Fréttir
SFR afli fljótlega verkfallsheimildar fyrir starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf
28.1.2010
"Í ljósi þess að lítill eða enginn samningsvilji er fyrir hendi af hálfu viðsemjenda og Samtaka atvinnulífsins, verður ekki hjá því komist að SFR afli fljótlega verkfallsheimildar meðal félagsmanna sem eru starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf, ef enginn árangur verður af starfi Ríkissáttasemjara í kjaradeilunni á næstu dögum," segir m.a. í yfirlýsingu félagsfundar sem SFR félagar sem starfa á Keflavíkurflugvelli stóð fyrir í gær.
Samþykkt félagsfundarins fer hér á eftir:
"Félagsfundur starfsmanna Keflavíkurflugvallar ohf., sem eru félagsmenn í SFR stéttarfélagi, sem haldinn 27. janúar 2010 sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf, sem eru félagmenn í SFR stéttarfélagi, telja árangur af margra mánaða kjaraviðræðum við Keflavíkurflugvöll ohf allsendis ófullnægjandi. Augljóst er eftir síðasta samningafund SFR, FFR og Keflavíkurflugvallar ohf, að lítill samningsvilji er til staðar af hálfu vinnuveitanda. Samningar hafa dregist úr hófi og þolinmæði starfsmanna á þrotum. Starfsmenn leggja áherslu á að það dragist ekki lengur að gengið sé frá kjarasamningi SFR við Keflavíkurflugvöll ohf. Í ljósi þess að viðsemjendur eru að draga samninga á langinn, krefjast félagsmenn SFR þess að samninganefnd félagsins vísi kjaraviðræðum við Keflavíkurflugvöll ohf. nú þegar til Ríkissáttasemjara. Í ljósi þess að lítill eða enginn samningsvilji er fyrir hendi af hálfu viðsemjenda og Samtaka atvinnulífsins, verður ekki hjá því komist að SFR afli fljótlega verkfallsheimildar meðal félagsmanna sem eru starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf, ef enginn árangur verður af starfi Ríkissáttasemjara í kjaradeilunni á næstu dögum. Fyrirtækið hefur þegar sýnt að það stefnir að því að halda starfskjörum langt undir því sem almennt gerist á vinnumarkaði og við það verður ekki lengur unað.
Þá er það skýlaus krafa fundarmanna, að störf þeirra séu metin að verðleikum og að launamunur við viðmiðunarstéttir verði að fullu leiðréttar í komandi kjarasamningi og að launaleiðréttingar verði afturvirkar miðað við það sem almennt hefur gerst á íslenskum vinnumarkaði frá því á árinu 2009."
Um BSRB
Á döfinni
Leit





















