Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Alþjóðlegur barátttudagur kvenna 8. mars

5.3.2010

8marsjafnrettiBSRB stendur ásamt fleiri félagasamtökum að tveimur fundum sem haldnir verða mánudaginn 8. mars en þá er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti haldinn í hundraðasta skiptið. Þá stendur SFR að ráðstefnu á Akureyri 8. mars. Félagið mun halda ráðstefnur um jafnréttismál í öllum landsfjórðungum í mars og apríl.

Fundirnir sem BSRB stendur að er annars vegar fundur undir yfirskriftinni Frelsi til fjölskyldulífs, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs. Að fundinum standa auk BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Fundurinn er á Grand hóteli í Reykjavík frá kl. 11.45 til 13.
Erindi flytja Gyða Margrét Pétursdóttir aðjúnkt í kynjafræði við HÍ, Ingólfur V. Gíslason dósent í félagsfræði við HÍ og Heiða Björk Rúnarsdóttir leikskólastjóri í leikskólanum Kópaskeri. Fundarstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir formaður Jafnréttisráðs.
Í upphafi fundar er framreidd súpa, gratínerað brauð og kaffi. Verð 1.750 kr.

Hins vegar er það dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl.17 undir yfirskriftinni Við getum betur. BSRB og nokkur aðildarfélög bandalagsins eru meðal þeirra sem standa að dagskránni.
Ávörp flytja María S. Gunnarsdóttir, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, Helga Sif Friðjónsdóttir, Barbara Kristinsson, Guðrún Hallgrímsdóttir, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Andrés Ingi Jónsson.
Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.
Félagasamtökin sem standa að dagskránni eru Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Amnesty, Bandalag háskólamanna, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um Kvennaathvarf, SHA - Samtök hernaðarandstæðinga, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkur, Þroskaþjálfafélag Íslands, SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu og BSRB.

SFR stendur fyrir ráðstefnuröð um jafnrétti á komandi vikum og verður ráðstefna haldin í öllum landsfjórðungum. Fyrsta ráðstefnan verður á Akureyri 8. mars á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Næst er komið að Egilsstöðum 14. apríl, Ísafirði 20. apríl og endað í Reykjavík 28. apríl.
SFR hefur lagt mikla áherslu á launajafnrétti kynjanna og jafnréttismál í starfi sínu. Á síðustu misserum hafa ýmsir haldið því fram að jafnréttismálin séu síður á dagskrá vegna þeirra erfiðleika í efnahagsmálum sem íslenska þjóðin er að ganga í gegnum. Það er skoðun SFR að ef einhverju sinni hafi verið þörf á að huga sérstaklega að jafnréttismálum þá sé það nú. Jöfn staða kynjanna er ein af forsendum farsældar. Jafnrétti má ekki verða afgangsstærð í uppbyggingu og endurnýjun samfélagsins. Þvert á móti. Jafnrétti kynjanna er mikilvægara en nokkru sinni. Endurreisa þarf íslenskt samfélag þar sem velferð þegnanna, réttsýni og jafnrétti verða þau gildi sem skipað verður í öndvegi.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta