Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Greiðslujöfnun og skuldaaðlögun

5.11.2009

Í fréttum BSRB 28. október s.l. var fjallað um ný lög sem sett hafa verið með það að markmiði að draga úr skuldavanda heimilanna. Í kjölfarið voru undirritaðir samningar 31. okt s.l. til að lækka greiðslubyrði einstaklinga af fasteignaveðlánum, bílalánum og bílasamningum. Einstaklingar og fjölskyldur geta nú sótt um greiðslujöfnun þessara lána og samninga þannig að greiðslubyrðin mun lækka frá og með gjalddaga í desember. Um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í innlendri mynt þarf hins vegar ekki að sækja - hún gerist sjálfkrafa ef lán eru í skilum nema henni sé hafnað sérstaklega.

Þá var undirritaður samningur um sértæka skuldaaðlögun sem er úrræði fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eiga í það miklum greiðsluerfiðleikum að almenn úrræði nægja ekki.

Ef verðtryggð húsnæðis- eða fasteignalán eru í skilum munu þau sjálfkrafa taka breytingum í samræmi við hin nýju lög. Lántaki verður því sérstaklega að hafna úrræðinu fyrir 20. nóvember n.k. vilji hann ekki að lánið taki breytingum. Ef lánið er ekki í skilum þarf viðkomandi að leita til lánveitenda og leita lausna með þeim til að öðlast rétt til greiðslujöfnunar. Athygli er vakin á því að þrátt fyrir að fólk hafni greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignaveðlána getur það engu að síður sótt um hana síðar.

Hins vegar þarf sérstaklega að sækja um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt og greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga. Umsóknin þarf að berast með a.m.k. 10 daga fyrirvara svo hún geti tekið gildi á næsta gjalddaga lánsins. Greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga verður eingöngu í boði frá nóvember 2009 til ársloka 2010 og gildir fyrir þá einstaklinga sem tóku bílalán eða gerðu bílasamning fyrir 1. október 2008.

Á heimasíðunni island.is má sjá „spurt og svarað" um greiðslujöfnun og skuldaaðlögun. Hér að neðan má sjá nöfn og hlekki á síður banka og annarra lánveitenda þar sem tilgreindar eru nánari upplýsingar um úrræði vegna greiðsluerfiðleika einstaklinga og heimila. Á sumum þeirra, t.a.m. vef Íslandsbanka er að finna reiknivél sem reiknar út greiðslubyrði af verðtryggðu fasteignaveðláni eftir greiðslujöfnun.

Íbúðalánasjóður 

Íslandsbanki   

Kaupþing   

Landsbankinn  

Sparisjóðurinn

Avant  

Frjálsi fjárfestingarbankinn  

Lýsing   

SP-fjármögnun  


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta