Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Öflug almannaþjónusta - aldrei eins mikilvæg og nú

20.11.2009


Á aðalfundi BSRB í dag var samþykkt ályktun um mikilvægi almannaþjónustunnar og var fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega. Í ályktuninni segir m.a.: „Niðurskurður velferðarþjónustunnar er dýrkeyptur og bitnar ekki einungis á þeim sem eiga undir högg að sækja heldur samfélaginu öllu. Þá leiðir niðurskurður á almannaþjónustunni til aukins atvinnuleysis sem þjóð­­félagið sjálft þarf að fjármagna með atvinnuleysisbótum og félagslegum úrræðum. Auk þess bitnar hann ekki síst á konum sem búa nú þegar við óviðunandi launamun."

Í ályktuninni er einnig fjallað um þrepaskipt skattkerfi og önnur tæki til tekjujöfnunar, auðlegðarskatt, óbeina skatta og fleira. Ályktunin birtist orðrétt hér:

Ályktun aðalfundar BSRB 20. nóvember 2009

ÖFLUG ALMANNAÞJÓNUSTA - ALDREI EINS MIKILVÆG OG NÚ

Aðalfundur BSRB ítrekar þá afstöðu bandalagsins að tryggja verður að aðgerðir stjórnvalda til að mæta fjárlagahalla næstu ára komi ekki niður á grunn­þjónustu samfélagsins. Öflug opinber almanna­þjónusta er aldrei eins mikilvæg og á krepputímum. Sýnt hefur verið fram á að jöfnuður er meiri í þeim sam­félögum þar sem staðinn hefur verið vörður um almannaþjónustuna. Staða hennar mun því skipta sköpum fyrir uppbyggingu þjóðfélagsins á næstu árum. Veiking velferðarkerfisins býður heim háskalegum félagslegum afleiðingum sem munu að öllum líkindum vara mun lengur en kreppan ein gefur tilefni til.

Niðurskurður velferðarþjónustunnar er dýrkeyptur og bitnar ekki einungis á þeim sem eiga undir högg að sækja heldur samfélaginu öllu. Þá leiðir niðurskurður á almannaþjónustunni til aukins atvinnuleysis sem þjóð­­félagið sjálft þarf að fjármagna með atvinnuleysisbótum og félagslegum úrræðum. Auk þess bitnar hann ekki síst á konum sem búa nú þegar við óviðunandi launamun.

BSRB krefst þess að farið verði hægar í sakirnar við niðurskurð á ríkisútgjöldum en stefna Alþjóða­gjaldeyrissjóðsins segir til um og ríkisstjórnin virðist ætla að framkvæma. Áform um að ná jafnvægi í ríkis­fjármálum á næstu þremur árum geta haft í för með sér óbætanlegt tjón á velferðarkerfinu. Bandalagið krefst þess að ríkisstjórnin endurskoði stefnu sína og lengi aðlögunartíma ríkissjóðs.

BSRB gerir sér grein fyrir því að ríkissjóður þarf að afla aukinna tekna til að takast á við afleiðingar efnahagshrunsins. Tillögur ríkisstjórnarinnar um þrepaskipt skattkerfi eru í samræmi við stefnu bandalagsins um tekjujöfnun. BSRB minnir jafnframt á að grunnfjárhæðir almannatrygginga, barnabóta, vaxtabóta og fæðingarorlofsgreiðslna eru tæki til kjarajöfnunar. Varðandi lausn á atvinnuleysisvandanum ber hins vegar að hafa í huga að mikilvægt er að haga skattlagningu á þann veg að hún stuðli að fjölgun starfa. BSRB fagnar því að leitað verði úrræða fyrir ungt fólk á aldrinum 18-25 ára sem er á atvinnuleysisbótum en átelur að það eigi að gera á kostnað þess sjálfs. Fyrirhuguð hækkun á launatengdum gjöldum, eins og t.d. tryggingargjaldi, er líkleg til að hafa gagnstæð áhrif.

Aðalfundur BSRB tekur undir tillögur ríkisstjórnarinnar um nýjan tekjustofn ríkissjóðs, svokallaðan auðlegðarskatt.

Aðalfundur BSRB hafnar alfarið öllum hugmyndum um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði.

Aðalfundur BSRB varar hins vegar við umtalsverðum hækkunum á virðisaukaskatti, vörugjöldum og tollum. Slík skattheimta hækkar verðlag sem hefur áhrif á neysluverðsvísitöluna og leiðir til hækkunar á höfuðstól verðtryggðra lána.

Adalfundur 2009 2


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta