Fréttir
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar spor í rétta átt
17.3.2010
Formaður BSRB segir að aðgerðir ríkisstjórarinnar vegna erfiðrar stöðu heimilanna séu spor í rétta átt. Það liggi á að aðstoða skuldsett heimili þannig að fólk geti komið undir sig fótunum á ný.
Þó að frysting lána og frestun uppboða hafi verið nauðsynlegt skref á sínum tíma þá þarf að finna framtíðarlausnir fyrir fólk. Horfast verður í augu við stöðuna í samfélaginu. Það er nauðsynlegt að tryggja að fólk lendi ekki á götunni ef það missir húsnæði sitt. Þá er það jákvætt að efla eigi félagslega húsnæðiskerfið. Það er er algjörlega nauðsynlegt að til staðar sé öflugt öryggisnet sem tryggi að fólk hafi þak yfir höfuðið hverjar svo sem aðstæður þess eru að öðru leyti.
Þó að aðgerðirnar séu jákvæðar er einnig mikilvægt að árangurinn af þeim verði metinn með reglubundnum hætti og brugðist við svo ekki skapist aftur uppsafnaður vandi sem rýri stoðir samfélagsins.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























