Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ekkert nýtt hjá sjúkraliðum

24.8.2010

Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á fundi Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) og fulltrúa ríkisins hjá ríkissáttasemjara í morgun. Fundi hefur verið slitið og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ, sagði í samtali við mbl.is að engar breytingar væru á viðhorfi fulltrúa ríkisins. "Okkar kröfur eru svo óverulegar að það er ekki hægt að slá af þeim. Þetta eru bara leiðréttingarkröfur. Við erum ekki að krefjast prósentuhækkunar eða neins slíks, heldur viljum við bara að það verði sest niður og skoðað hvað þurfi leiðrétta og það þá gert. En það segjast þeir ekki geta."

Kjaramálanefnd félagsins hefur boðað trúnaðarmenn sjúkraliða hjá ríkisstofnunum á fund að Grettisgötu 89, þriðjudaginn 7. september klukkan 16. Þá hefur verið boðaður almennur félagsfundur með sjúkraliðum sem starfa hjá ríkinu, á sama stað, mánudaginn 13. september klukkan 16.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta