Fréttir
Hugmyndir um frystingu launa fráleitar
9.6.2010
Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB sagði í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa opinberra starfsmanna til ársins 2013 væru fráleitar. Þá sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB að tillaga félagsmálaráðherra væri stríðsyfirlýsing.
Félagsmálaráðherr ritaði grein í Fréttablaðið í gær þar sem hann kallaði Af tækifærum í niðurskurði. Þar kallar ráðherra meðal annars eftir þjóðarsátt um frystingu launa opinberra starfsmanna til ársins 2013, enda sé engin innistæða fyrir kauphækkunum hjá hinu opinbera á næstunni. Fjármálaráðherra sagði í fréttum að hugmyndirnar væru ótímabærar enda taki vinna við fjárlagagerð nú einungis til ársins 2011.
Í fréttum ríkissjónvarpsins var eftirfarandi haft eftir fjármálaráðherra og framkvæmdastjóra BSRB:
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra: Félagsamálaráðherra fer nú dálítið bratt í þetta finnst mér. Og þetta eru hans sjónarmið sem að hann reifar þarna en, en það liggja engar ákvarðanir eða engin stefnumótun að, að þessu tagi beinlínis að baki að hálfu ríkisstjórnarinnar.
Framkvæmdarstjóra BSRB líst vægast sagt illa á hugmyndir félagsmálaráðherra.
Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB: Í fyrsta lagi þá er hann að tala eingöngu um opinbera starfsmenn, og í öðru lagi þá eru mörg aðildarfélög BSRB með lausa samninga og eru búin að vera með það í nokkur ár núna, allavega síðastliðið ár. Þannig að hvað er þá verið að tala um? Frystingu launa þessara starfsmanna fjögur, fimm ár? Ef við erum að tala til 2013. Þannig að hugmyndin er í alla staði alveg fráleit.
Ægir Þór Eysteinsson: Þú talar einmitt um þennan tíma. Kjarasamningar verða lausir núna bráðlega, það er friðarskylda í gangi. Er félagsmálráðherra með þessu að hleypa öllu í bál og brand?
Helga Jónsdóttir: Ég veit það nú ekki. Við erum nú orðin ýmsu vön en hins vegar þá finnst mér þetta mjög óheppilegt útspil hjá honum.
Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB sagði í fréttum Stöðvar 2 tillögu félagsmálaráðherra um frystingu launa opinberra starfsmanna til 2013 stríðsyfirlýsingu.
Hér á eftir fer útskrift úr frétt Stöðvar 2:
Árni Stefán Jónsson, varaformaður BSRB: Mér finnst þetta svona stríðsyfirlýsing að, hvernig hann setur þetta fram, sérstaklega með því að setja þetta fram svona í þessum hótunarstíl, að ef að menn fallist nú ekki á að, að frysta laun opinberra starfsmanna að þá verði einhvers konar afleiðingar af því, annað hvort niðurskurður í velferðarkerfinu eða uppsögn starfsmanna. Ég get algjörlega fullyrt það að það kemur ekki til greina að opinberir starfsmenn fallist á það að frysta laun í þrjú ár. Alls ekki, það kemur ekki til greina. Við munum í þessu ástandi einmitt vara okkur á því að vera að festa okkar kjarasamninga til lengri tíma.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir málið ekki hafa verið rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun, en Árni Páll mun ekki hafa rætt hugmyndina í ríkisstjórninni áður en greinin um þjóðarsáttina birtist.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra: Ég er ekki ósammála því að við okkar þröngu stöðu núna þá, þá blasir málið svona við, að minnsta kosti hvað varðar næsta ár. En það síðan hvernig okkur tekst að glíma við árin 2012 og 2013, það er einfaldlega svo háð efnahagsframvindunni hvort að hér fari í gang hagvöxtur og hjólin fara að snúast, sem mun þá að sjálfsögðu leggjast með okkur, að ég tel að menn eigi ekki að vera of uppteknir af því í bili.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























