Fréttir
Aðalfundur BSRB
17.11.2009
Rétt til setu á aðalfundi eiga stjórnarmenn „sem fulltrúar fyrir fyrstu 400 félagsmenn bandalagsfélags en félögin kjósi viðbótarfulltrúa fyrir hverja 400 félagsmenn bandalagsfélags þar fram yfir eða brot úr þeirri tölu," sbr. 32. gr. laga BSRB. Samtals eru kjörnir fulltrúar á fundinum 68 talsins. Á aðalfundi eiga auk þess sæti oddvitar svæðisnefnda, formenn starfsnefnda og starfshópa á vegum BSRB, einnig starfsmenn bandalagsins, með málfrelsi og tillögurétti. Atkvæðisrétt hafa þessir aðilar hins vegar ekki nema þeir séu kjörnir fulltrúar á aðalfundinn.
Dagskrá aðalfundar 20. nóvember 2009 samkvæmt 33. gr. laga BSRB
a) Skýrsla stjórnar
b) Umræður um skýrslu stjórnar
c) Reikningar aðalsjóðs BSRB og orlofssjóðs BSRB 2008
d) Umræður og afgreiðsla reikninga
e) Reikningar Átaks- og vinnudeilusjóðs 2008
f) Umræður og afgreiðsla reikninga Átaks- og vinnudeilusjóðs
g) Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og ákvörðun um aðildargjald
h) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.
i) Kosning löggilts endurskoðanda
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























