Fréttir
Stuðningur við LSS
16.8.2010
Bæði KÍ og ASÍ hafa sent frá sér yfirlýsingar til stuðnings aðgerðum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna (LSS). Stjórn BSRB ályktaði um málið í síðustu viku. Öll hvetja félögin til þess að löglega boðaðar aðgerðir LSS séu virtar.
Í ályktun stjórnar Kennarasambandsins er Launanefnd sveitarfélaga hvött til að "hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu." Þá eru sveitarstjórnarmenn hvattir til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við LSS.
Í ályktun stjórnar ASÍ er ítrekað að verkfallsréttur sé grunvdallarréttur hvers stéttarfélags og óheimilt að brjóta eða komast framhjá löglega boðuðum vinnustöðvunum. Þá átelur ASÍ aðgerðir Isavia og Flugfélags Íslands, en með því að færa flug frá Akureyri til Húsavíkur sé verið að komast hjá löglega boðuðu verkfalli. "Slíkar aðgerðir fara gegn þeim grundvallarrétti stéttarfélaga sem felst í því að semja um kaup sín og kjör og beita lögmætum aðgerðum í því skyni," líkt og segir í ályktuninni.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























