Fréttir
Aðalfundur BSRB tekur undir mótmæli slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu
20.11.2009
Aðalfundur BSRB tekur undir ályktun slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu sem samþykkt var á félagsfundi 19. nóvember. Þar er því mótmælt harðlega að störf slökkviliðsmanna á Reykjavíkurflugvelli séu lögð af og ófaglærðir starfsmenn ráðnir í staðinn.
Ályktun félagsfundar slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu fer hér á eftir:
Félagsfundur slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu ályktar eftirfarandi:
Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu mótmæla því harðlega að störf slökkviliðsmanna séu lögð af og ófaglærðir starfsmenn ráðnir í staðinn. Slökkviliðsmaður er lögverndað starfsheiti líkt og kennari og hjúkrunarfræðingur.
Það hlýtur að vera réttur þeirra sem ferðast um flugvelli landsins að þeir njóti besta öryggis sem völ er á en ekki ófaglærðum flugvallarvörðum sem Flugstoðir hafa hnoðað saman í hugmyndasmiðju sinni og hampa á opinberum vettvangi sem Skandínavískri aðferð sem ekki finnast í neinum lögum og skilgreiningum hérlendis né erlendis eins og Flugstoðir túlka þær.
Sú áhætta sem er tekin með mannslíf er óásættanleg fyrir þá sem um flugvöllinn fara. Það að ófaglærðum starfsmönnum séu falin lögvernduð störf, og sú ábyrgð sem þeim fylgir, er algerlega óásættanlegt og brot á lögum nr. 75/2000 um brunavarnir.
Því skorum við á Kristján Möller samgönguráðherra að stöðva hið fyrsta þetta fyrirhugaða lögbrot og skerðingu á öryggi þeirra sem um flugvöllinn fara. Annars hlýtur hann að teljast ábyrgur á brotum á lögum um brunamál.
Slökkviliðsmenn munu ekki lýða undir neinum kringumstæðum að brotið sé á þeim og að öryggi fólks sé stefnt í hættu og munu gera allt til þess að koma í veg fyrir slík mistök.
Einnig skorum við á sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu að taka málin í sínar hendur til þess að vernda og gæta öryggis íbúa höfuðborgarsvæðisins sem og þeirra sem um flugvöllinn fara og sjá til þess að störf lögvarinna slökkviliðsmanna á flugvellinum verði ekki lögð niður. Falli Flugstoðir ekki frá þessum fyrirhuguðu breytingu væri betra að sveitarfélögin tækju reksturinn yfir eða flugumferð á Reykjavíkurflugvelli verði stöðvuð frá og með 1. mars 2010.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Þorgeir Pálsson framkvæmdarstjóri Flugstoð ekki séð ástæðu til þess að svara erindum slökkviliðsmanna um málefni slökkviliðs á Reykjavíkurflugvelli.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























