Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Starfslok verkefnisstjórnar 50+

7.12.2009

gunnarogarni
Gunnar Kristjánsson formaður verkefnisstjórnar 50+ afhendir Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra skýrsluna

Verkefnisstjórn 50+ hefur skilað af sér skýrslu til félagsmálaráðherra þar sem farið er yfir störf hópsins undanfarin 5 ár. Verkefnisstjórnin var skipuð 7 fulltrúum, sex þeirra voru tilnefndir af aðilum vinnumarkaðar og hinu opinbera þ.e. Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Vinnumálastofnun en Bandalag starfsmanna ríkisins, Bandalag háskólamanna og Kennarasamband Íslands tilnefndu sameiginlega einn fulltrúa. Formaður var skipaður án tilnefningar.

Árið 2004 skipaði félagsmálaráðherra nefnd sem var m.a. ætlað að kanna á hvern hátt unnt væri með lagasetningu að sporna við því að fólk væri látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur með uppsögnum eða mismunun í starfi. Í ljós kom að hópur þessi hefur lítið verið rannsakaður en ýmislegt lá fyrir af tölfræði sem nefndin vann úr og hafði hún síðan frumkvæði að því að gerð var könnun á viðhorfum til stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði sem IMG-Gallup annaðist.

Í bréfi sem Gunnar Kristjánsson formaður verkefnisstjórnarinnar ritar með skýrslunni segir m.a.:

„Í samræmi við áherslur sínar stóð verkefnisstjórnin fyrir fundaröðum og málþingi þar sem fram komu fjölmargir fyrirlesarar og fluttu áhugaverð erindi og kynntu rannsóknarniðurstöður sem hvorutveggja vakti athygli þeirra sem sóttu sem og fjölmiðla. Þá gaf verkefnisstjórnin út kynningarefni og lét gera plaköt í tengslum við málþing sem haldið var á Akureyri haustið 2008.

Verkefnisstjórnin telur að með starfi sínu hafi henni tekist að vekja athygli atvinnulífs og almennings  á mikilvægi virkrar atvinnuþátttöku hinna eldri og þeim auði sem falin er í reynslu þeirra í atvinnulífinu.  Starf verkefnisstjórnarinnar er því mikilvægt innlegg í umræðu og starf á þessum vettvangi  til framtíðar."

Sjá skýrslu verkefnisstjórnar 50+

Sjá bréf Gunnars Kristjánssonar


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta