Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Fyrirlestri Sigursteins Mássonar frestað

27.1.2010

Vegna leiks Íslands og Noregs á EM í handknattleik hefur verið ákveðið að fresta fyrirlestri Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar um andlega sjálfsvörn sem halda átti í BSRB húsinu kl. 16 á morgun. Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 4. febrúar kl. 16 og er hann í boði BSRB.

Fyrirlesturinn tekur um 35 mínútur og er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta