Fréttir
Enn frekari einkavæðing í Bretlandi
25.8.2010
Í stað hins opinbera reksturs á að hleypa einkaaðilum að, en slíkt hefur verið nefnt frumkvæði einkafjármagnsins þar í landi (Private Finance Initiative). Þrengst hefur um aðgang að einkafjármagni í kjölfar efnahagskreppunnar, en ríkið hefur hins vegar veitt fé til banka í sinni eigu og þeir síðan fjármagnað einkavæðingarverkefni. Pistlahöfundurinn George Monbiot hefur lýst ástandinu á eftirfarandi hátt: „Frumkvæði einkafjármagnsins krefst hvorki lengur einkafjármagns né frumkvæðis."
Stjórnvöld hafa þó sagst ætla að standa vörð um heilbrigðiskerfið, en PCS dregur það stórlega í efa, þar sem afborganir af skuldum vegna einkafjármögnunar verði það háar að skera verði niður á því sviði líka. Slík ímynduð víglína þýði líka að allt sem utan hennar er liggi undir, þegar kemur að hugmyndum um einkavæðingu.
PCS hefur skorið upp herör gegn áformunum og hefur í því skyni samþykkt tillögur í efnahagsmálum, sem ganga út frá opinberri eigu á öllum grunnstofnunum, þar með talið bönkum og veitufyrirtækjum. PCS hefur lagt fram tillögur að nýrri samfélagsgerð þar sem efnahagslífið byggir á sameign og bendir á slæma reynslu fyrri ára af einkavæðingu, ekki síst í heilbrigðiskerfinu.
BSRB hefur varað við svipaðri þróun hér á landi og kallað eftir því að lagarammi utan um almannaþjónustuna sé nægilega traustur til að veita henni vernd gegn markaðsvæðingu. Þá hefur bandalagið hvatt til þess að gerð verði heildstæð könnun á því að hvaða marki almannaþjónustan hefur þegar verið markaðsvædd.
Að lokum má geta þess að í maí 2008 hélt Allyson M. Pollock, prófessor við Edinborgarháskóla, erindi á vegum BSRB sem bar yfirskriftina Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar. Þar kom hún inn á ýmislegt af því sem PCS varar nú við.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























