Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Efla þarf leigumarkað

17.8.2010

BSRB telur að efla þurfi almennan leigumarkað hér á landi og hefur komið þeim athugasemdum sínum á framfæri við félags- og tryggingamálanefnd Alþingis í umsögn við frumvap til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Bandalagið styður eindregið framgang frumvarpsins og gerir engar efnislegar athugasemdir við það.

Hins vegar vill BSRB vekja athygli á nauðsyn þess að almennur leigumarkaður sé efldur. Á síðasta þingi bandalagsins, sem haldið var í haust, var sérstaklega ályktað um húsaleigumarkaðinn. Þar segir:

"Þingið bendir á að nú standa auðar um 2000 fullbúnar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og um 900 íbúðir í byggingu, fyrir utan húsnæði í samskonar ástandi víða um landið. Hætt er við að lánin af byggingu þessa húsnæðis falli með einum eða öðrum hætti á ríkið. Því er lag að mynda nú loks almennan húsaleigumarkað í landinu sem yrði til mikilla hagsbóta fyrir alþýðu manna. Skorar 42. þing BSRB á stjórnvöld að leggjast á árarnar í þessum efnum."

Bandalagið telur því mikilvægt að ásamt þeirri lausn sem frumvarpið leggur til varðandi kaupleigusamninga verði almennur leigumarkaður efldur og styrktur. Með þeim hætti má koma í veg fyrir enn frekari aukningu þess að húsnæðislán einstaklinga falli með einum eða öðrum hætti á ríkið.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta