Fréttir
Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmæla launafrystingu
21.6.2010
Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir harðlega hugmyndum félagsmálaráðherra um launafrystingu opinberra starfsmanna. Ráðgjafar og stuðningsfulltrúar eru fjölmenn stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og launin óásættanlega lág fyrir, þótt þau séu ekki fryst. Umönnun er ekki afgangsstærð í þjóðfélaginu og þegar hefur verið farið yfir sársaukamörk í niðurskurði. Fyrirhugaðar fjárfrekar framkvæmdir á vegum hins opinbera, meðal annars heilbrigðiskerfisins, skjóta skökku við þegar ekki virðist vera hægt að reka það sem fyrir er í óbreyttri mynd. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mun ekki taka því þegjandi ef til stendur að ganga frekar á kjör heilbrigðisstarfsfólks en orðið er, og minnir á að ekki er langt í að næstu kjarasamningar verði gerðir og heitir á forystu verkalýðshreyfingarinnar að standa með sínu fólki.
FRS er félag ráðgjafa, stuðningsfulltrúa og annars starfsfólks í umönnun. Félagið er deild innan SFR. Sjá nánar á heimasíðu félagsins, http://sfr.is/fagfelog/frs/
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























