Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ályktun stjórnar BSRB vegna gjaldskrárhækkunar OR

30.8.2010

Stjórn BSRB mótmælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur. Þær hafa áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa. Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélaginu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjaldskrárhækkanir.

Það er ótækt að einstakir notendur þurfi að greiða óráðsíufjárfestingar síðustu ára, þar sem eigendur tóku milljarða lán á sama tíma og þeir greiddu sjálfum sér háar upphæðir í arð. Um gríðarlega miklar hækkanir er að ræða og ljóst er að samkeppnisyfirvöld munu þurfa að skoða lögmæti þeirra, a.m.k. hvað dreifinguna varðar.

Ljóst er að vandi OR er uppsafnaður og á honum verður að taka. Það má hins vegar ekki gera svo bratt að það komi almenningi í koll. Við þá vinnu verður jafnframt að hafa í huga að vernda grunnþjónustu við notendur og verja þau störf sem henni tengjast.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta