Fréttir
Andleg sjálfsvörn á fimmtudag
2.2.2010
Fyrirlestur Sigursteins Mássonar formanns Geðhjálpar „Andleg sjálfsvörn" sem frestað var sl. fimmtudag vegna EM í handknattleik verður fluttur í BSRB - húsinu nk. fimmtudag, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn er í boði BSRB og tekur um 35 mínútur.
Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu.
Um BSRB
Á döfinni
9. september 2010
14. september 2010
4. október 2010
Leit






















