanda heimilanna
28.10.2009
Lögin fela í sér eftirfarandi ráðstafanir:
- Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir almennri aðgerð sem lagar greiðslubyrði íbúðalána að launaþróun og atvinnustigi. Þessi greiðslujöfnun tekur til allra verðtryggðra lána opinberra lánastofnana, lífeyrissjóða og fjármálastofnana sem eru tryggð með veði í fasteignum hér á landi.
Þessi almenna aðgerð mun vera gerð sjálfkrafa sem felur í sér að hvort sem fólk óskar þess eða ekki mun greiðslubyrði íbúðalána verða endurreiknuð í samræmi við framangreint. Ef einstaklingar eða heimili telja sig ekki þurfa á greiðslubreytingunni að halda til að geta staðið í skilum er vakin er athygli á að óhjákvæmilega felur breytingin því í sér að kostnaður lántakans verður meiri, t.a.m. þar sem höfuðstóll greiðist hægar niður og vaxtakostnaður verður því meiri. Þar af leiðandi þyrfti viðkomandi að óska eftir því sem fyrst við viðkomandi lánastofnun/anir að íbúðalánið taki ekki ofangreindum breytingum.
- Í öðru lagi gera lögin ráð fyrir sértækum aðgerðum um skuldaaðlögun einstaklinga, heimila og fyrirtækja sem miða að því að skuldir verði lagaðar að greiðslugetu og eignastöðu.
Þetta úrræði sem almennt er nefnt skuldaaðlögun felur í sér að kröfuhafi og skuldari geta samið um eftirgjöf skulda eða breytingu á skilmálum skuldabréfa og lánssamninga. Þetta úrræði þjónar þeim tilgangi að laga skuldir að greiðslugetu og eignastöðu viðkomandi einstaklings eða heimilis en lánveitandi losnar undan óþarfa kostnaði og óhagræði við að innheimta tapaðar kröfur.
Til að gæta jafnræðis og hlutleysis verða settar á sérstakar verklagsreglur sem taka til heimilda lánveitenda til að veita einstaklingi eða heimili skuldaaðlögun. Fjármálaeftirlitið mun svo hafa eftirlit með að framkvæmdin sé í samræmi við settar verklagsreglur.
- Í þriðja lagi gera lögin ráð fyrir þeirri breytingu að Íbúðalánasjóði verði heimilt að setja á fót opinbert hlutafélag sem hafi að markmiði að fjármagna og endurfjármagna íbúðalán fyrir fjármálafyrirtæki og Íbúðalánasjóð, svonefndur heildsölubanki.
Á heimasíðunni island.is má sjá ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnun húsnæðislána sjá hér . Einnig er rétt að benda fólki á að leita sér upplýsinga hjá lánveitendum sínum um hinar sértæku aðgerðir vegna annarra lána en húsnæðislána.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























